Morgunblaðið - 27.02.2018, Page 18
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bæjarstjórn Fljótsdalshér-aðs hefur samþykkt aðkynna hugmyndir um nýt-ingu vindorku fyrir íbúum
á Út-Héraði. Þar verði fyrirtækjum
sem sýnt hafa áhuga á að koma upp
vindrafstöðvum gefinn kostur á að
kynna hugmyndir sínar.
Málið var rætt í tengslum við
samning sem Orkusalan vill gera við
sveitarfélagið um rannsóknir á vind-
orku í landi Hóls í Hjaltastaðaþinghá
en Fljótsdalshérað er eigandi jarðar-
innar. Drög að samningi um að leyft
verði að setja upp könnunarmöstur í
þessum tilgangi eru til umfjöllunar í
stjórnkerfi bæjarins. Samningar
munu vera í burðarliðnum við fleiri
landeigendur.
Menn eru jákvæðir
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, segir að eitt eða tvö
önnur fyrirtæki hafi sýnt áhuga á að
nýta vindorku á svæðinu. „Menn eru
jákvæðir fyrir þessu en vilja fá um-
ræðu um málið þannig að íbúar í nær-
samfélaginu verði vel upplýstir um
þær hugmyndir sem uppi eru og hafi
tækifæri til að koma spurningum eða
athugasemdum á framfæri,“ segir
Björn. Stefnt er að því að halda fund-
inn í marsmánuði.
Hugmyndir um einstaka vind-
rafstöðvar eða stærri vindorkuver
hafa komið upp víða um land á síð-
ustu árum. Sum sveitarfélög hafa
verið í vandræðum með að svara slík-
um óskum. Nýting vindorku lýtur að
mörgu leyti öðrum lögmálum en nýt-
ing vatnsafls og jarðvarma og áhrif
hennar á umhverfið eru önnur. Þann-
ig geta sjónræn áhrif auðveldlega náð
langt út fyrir mörk viðkomandi land-
eiganda og sveitarfélags.
Í nýju aðalskipulagi fyrir Snæ-
fellsbæ sem auglýst hefur verið er
sérstaklega fjallað um nýtingu vind-
orku. Skýrsla verkfræðistofunnar
Eflu um forathugun og stefnumótun í
vindorkumálum fylgir greinargerð
um aðalskipulagið.
Starfshópur fer yfir málin
Kallað hefur verið eftir því að
stjórnvöld móti reglur um hvernig
skuli fara með nýtingu vindorku við
skipulagsgerð sveitarfélaga. Á fæst-
um stöðum hefur verið tekið á málum
í aðalskipulagi. Björn Ingimarsson
bendir á að mörg sveitarfélög muni
fara í endurskoðun aðalskipulags í
upphafi nýs kjörtímabils og reiknar
með að það verði gert á Fljótsdals-
héraði.
Í stefnuyfirlýsingu núverandi
ríkisstjórnar kemur fram að setja
þurfi lög um vindorkuver og vinna
með sveitarfélögum að leiðbeiningum
um skipulagsákvarðanir og leyfisveit-
ingar. Jafnframt er boðuð orkustefna
til langs tíma. Á vegum umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins starfar hópur
sem hefur það hlutverk að greina
hvort fjallað sé nægjanlega vel um
vindorkuver í lögum og reglugerðum.
Samkvæmt upplýsingum ráðuneyt-
isins er hópurinn meðal annars að at-
huga framkvæmda- og starfsleyfi fyr-
ir vindrafstöðvar. Málefnið er á
sviðum tveggja ráðuneyta, atvinnu-
og nýsköpunarráðuneytis auk um-
hverfisráðuneytisins. Stefnt er að því
að starfshópurinn skili fljótlega
greinargerð og tillögum um breyt-
ingar á lögum og reglugerðum.
Þegar niðurstöður liggja fyrir
mun umhverfis- og auðlindaráðherra
ákveða framhald málsins, samkvæmt
upplýsingum ráðuneytisins.
Skipulagsstofnun vinnur einnig
að gerð leiðbeininga um skipulagsmál
við vindorkunýtingu. Stofnunin hefur
sömuleiðis tekið saman stutta grein-
argerð um málið sem finna má á
heimasíðu stofnunarinnar.
Þörf á umræðu um
nýtingu vindorku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafið Vindmyllurnar tvær við Þjórsá hafa reynst vel. Myllurnar í fyrir-
huguðum vindorkugarði, Búrfellslundi, verða mun stærri og afkastameiri.
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Síðustu fréttirúr Dan-mörku eru
nýstárlegar af
ýmsum ástæðum.
Ríkisútvarpið les
út úr Berlingske
vísbendingar um
það sem Lökke forsætisráð-
herra ætlar að kynna nú í vik-
unni og segir blaðið það bylt-
ingarkenndar hugmyndir.
