Morgunblaðið - 27.02.2018, Síða 15
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Húsavík | Það er ekki vanalegt að merar kasti
í febrúar, en það gerðist í nýja hesthúsahverf-
inu á Húsavík nýverið.
Þá eignaðist merin Hátíð frá Hrafnagili lítið
folald sem hefur vakið mikla lukku og prýðir
mikið nýja hesthúsið hjá Einari Víði Einars-
syni, sem er eigandi Hátíðar. Hann átti á engu
von þegar hann keypti hana 20. mars á sl. ári
og ætlaði með hana á landsmótið á komandi
sumri.
Í vetur kom í ljós að hún var ekki einsömul
og frekar þung á sér.
Litla folaldið, sem er meri, hefur fengið
nafnið Góa, en hún fæddist á konudaginn. Ein-
ar Víðir segir að Hátíð fari ekki á landsmótið í
sumar þar sem hún verði að hugsa um Góu.
Hún muni hafa það rólegt í staðinn fyrir að
keppa.
Tíðar heimsóknir í hesthúsið
Kristján Kárason á Húsavík, sem á hesta hjá
Einari Víði, var staddur í hesthúsinu þegar
ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði og
vel fór á með honum og mæðgunum, eins og
sjá má.
Þetta hefur orðið til þess að heimsóknir í
hesthúsið hafa aukist enda litla folaldið, hún
Góa, mikið augnayndi.
Hátíð ekki á landsmótinu
Góa kom í heiminn á Húsavík á konudaginn
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
Framboðslisti Samfylkingarinnar
fyrir borgarstjórnarkosningar í
vor var samþykktur á fundi um
helgina. Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri leiðir listann en hann
varð efstur í flokksvali sem haldið
var fyrr í mánuðinum.
Fram kemur í tilkynningu frá
flokknum að listinn er skipaður 20
körlum og 26 konum. Meðal fram-
bjóðenda eru Guðrún Ásmunds-
dóttir leikkona, Stefán Benedikts-
son og Ellert B. Schram, fyrr-
verandi alþingismenn, Margrét
Pálmadóttir kórstjóri og í heiðurs-
sætinu er Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, fyrrverandi borgar-
stjóri.
Í efstu sætum listans eru eft-
irtalin:
1. Dagur B. Eggertsson, læknir og
borgarstjóri
2. Heiða Björg Hilmisdóttir,
borgarfulltrúi
3. Skúli Þór Helgason
borgarfulltrúi
4. Kristín Soffía Jónsdóttir
borgarfulltrúi
5. Hjálmar Sveinsson
borgarfulltrúi
6. Sabine Leskopf, túlkur og
löggiltur skjalþýðandi
7. Guðrún Ögmundsdóttir,
fyrrverandi alþingismaður
8. Magnús Már Guðmundsson
borgarfulltrúi
9. Ragna Sigurðardóttir
læknanemi
10. Ellen Jacqueline Calmon,
fyrrverandi formaður ÖBÍ
Framboðslisti Samfylkingarinnar í
borgarstjórnarkosningunum samþykktur
Morgunblaðið/Hari
Efst Frambjóðendurnir sem eru í fimm efstu sætum á lista Samfylkingarinnar.
Heiða Björg Hilmisdóttir hefur ákveðið að gefa áfram
kost á sér sem varaformaður Samfylkingarinnar. Lands-
fundur flokksins fer fram um næstu helgi en komið hef-
ur fram að Logi Már Einarsson er áfram í kjöri sem for-
maður.
„Ég hef verið varaformaður Samfylkingarinnar í lið-
lega eitt ár og á þeim tíma hefur sannarlega gengið á
ýmsu, bæði í íslenskum stjórnmálum og hjá flokknum
okkar. Þetta hefur verið krefjandi tími, en afar gefandi,
enda sjaldan skemmtilegra í stjórnmálum, en þegar
samstaða og eindrægni ríkir, árangur starfsins verður
sýnilegur og hreyfingin eflist,“ segir Heiða Björg m.a. í
yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum í gær.
Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram 2.-3. mars á Icelandair Hotel
Natura, gamla Loftleiðahótelinu. Formaður og varaformaður verða kosnir
síðdegis á föstudag en í önnur trúnaðarstörf á laugardeginum, eins og til
embættis gjaldkera, ritara, formanns framkvæmdastjórnar og í fram-
kvæmdastjórn, verkalýðsráð og flokksstjórn.
Gefur áfram kost á sér sem varaformaður
Heiða Björg
Hilmisdóttir
Aðalfundur ásamt árshátíð Samtaka ungra bænda var
haldinn 24. febrúar sl. í Vatnsholti í Flóa. Á fundinum var
kosinn nýr formaður samtakanna, Jóna Björg Hlöðvers-
dóttir frá Björgum í Þingeyjarsýslu. Einar Freyr Elínar-
son, fráfarandi formaður, hafði lokið kjörtímabili sínu og
gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Jafnframt hafði Bjarni
Rúnarsson lokið sínu kjörtímabili og gaf ekki kost á sér
til endurkjörs. Auk Jónu Bjargar skipa nýja stjórn þeir
Guðmundur Bjarnason, Birgir Örn Hauksson, Jón Elvar
Gunnarsson og Jóhannes Kristjánsson.
Í fréttatilkynningu frá samtökunum segir að aðalfund-
urinn hafi verið með hefðbundnu sniði „með miklu mál-
efnastarfi og öflugum umræðum“. Ályktanir voru samþykktar um t.d.
plastumbúðir, nýliðunarstuðning, menntamál og nauðsyn þess að hafa öfl-
ugan búrekstur við Landbúnaðarháskólann. Jafnframt var samþykkt að
halda aðalfund og árshátíð að ári á Norðurlandi, á félagssvæði Félags
ungra bænda á Norðurlandi.
Jóna Björg fer fyrir ungum bændum
Jóna Björg
Hlöðversdóttir
Aðrar upplýsingar
Aðalfundur Landsbankans hf. verður haldinn miðvikudaginn
21. mars 2018 kl. 17:00, í útibúi Landsbankans við Austur-
stræti 11 í Reykjavík.
Landsbankinn • landsbankinn.is • 410 4000
Aðalfundur
Landsbankans 2018
Hluthafar eiga rétt á því að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram
ályktunartillögur. Tillögur og óskir um að koma máli á dagskrá aðalfundar þurfa
að vera skriflegar og berast bankanum fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 6. mars 2018.
Endanleg dagskrá fundarins og gögn er lögð verða fyrir aðalfundinn verða aðgengi-
leg á vefsíðu bankans á slóðinni https://bankinn.landsbankinn.is/fjarfestar/adalfundir/
miðvikudaginn 7. mars 2018.
Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna skriflega um framboð
til bankaráðs skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Tilkynna skal skriflega um
framboð til bankaráðs fyrir kl. 16:00 föstudaginn 16. mars 2018, til skrifstofu banka-
stjóra, Austurstræti 11, Reykjavík. Upplýsingar um frambjóðendur til bankaráðs
verða lagðar fram og birtar á vef bankans tveimur dögum fyrir aðalfundinn.
Eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé í bankanum að frádregnum eigin
hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg
á fundarstað frá kl. 16:30 á fundardegi. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa
skriflegum umboðum við inngang.
Reykjavík, 27. febrúar 2018
Bankaráð Landsbankans hf.
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda
lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á næstliðnu
reikningsári.
4. Tillaga bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum.
6. Kosning bankaráðs.
7. Kosning endurskoðanda.
8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
9. Heimild til kaupa á eigin hlutum.
10. Önnur mál.
Drög að dagskrá