Morgunblaðið - 27.02.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Störukeppni virðist vera komin upp
á milli samningsaðila sem ræða nú
um framtíð kjarasamninga Alþýðu-
sambands Íslands við Samtök at-
vinnulífsins. Frestur ASÍ til þess að
segja samningunum upp rennur út á
morgun. Fulltrúar ASÍ í sérstakri
forsendunefnd þeirra og SA telja að
forsendur kjarasamninga séu
brostnar vegna þess að launastefna
þeirra hafi ekki verið stefnumark-
andi í launaþróun í landinu.
Það eru ekki síst hækkanir kjara-
ráðs á launum þeirra sem undir það
heyra sem skýra þessa afstöðu, sam-
kvæmt yfirlýsingum frá sambandinu
undanfarna daga.
Bíða eftir viðbrögðum
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir í samtali við Morgunblaðið að
eitthvað muni skýrast innan sam-
bandsins í dag, fundir verði haldnir
víða til þess að móta afstöðu aðild-
arfélaga til framhaldsins, sem síðan
muni birtast í „einhverjum ákvörð-
unum á miðvikudaginn“, en þá koma
formenn aðildarfélaganna saman og
fara yfir málin.
Gylfi segir jafnframt að ASÍ sé að
bíða eftir einhverjum viðbrögðum
frá SA eða stjórnvöldum.
Eftirspurn eftir ró og yfirvegun
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segist hrein-
lega ekki vera sammála því að for-
sendubrestur sé til staðar.
„Kjaraviðræður eru samningar
um uppbyggingu lífskjara fólks og
um jákvæða þróun samfélagsins. Ef
við skoðum hvað gerst hefur undan-
farin þrjú ár, þá hefur kaupmáttur
aukist um 20% og kaupmáttur
lægstu launa um 25%. Það er dágóð-
ur árangur, sama á hvaða kvarða það
er mælt,“ segir Halldór Benjamín.
Jafnframt segir hann eftirspurn
vera eftir ró og yfirvegun í samfélag-
inu og að eftir kollhnísa undanfarin
ár sé mikilvægt að ná stöðugleika.
„Þeim stöðugleika verður ekki náð
með uppsögn kjarasamninga. Til
þess að tryggja raunverulegan lífs-
kjarabata þurfum við að standa vörð
um þá miklu kaupmáttaraukningu
sem orðið hefur á undanförnum ár-
um og það gerum við ekki með því að
fara í enn einn kollhnísinn á vinnu-
markaði.“
Halldór segir það jafnframt óum-
deilt að launahækkanir síðustu
kjarasamninga hafi verið mjög mikl-
ar og sennilega meiri en innistæða
var fyrir í íslensku atvinnulífi, sem
birtist meðal annars í þverrandi
samkeppnishæfni útflutningsfyrir-
tækja.
Deilt um forsendubrestinn
Framtíð kjarasamninganna ræðst á morgun Aðildarfélög ASÍ funda í dag
Framkvæmdastjóri SA segir að óskað sé eftir ró og yfirvegun á vinnumarkaði
Morgunblaðið/Eggert
Vinnumarkaður Framtíð samninga
er í höndum aðildarfélaga ASÍ.
Halldór B.
Þorbergsson
Gylfi
Arnbjörnsson
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Við fáum eðlilega mikið af símtölum til okkar frá fé-
lagsmönnum sem hafa lent í holum og hafa áhyggjur af
ástandinu. Það virðist vera að vegir og götur víða um
land séu að koma mjög illa undan vetri og það er eins og
þetta sé allt í einu að spretta fram þessa dagana,“ segir
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB), í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir mjög liggja á því að veghaldarar um allt
land, bæði Vegagerðin og fulltrúar sveitarfélaga, „gangi
hratt til verka við að laga verstu holurnar og merki þær
sem ekki er hægt að ganga í að laga.“
Reykjavíkurborg sendi í gær frá sér tilkynningu þar
sem íbúar voru hvattir til þess að tilkynna um holur í
gatnakerfinu. Þá segir á vef Vegagerðarinnar að mikið
hafi borið á slitlagsskemmdum að undanförnu, sem ein-
ungis sé hægt að bregðast við með ófullkomnum bráða-
birgðaviðgerðum. Sérstaklega er nú varað við vegkafl-
anum á milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur, þar
sem hætta er á slitlagsblæðingum.
Erum að horfa á afleiðingar lélegs viðhalds
„Það er bara vel að Reykjavíkurborg skuli vera að
biðja fólk um að tilkynna, en best hefði verið að losna við
þessar holur og að bæði viðhald og slitlagsvinna hefði
verið með þeim hætti að við værum ekki að upplifa þetta.
