Morgunblaðið - 27.02.2018, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Aðalfundur SES
Aðalfundur Samtaka eldri sjálfstæðismanna,
SES, verður haldinn í Valhöll á morgun,
miðvikudaginn 28. febrúar kl. 12:00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Með kveðju,
stjórnin.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, jóga með Hildi kl. 9.30 (stóla
jóga og frítt inn), Gönguhópur leggur af stað kl. 10.15, vatnsleikfimi í
Vesturbæjarlaug kl. 10.50. Postulínsmálun og Tálgað í tré hópurinn
mætir í hús kl. 13.
Árskógar Leikfimi með Maríu kl. 9. Smíðar, útskurður, pappamódel
með leiðbeinanda kl. 9-16. Leshringur með Heiðrúnu kl. 11. Bónus-
bíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðbeinanda
kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og félagsstarf
kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Brids og kanasta kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43. Yngingar jóga hjá Lilju Steingríms kl. 9-9.50, allir
velkomnir. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Les-
hópur Hjördísar kl. 10.30. Eva hjúkrunarfræðingur kl. 11. Botsía kl.
10.40-11.20. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13. Opið kaffi-
hús kl. 14.30-15.15. Spænska kl. 16.30-17.45.
Bústaðakirkja Félagsstarfið á sínum stað, spil, handavinna og kaffið
góða, á morgun, miðvikudag, verður boðið uppá línudans með Ingu
og Rósa Ólöf Ólafíudóttir verður líka gestur okkar með bókina sína
,,Kæra nafna". Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Bústaðakirkju.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Fella- og Hólakirkja, eldri borgara-
starfið í dag: Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12. Vinir okkar í Grafar-
vogskirkju koma í heimsókn kl. 13 og við tökum vel á móti þeim. Sr.
Kristinn Ágúst heldur stuttan fyrirlestur um hamingjuna, Þorvaldur
kemur með nikkuna og við syngjum saman. Síðan spilum við og
spjöllum saman og eigum góða samveru saman. Allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Postulínsmálun kl. 9. Opin hand-
verksstofa kl.13. Landið skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveit-
ingar kl.14.30.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bútasaumshópur kl. 9-12, glerlist kl. 9-
13, hópþjálfun; stólaleikfimi með sjúkraþjálfara kl. 10.30-11.15, allir
velkomnir, ferð í Bónus kl. 12.15, rúta fer frá Skúlagötu/Klapparstíg,
frjáls spilamennska kl. 13-16.30, Ferð aftur í tímann, skoðaðar gamlar
myndir og sagðar sögur kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Verið
velkomin á Vitatorg, síminn er 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 8.20/15.15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Botsía
Sjálandi kl. 11.40. Karlaleikfimi Sjálandi kl. 13. Trésmíði kl. 9/13 Kirkju-
hvoli. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í Kirkjuhvoli kl.
13.30/14.30. Félagsvist í Jónshúsi kl. 20.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-
12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Leikfimi Maríu kl. 10-
10.45. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl.
10.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar, kl. 16 dans.
Grafarvogskirkja Í dag fer eldri borgara starfið í Grafarvogskirkju í
heimsókn í Fella- og Hólakirkju. Rúta fer frá Grafarvogskirkju kl. 12.30.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, ganga kl. 10, málm- og silfur-
smiði / tréskurður / kanasta kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11, 500 kr. skiptið eða 1305 kr.
mánuðurinn, allir velkomnir. Hjúkrunarfræðingur kl. 9-10. Hádegis-
matur kl. 11.30. Bónusbíll kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9. hjá
Ragnheiði, morgunleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30. Spilað
brids kl. 13, helgistund kl. 14, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Karlakór
Reykjavíkur, eldri félagar verða með tónleika kl. 15, stjórnandi Friðrik
S. Kristinsson. Aðgöngumiðar seldir á staðnum.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, thai chi kl. 9, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur,
tíminn fellur niður í dag, leikfimin með Guðnýju kl. 10, spekingar og
spaugarar kl. 10.45, brids kl. 13, enskunámskeið tal kl. 13 og kl. 15,
leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10, bókabíll kl. 14.30, Bónusbíll kl. 14.55,
síðdegiskaffi kl. 14.30 allir velkomnir óháð aldri nánari í síma 411-2790
Korpúlfar Sundleikfimi kl. 7.30 og kl. 14.10 í Grafarvogssundlaug.
