Morgunblaðið - 27.02.2018, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 49. tölublað 106. árgangur
Í EINU AÐALHLUT-
VERKA VERÐ-
LAUNAMYNDAR
SELDI MEST
AF MORGUN-
BLAÐINU
VALDÍS ÞÓRA
JÓNSDÓTTIR
Í VIÐTALI
AUÐUNN BLAÐASALI 4 ÍÞRÓTTIR 1TÓMAS LEMARQUIS 30-31
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Efnahagshorfur á Íslandi hafa
breyst á skömmum tíma og nú er út-
lit fyrir töluvert minni hagvöxt. Það
kallar á aðlögun í hagkerfinu.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins (SA), segir hagkerfið
vera að breyta um takt. Það séu ekki
lengur horfur á verulegum hagvexti.
„Þvert á móti er framboð og eftir-
spurn að mætast. Það hefur ekki
gerst undanfarin ár. Framleiðslu-
slakinn er meiri en verið hefur.“
Stjórnvöld sýni á spilin
Halldór Benjamín segir vísbend-
ingar um að hagkerfið sé að kólna.
Ein þeirra er aukið atvinnuleysi.
Stjórnvöld þurfi að horfast í augu við
breytta stöðu og sýna á spilin í kjara-
málum. Endurskoða þurfi trygg-
ingagjald og efla hlut vinnumarkaðs-
tengdra sjóða. SA telji fyrirtæki eiga
inni lækkun tryggingagjalds. Um
það séu „allir sammála“.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs Samtaka at-
vinnulífsins, segir umskiptin í hag-
kerfinu hraðari en spáð var.
Ljóst sé að samsetning hagvaxtar
muni breytast með aukinni einka-
neyslu og innflutningi. Það geti aftur
haft áhrif á viðskiptaafgang þjóðar-
búsins og þar með gengi krónunnar.
Hagkerfið tekið að kólna
Samtök atvinnulífsins segja hagvaxtarhorfur breyttar hér á landi Hægari
vöxtur ferðaþjónustu ein meginskýringin Þróunin kalli á aðlögun í hagkerfinu
MBreytt staða »6 og 19
Hagkerfið skiptir um gír
» Seðlabankinn spáði því í maí
í fyrra að 6,3% hagvöxtur yrði
á árinu 2017. Bankinn hefur
lækkað spána í 3,4%.
» Hægt hefur á vexti ferða-
þjónustunnar milli ára. Veltan
hefur þó aldrei verið meiri.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Samkeppniseftirlitið setur alvarlega
fyrirvara við samruna Haga og Olís
annars vegar og N1 og Festis hins
vegar. Ein helsta ástæðan fyrir því
er að frumniðurstöður rannsóknar
stofnunarinnar á fyrirhuguðum
samrunum munu tengjast víðtæku
eignarhaldi íslenskra lífeyrissjóða á
fyrirtækjunum. Þetta herma heim-
ildir Morgunblaðsins.
Samkeppniseftirlitið hefur nú
sent út andmælaskjal vegna fyrr-
nefndra samruna sem komnir eru til
vegna harðnandi samkeppni á smá-
sölumarkaði, ekki síst eftir tilkomu
Costco á íslenskan markað. Í
andmælaskjalinu kemur fram að
samrunarnir verði að öllu óbreyttu
ekki heimilaðir.
Verði niðurstaðan sú í báðum til-
vikum að samrunarnir verði ógiltir
yrði það ekki í fyrsta sinn sem Sam-
keppniseftirlitið stígur inn í sam-
runatilraunir sem tengjast komu
Costco á markaðinn. Þannig ógilti
stofnunin í fyrra kaup Haga á Lyfju
en fyrrnefnda fyrirtækið stefndi að
því að hasla sér völl á lyfjamarkaði en
þar hefur Costco gert sig verulega
gildandi frá því í maí í fyrra. »16
Telur
sjóðina
of stóra
Morgunblaðið/Þórður
Samruni N1 stefnir að auknum um-
svifum með kaupunum á Festi.