Það blasir við að við erum að fá í andlitið þennan skort á
viðhaldi. Þetta er að lenda núna á borgurunum og þess
vegna leggjum við áherslu á að veghaldarar séu mjög
vakandi yfir ástandinu og grípi skjótt til aðgerða.“
Hann segir FÍB hafa átt fund með Sigurði Inga Jó-
hannssyni samgönguráðherra í gærmorgun og að
fulltrúar félagsins hafi lagt áherslu á að bæta viðhald
vegakerfisins, þar sem skortur á viðhaldi geti haft áhrif á
umferðaröryggi. Ástand vegakerfisins sé þannig að fólk
eigi oft fullt í fangi með að ráða við bifreiðar sínar.
„Það er búið að vera að skera niður framlög til sam-
gönguframkvæmda allt frá hruni og við höfum ekki enn
náð í skottið á okkur hvað varðar hlutfall landsfram-
leiðslu sem varið er til viðhalds vega,“ segir Runólfur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brotholur Veðráttan að undanförnu hefur leikið slitlag vega um allt land grátt, en myndin er tekin á Mýrargötu.
Holur og slitlagsskemmdir
spretta fram um allt land
Framkvæmdastjóri FÍB segir viðhaldi vega ábótavant
Morgunblaðið/Hari
Varúð Þeir sem keyra í holur verða oft fyrir tjóni.
„Ef veðrið helst skaplegt í nótt ætt-
um við að ná ágætri loðnuveiði á
morgun,“ sagði Ásgrímur Ingólfs-
son, skipstjóri á Hornafjarðarskip-
inu Ásgrími Halldórssyni SF-250, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Hann var þá skammt vestan
við Vestmannaeyjar. Nú er loðnan
farin að ganga vestur með landinu og
mörg uppsjávarskip – íslensk og
færeysk – eru því við Eyjarnar og
eins út af Vík í Mýrdal. Þá voru
nokkur skip inni í Vestmannaeyjum,
þar sem þau hafa beðið af sér brælu
síðustu daga.
„Það lóðar illa á tækjum í myrkr-
inu. Við verðum því alveg rólegir í
nótt og höldum okkur hér í vari fyrir
suðaustan-áttinni uns fer að birta í
fyrramálið. Þá köstum við út trolli. Í
dag voru menn á skipunum sem eru
hérna að fá ágæt köst, stundum allt
að 400 tonn. Útlitið er því ágætt, en
við tökum um 1.000 tonn í þetta skip
og veiðum bara til manneldis. Aflann
siglum við svo með á Höfn þangað
sem er um tólf tíma stím héðan frá
Vestmannaeyjum,“ sagði Ásgrímur.
Eitthvað er um að útgerðarmenn
ætli að treina sér kvótann uns loðnu-
hrognin hafa náð nægum þroska svo
þau megi frysta og selja á Japans-
markað. Til að svo megi verða þarf
hrognafylling að vera 24% af þyngd
fisksins en í dag er fyllingin ekki
nema 18 til 21%.
„Við þurfum að bíða í svona viku
til tíu daga uns loðnan er komin með
þessa miklu hrognafyllingu sem ger-
ir fiskinn og afurðir af honum svo
verðmætar,“ segir Ásgrímur Ing-
ólfsson. sbs@mbl.is
Kasta út loðnu-
trollinu í birtingu
Tíu dagar enn í góða hrognafyllingu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Loðnuskip Ásgrímur Halldórsson
við bryggju á Höfn í Hornafirði.
Til stendur að opna í dag vefsíðu
þar sem hægt verður að finna upp-
lýsingar um ferðakostnað alþingis-
manna. Miðað er við að upplýsingar
þessar nái tíu ár aftur í tímann.
Fyrsta efnið verður sett inn í dag
og síðan bætt við eftir því sem unn-
ið er úr fyrirliggjandi gögnum um
þetta.
Fundað var um málið í forsætis-
nefnd Alþingis í gær. Að sögn Stein-
gríms J. Sigfússonar, forseta Al-
þingis, voru formenn þingflokka á
því að birta upplýsingarnar á vefn-
um áratug aftur í tímann og sam-
kvæmt því var málið unnið áfram.
Seint í gærkvöld birti Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður Mið-
flokksins, upplýsingar um akstur
sinn. Á þeim tæpum sjö árum sem
Sigmundur Davíð hefur verið þing-
maður er akstur hans sagður alls
145.000 km eða um 21.000 km á ári.
Segist Sigmundur Davíð ekki hafa
farið fram á akstursgreiðslur nema í
sérstökum tilvikum. sbs@mbl.is
Upplýsa
um kostn-
að í tíu ár