Listmálun 9 í Borgum. Helgistund kl. 10.30 og botsía kl. 10 og 16 í
Borgum. Leikfimi í Egilshöll kl. 11. Heimanámskennsla kl. 16.30 í
Borgum. Thelma verður með styrkjandi æfingar og létta danssveiflur
með áherslu á jafnvægi fyrir Korpúlfa í dag í Borgum kl. 17, allir vel-
komnir 500 kr. þátttökugjald.
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Ársæll Arnarson, sálfræðingur: Síðustu
ár sálarinnar. Hvað varð um sálina í menningunni? Kaffi og kruðerí.
Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og
leikir kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og kaffi og meðlæti er selt á vægu
verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari
upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.15. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 12. Brids í Eiðis-
mýri 30, kl. 13.30. Helgistund og dagskrá í krikjunni kl. 14 í dag.
Margrét Eggertsdóttir íslenskufræðingur spjallar um Hallgrím Péturs-
son á lönguföstu. Allir velkomnir. Nk. fimmtudag, 1. mars, kl. 13.30
verður félagsvist í salnum á Skólabraut, allir velkomnir.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13, allir velkomnir. Aðal-
fundur FEB Reykjavík verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 28.
febrúar og hefst kl. 15.30 í Ásgarði, Stangarhyl 4. Dagskrá samkvæmt
lögum félagsins. Félagsmenn hvattir til að fjölmenna og hafa með sér
félagsskírteini fyrir árið 2017.
Vesturgata 7 Glerskurður ( Tifffanýs) kl. 13-16, Vigdís Hansen.
Föstudagur: Enska, leiðbeinandi Peter R. K. Vosicky. Sungið við flygil-
inn kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson. Kaffiveitingar kl. 14-14.30.
Félagslíf
EDDA 6018022719 III
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Menntamál 1.-42. árg. ib., Saga
alþingis 1-5, Náttúrufræðing-
urinn, 1.-45. árg. ib., Iðunn 1-20,
ib., Veiðimaðurinn 1-86 tb. ób.,
Náttúrufræðingurinn 1.- 60. árg.
ób., Hlín 1.-44. árg. ib.,
Hæstaréttardómar 1920-1966
ib., Úrljótur, 1947-1968 ib.,
Ferðafélagið 1928-1978 ib.,
Skýrslur um landshagi á Íslandi
1-5 ib, Fjármálatíðindi 1.-21. árg.
ib., Hagskýrslur Íslands 1914-
1923 ib., Skýrnir 1905-1935 ib.
gott band, Kirkjuritið 1.-23. árg.
ib., Ársrit Skógræktarfélags
Íslands 1936-52, Tímarit
Verkfræðingaféags Íslands 1.-
21. árg. Eylenda 1-2, V-Skaftfel-
lingar 1-4.
Upplýsingar í síma
898 9475.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Faglærðir málarar
Tökum að okkur öll almenn
málningarstörf. Tilboð eða
tímavinna. Sími 696 2749 -
loggildurmalari@gmail.com
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og á mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
mbl.is
alltaf - allstaðar
mér kurteisi og að koma vel fram,
hugsa jákvætt og aldrei tala illa
um fólk. Þú fussaðir stundum yfir
mér, sem þú að sjálfsögðu máttir
gera, þú varst hrein og bein á ynd-
islegan hátt, eins og fólk á að vera.
Ég er stolt af því að vera dóttur-
dóttir þín, elsku amma og sömu-
leiðis stolt af því að halda kven-
leggnum við, ég kenndi mínum
börnum þín gildi og þau komu
vissulega vel út eins og þú veist
sjálf, Þau bæði skila sínu besta til
þín og eru þakklát fyrir sam-
veruna í gegnum lífið með þér, þú
varst einstök! Eva María, barna-
barnabarnabarnið, býr að því að
hafa eytt fyrsta árinu með þér og
Kara Lind er þakklát fyrir það,
sömuleiðis er Daníel Loki þakklát-
ur fyrir samverustundirnar með
þér og þá sérstaklega um síðast-
liðin jól. Við eigum eftir að sakna
þín en búum að visku þinni og um-
hyggju. Við sjáumst síðar og ég
veit að þú ert hérna og vakir yfir
okkur elsku ((langa)lang)amma,
þín verður sárt saknað, við elskum
þig og hugsum til þín á þessum
nýja stað sem þú ert á, í ljósinu.
