Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.02.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2018 Lögin „Golddigger“ í flutningi Ar- ons Hannesar, „Hér með þér“ í flutningi Áttunnar og „Í stormi“ í flutningi Dags Sigurðssonar kom- ust áfram í úrslit á seinna undan- úrslitakvöldi Söngvakeppninnar sem fram fór í Háskólabíói síðast- liðið laugardagskvöld. Þrjú lög tryggðu sér sæti í úrslit- unum fyrir viku þegar þjóðin kaus lögin „Ekki gefast upp“ með Fókus hópnum, „Heim“ með Ara Ólafssyni og „Kúst og fæjó“ með Heimilis- tónum. Samkvæmt upplýsingum frá RÚV verða sex lög í úrslitakeppni Söngvakeppninnar sem fer fram í Laugardalshöll 3. mars. Sigurlagið verður síðan framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva, sem haldin verður í 63. sinn frá upphafi í Lissabon, höfuðborg Portúgal, dagana 8., 10. og 12. maí. Aron Hannes, Áttan og Dagur bókuðu miða í úrslit Söngvakeppninnar Ljósmynd/Mummi Lú Aron Hannes Söngvarinn knái og félagar hans hittu á gullæð á laugardagskvöldið. »Á 100 ára fullveldisafmæli Íslands stendur Þjóðminjasafn Íslands fyrir sérstakri dagskrá á sýningum safnsins á Suðurgötu. Einstaklingar sem þekkt- ir eru fyrir störf sín í þágu samfélagsins veita leiðsögn og ræða við safngesti um hugðarefni sín. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra reið á vaðið og gekk með gestum um Þjóðminjasafnið með leiðsögn undir yfirskriftinni Galdrar, glæpir og glæfrakvendi. Galdrar, glæpir og glæfrakvendi í Þjóðminjasafninu Þröng á þingi Leiðsögn forsætisráðherra var ákaf- lega vel sótt og höfðu gestir gagn og gaman af. Athygli Jafnvel yngstu safngestirnir veittu leiðsögninni fulla athygli, enda er umfjöllunarefnið grípandi. Áhersla Katrín lagði á köflum áherslu á orð sín með áhrifaríkri leikrænni líkamstjáningu. Fremst í flokki Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vísaði veginn á Þjóðminjasafninu. Morgunblaðið/Eggert Argentínska myndlistarkonan Lola Arias sakar Rubern Östlund um að misnota nafn hennar í The Square og skaða með því orðspor hennar og krefst hún afsökunarbeiðni frá kvik- myndaleikstjóranum. Sænska dag- blaðið Dagens Nyheter (DN) greindi fyrst frá málinu og í framhaldinu danskir og norskir miðlar. Forsaga málsins er sú að í mars 2016 bauðst Arias að leika listakonu í myndinni sem átti að heita Natalia, en sú kona átti að vera höfundur inn- setningarinnar sem myndin hverfist um. Fékk hún þá útskýringu að list- rænir stjórnendur myndarinnar vildu að alvörulistakona léki hlutverkið og að hún ætti bara að leika sjálfa sig. Í framhaldinu fékk hún handrit sent og síðan var tekin upp sena þar sem hún átti í fimm klukkustunda löngu Skype-samtali við Östlund. Segir hún samtalið hafa verið óþægilegt þar sem Östlund hafi ítrekað gert at- hugasemd við útlit hennar. Að upp- tökunni lokinni segist Arias ekki hafa heyrt meir frá Östlund og loks eftir dúk og disk fengið greitt fyrir vinnu sína. Arias segir sér hafa brugðið þegar hún sá svo loks myndina. „Í stað þess að nota senuna þar sem ég leik til- búna persónu hafði Östlund gert ann- að sem við höfðum aldrei rætt sem var að nota mitt raunverulega nafn,“ skrifar Arias í DN og tekur fram að sér þyki sérstaklega vont að vera eignuð innsetningin. „Þökk sé Öst- lund hefur nafn mitt verið tengt við nokkuð sem ég álit vera lágkúrulegt listaverk,“ skrifar Arias og bendir á að fjöldi fólks í myndlistarbransanum hafi sett sig í samband við hana til að fræðast um hugmyndafræðina að baki innsetningunni sem birtist í kvikmyndinni The Square. Í samtali við DN segist Östlund fyrst hafa heyrt af óánægju Arias í tölvupósti í ágúst sem hann hafi svar- að. „Ég hef fullan skilning á því að hún sé ósátt við að hafa verið klippt út úr myndinni. Því miður gerist það oft í klippiferlinu. Þegar kemur að nafni persónunnar þá notuðum við alltaf nafnið Lola Arias. Í upptökunni sem við gerðum með Lolu notaði hún sjálf nafnið í samræðunum. Í því ljósi er mér óskiljanlegt að hún hafi ekki ver- ið sér meðvitandi um þetta. Kannski man hún allt vitlaust,“ segir Östlund. Sakar Östlund um að skaða orðspor sitt Lola Arias Ruben Östlund Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 8, 10.15Sýnd kl. 5.15, 7.50, 10.35 Sýnd kl. 10.30Sýnd kl. 7.50 Sýnd kl. 5.30Sýnd kl. 5.30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.