Eignarhald talið
hamla samkeppni
Um tugur fólks hefur króknað úr kulda á meginlandi Evrópu síðustu daga
og spáð er harðnandi frosti. Það snjóaði í Rómaborg í fyrrinótt, í fyrsta
skipti frá 2012, en ástæða kuldakastsins er kaldur vindur sem berst frá
Síberíu. Breskir fjölmiðlar nefna veðrið „ófreskjuna að austan“. »17
„Ófreskjan að austan“ herðir tak sitt á meginlandi Evrópu
AFP
Olíudreifing hefur samið við
Akdeniz-skipasmíðastöðina í Tyrk-
landi um smíði á nýju olíuskipi sem
koma mun í stað Laugarness. Hið
nýja skip mun dreifa olíu á hafnir
landsins eins og Laugarnesið hefur
gert um árabil.
Nýja skipið verður búið átta
farmgeymum og mun geta flutt all-
ar tegundir eldsneytis sem eru í
boði hérlendis, frá bensíni og upp í
svartolíu, sem er sérstakt fyrir skip
af þessari stærð. Burðargeta skips-
ins verður um 230 rúmmetrum
meiri en Laugarness. Það mælist
499 brúttótonn en Laugarnesið er
378 brúttótonn. Skipið er væntan-
legt til landsins í árslok. »10
Olíudreifing lætur
smíða nýtt skip
Norski álframleiðandinn Norsk
Hydro hefur lagt fram skuldbind-
andi tilboð um kaup á álverinu í
Straumsvík sem er í eigu Rio Tinto.
„Fyrirhuguð kaup falla vel að
stefnu Norsk Hydro. Málmurinn á
Íslandi er framleiddur með end-
urnýjanlegri orku eins og raunin er
með framleiðslu okkar í Noregi. Ál
er málmur framtíðarinnar. Eftir-
spurn eftir honum mun vaxa mest
af öllum málmum,“ segir Ola Sæter,
framkvæmdastjóri hjá Norsk
Hydro, í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að til skamms og með-
allangs tíma muni fjöldi starfs-
manna ekki taka breytingum.
„Skuldbindandi tilboði fylgja við-
ræður við fulltrúa starfsmanna ál-
versins og samkeppnisyfirvöld.“
Norsk Hydro er skráð á hluta-
bréfamarkað í Noregi. Stærsti hlut-
hafi félagsins er norska ríkið með
um 34% hlut. Félagið er með 35 þús-
und starfsmenn í 40 löndum. »14
Norski álframleiðandinn Norsk Hydro
býður í álver Rio Tinto í Straumsvík
Morgunblaðið/Ómar
Álver Fjöldi starfsmanna álversins
mun ekki breytast á næstunni.
Bókaráð unglinga í Hagaskóla
hefur áhyggjur af því að skortur á
íslenskum og þýddum bókum fyrir
unglinga geti myndað vítahring
sem erfitt gæti orðið að leysa. Þau
hafa því skipulagt og boðað til mál-
þings í Hagaskóla á morgun
Mennta- og menningarmála-
ráðherra verður með framsögu auk
rithöfundar, bókasafnsfræðings og
þýðanda, fulltrúa félags íslenskra
bókaútgefenda og þriggja nem-
enda.
Hugmyndin að málþinginu kem-
ur frá unglingunum í bókaráði og
hafa þau séð um alla framkvæmd
sjálf.
Á málþinginu munu unglingarnir
fjalla um skort á þýddum unglinga-
bókum, viðhorf unglinga til lesturs
og framtíðaráhrif á bókaforlögin
þegar unglingar sem ekki fengu
nægjanlegt úrval af bókum verða
fullorðnir. »12-13
Unglingar í Hagaskóla taka málin í sínar
hendur og boða til málþings um lestur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framsýn Unglingar í bókaráði Hagaskóla
hugsa til framtíðar þegar kemur að lestri.