Inga María, Kara Lind og
Daníel Loki.
Amma Ransí er dáin og það er
skrýtið, eins og innst inni hefði ég
búist við að hún yrði alltaf til stað-
ar. Að ég fengi um ókomna tíð
þessi símtöl þar sem ómþýð rödd
segði í spurnartón: Auja mín,
þetta er hún amma!
Hún amma mín var svo mild,
innileg og einlæg. Hún trúði á æv-
intýrin í sögunum eins og ég og
sagði mér svo margt skemmtilegt
um allt milli himins og jarðar, víð-
lesnari en margur bókmennta-
fræðingurinn, enda voru stöðugt
bornar í hana bækur af bókasafn-
inu í Sólheimum – hana sem hafði
einu sinni lært bókmenntir í
Bandaríkjunum, komst ég að fyrir
örfáum árum. Hún lifði sig inn í
sögurnar sem hún sagði mér, eins
og hún lifði sig inn í allar bækurn-
ar sem hún las á ýmsum tungu-
málum.
Hún sagði mér einhverju sinni
að mamma sín, Guðbjörg hjúkrun-
arkona á Akureyri, hefði notið
þess svo að lesa Hamsun og Dick-
ens. Það var gaman að sjá það fyr-
ir sér eins og svo margt sem hún
sagði mér og kom skemmtilega á
óvart.
Ég var búin að vera lengi á leið-
inni til hennar þegar hún veiktist.
Ég hafði ætlað að sitja hjá henni
part úr degi því hún hafði safnað
fyrir mig sögum af langalang-
ömmu minni fyrir norðan sem ég
ætlaði að skrifa um. Og allt í einu
er orðið of seint að fara til hennar.
Nú á ég aldrei eftir að geta setið
aftur hjá henni með tebolla – því
hún drakk alltaf te – og talað um
fólk sem eitt sinn var og hún hafði
svo gaman af að segja mér frá því
á milli okkar ríkti svo einlæg taug.
Mér hefur alltaf fundist þú svo lík
mér, sagði hún í síðasta skiptið
sem við hittumst. Og mér þykir
svo óendanlega vænt um að hún
hafi sagt það.
Hún ákvað sjálf að fá líknar-
meðferð frekar en að læknavísind-
in myndu hjálpa henni að tóra
lengur. Hún brosti mildilega þeg-
ar ég sat hjá henni eftir að hún
hafði tekið þessa ákvörðun og hélt
í hönd hennar. Mér fannst hún svo
styrk í ákvörðun sinni, eins veik-
burða og líkaminn var, og ég dáð-
ist að hugrekkinu. Það var skrýtið
að upplifa annan eins styrk á dán-
arbeði. Sú stund á eftir að lifa með
mér. Alltaf.
Takk fyrir fallega brosið þitt,
amma mín. Takk fyrir sögurnar og
alla tebollana sem við drukkum og
fasið þitt hlýja. Við áttum svo
margt eftir ósagt en það lifir, ein-
hvers staðar.
Auður Jónsdóttir.
Ég á erfitt með að trúa því að þú
sért farin, elsku amma. Einhvern
veginn, í bókstaflegri merkingu,
hefur þú alltaf verið á þínum stað,
fylgst með og verið þú. Einn af ör-
fáum föstum í tilverunni og heim-
sóknin til þín hefur verið eitt af
fáum stefnumótum sem aldrei
breytast – fyrr en nú. Nú kveð ég
þig í síðasta sinn, án þess að átta
mig fyllilega á að þú verðir ekki á
þínum stað í næstu Íslandsför. En
ég vil trúa því að þú verðir frelsinu
fegin – loksins frjáls – þó að þú
hefðir eflaust viljað halda áfram að
fylgjast með börnum þínum,
barnabörnum, barnabarnabörnum
og barnabarnabarnabarni. Innst
inni var ég þess fullviss að þú færir
aftur heim, ef einhver hefði haft
kjark, staðfestu og kraft til þess að
breyta því óhjákvæmilega hefði
það verið þú.
Elsku amma, hvíldu í friði.
Ari Klængur Jónsson.
Elskulega ævivinkonan mín er
dáin. Langri göngu hér á jörð er
lokið.
Frá barnsaldri höfum við þekst
jafn gamlar að árum og óslitin vin-
skapur alla tíð.
Það er af svo mörgu að taka.
Alltaf kom hún í afmælin mín, heim
að Möðruvöllum og síðast í 80 ára
afmæli mitt hér í Gullsmára. Þessi
hrífandi kona heillaði alla með ná-
vist sinni.
Saman vorum við í MA. Þaðan
lauk hún stúdentsprófi og hafði alla
tíð gott samband við bekkjarfélag-
ana sína, tók þátt í þeim félagsskap
fram á síðustu stundu. Ransý mín
var sérstök, vinamörg og gerði
garðinn grænni hvar sem hún var
og hvert sem hún fór. Við vorum
ákaflega tengdar, áhugamál þau
sömu, og væntingar líka. Skóla-
böllin voru okkar, þá skörtuðum
við okkar fínustu klæðum, svo um
var talað, og báru líka árangur, eft-
irsóttar á dansgólfið. Líka dönsuð-
um við á „Norðurland“ milli 3 og 5
á sunnudögum og fórum oft í
Gamla bíó á eftir, oft með strákum
úr skólanum. Þá var haldist í hend-
ur, þetta voru svo skemmtilegir
dagar. Þó að leiðir okkar lægju
ekki alltaf saman var vinátta okkar
óslitin alla tíð. Mikið var gaman að
heimsækja hana í Sólheimana þar
sem hún bjó með sínum góða bróð-
ur, Ara. Sorgleg voru veikindi
hennar, sem bundu hana við hjóla-
stól árum saman. Þegar einn sona
minna frétti að hún gæti ekki
gengið spurði hann mig hvort hún
gæti ekki dansað meir. Lífsgleði
hennar var hluti af henni sjálfri,
æðruleysi kom smátt og smátt
þegar ljóst var að hún varð að tak-
ast á við nýjan lífsstíl . Henni tókst
að lifa einn dag í einu og njóta alls
sem í boði var. Ótrúlegt hvað hún
gat tekið þátt í svo mörgu, lét fátt
standa í vegi og naut þess að vera
með vinum á hátíðarstundu, lét sig
ekki vanta og alltaf bar hún af. Fal-
leg, geislandi og naut þess að taka
þátt í sem flestu sem hún gat. Eng-
in furða hvað gleymdist oft að hún
var bundin við hjólastólinn. Ransý
mín var svo mörgum kostum búin,
þess vegna laðaðist fólk að henni
og hún gleymdist ekki. Lánið
hennar að eiga sína yndislegu fjöl-
skyldu og geta búið í sinni fallegu
íbúð. Ég veit að við hittumst aftur,
á öðrum stað, í blómabrekku tekur
hún á móti mér, þar getum við
haldið áfram þar sem frá var horf-
ið. Það eru forréttindi að fá eiga öll
þessi mörgu ár. Minningarnar
hrannast upp. Það væri efni í aðra
bók, ævin okkar. Mér finnst ævi-
vinkona hæfa svo vel. Það orðaval
kom frá henni. Jólakortin voru allt-
af skrifuð „þín ævivinkona Ransý“.
Fallegt og segir allt um samband
okkar. Fleiri orð held ég að ég hafi
ekki. Umvafin ást og kærleika
barnanna sinna og fjölskyldna
þeirra. Eftirsótt af vinum alla tíð.
Ég komst ekki til hennar fyrir
tveimur árum til að færa henni
bók, sem ég skrifaði um minningar
mínar, svo að sonur minn fór í
minn stað. Mér fannst hann vera
lengi í ferðinni. Ástæðan var að það
var svo gaman að koma til hennar.
Meðferðis hafði hann líka mynd
sem ég málaði. Hún hét „Þetta er-
um við, tvær rósir sem halla sér
hvor að annarri“. Minningar er
ekki hægt að taka frá okkur. Þess
vegna eru þær fjársjóðurinn okkar
sem eftir lifum. Elskulega Ransý
mín, þakka þér árin okkar.
Þín
Sigrún frá Möðruvöllum.