Stærsti andstöðuflokkurinn,
jafnaðarmenn, hefur sagst
styðja fyrirætlanir ríkisstjórn-
arinnar. Það ber nýrra við þeg-
ar viðurkennd eru „gettó“ í
dönskum borgum, þar sem sér-
stök lögmál gildi. Og við-
brögðin við því sem nú er loks
viðurkennt koma enn meir á
óvart.
Sænskir nágrannar Dana
brugðust illa við ýmsum frétt-
um um það síðustu misseri að
hjá þeim væru borgarhverfi
sem lytu öðrum lögmálum en
önnur hverfi Svíþjóðar. Fullyrt
var að beiðnum frá almenningi
um aðstoð sjúkra-, slökkvi- og
lögregluliðs lytu þar lögmálum
sem hljóta að fella öryggi borg-
ara þar um marga flokka, ef
rétt er. Viðbragðstími þar væri
miklu lengri en annars staðar,
því að hjálparliðið teldi sér
ekki óhætt að mæta nema með
„ofurefli liðs“. Sænsk yfirvöld
höfnuðu „sögusögnum“ um
„gettó“ sem ósönnum og rætn-
um. En staðreyndirnar virðast
tala öðru máli. Danir eru opn-
ari í þessum efnum en frænd-
urnir, enda er það í samræmi
við danskan kúltúr. En frétt-
irnar sem berast nú koma
óneitanlega á óvart. Í fréttum
„RÚV“ sagði:
„Danska ríkisstjórnin
áformar að taka upp tvöfalt
þyngri refsingar fyrir brot sem
framin eru í skilgreindum
vandræðahverfum í borgum og
bæjum landsins, svokölluðum
gettóum, þar sem fátækt fólk
býr og fólk sem á við marg-
vísleg félagsleg vandamál að
stríða, og glæpatíðni er há.
Danska blaðið Berlingske
greinir frá þessu og segir þetta
lið í áætlun ríkisstjórnarinnar
um aðgerðir sem ætlað er að
fækka glæpum í gettóunum.
Haft er eftir Søren Pape
Poulsen, dómsmálaráðherra,
að þessari hertu refsilöggjöf sé
ætlað að stuðla að auknu ör-
yggi íbúa þessara hverfa.
Nauðsynlegt sé að tryggja ör-
yggi fólks alstaðar í Dan-
mörku, óháð búsetu. Auk þess
að þyngja refsingar fyrir glæpi
gerir áætlun stjórnvalda ráð
fyrir að löggæsla verði aukin til
muna í þessum hverfum, segir í
frétt Berlingske.
Allt eftirlit verður hert og
lögregla á að standa fyrir
minnst 25 stóraðgerðum gegn
glæpastarfsemi í
hverfunum á þessu
ári og því næsta.
Þá vill ríkis-
stjórnin að lög-
reglan fari út í sér-
stakar aðgerðir til
að finna og afhjúpa
lykilpersónurnar í skipulagðri
glæpastarfsemi í gettóunum.
Trine Bramsen, talskona Jafn-
aðarmanna, stærsta stjórnar-
andstöðuflokksins á danska
þinginu, segist í samtali við
Berlingske jákvæð í garð þess-
ara áforma og bendir á að
flokkur hennar hafi áður farið
fram á að löggæsla verði aukin
í þessum hverfum.“
Það er einnig upplýst að lög-
regla hafi þegar rýmri vald-
heimildir til aðgerða í þessum
hverfum en öðrum, sem er
merkileg og sterk vísbending
um hversu alvarlegt málið er
orðið. Í fréttunum er talað um
„vandræðahverfi,“ „hverfi fá-
tæklinga“ og „hverfi þar sem
fólk á við margvísleg félagsleg
vandamál að stríða“. Danmörk
(rétt eins og Svíþjóð) hefur
lengi verið talin í fremstu röð
um jöfnuð og félagsleg réttindi.
Hvers vegna er þannig komið
að hægt sé að fjalla um fjöl-
mörg hverfi með orðalagi sem
helst minnir á aðvaranir til að
hræða ferðamenn frá því að
fara inn í Harlem í New York
fyrir áratugum?
Það er ekkert athugavert við
það að taka fast á ástandi í ein-
stökum hverfum þar sem um-
gengni við lög hefur farið úr
böndum og öryggi íbúa því orð-
ið veikara en annars staðar. En
hugmyndir um að heimildir um
refsiþyngd í lögum verði mis-
munandi eftir borgarhverfum
landsins koma mjög á óvart. Og
undrunin vex í réttu hlutfalli
þegar rætt er í alvöru um það,
að refsing fyrir misgjörð geti
orðið helmingi þyngri sé hún
framin í „skilgreindu“ hverfi,
en fyrir sama brot í öðrum
hverfum. Er með nokkrum
ólíkindum fái slíkt staðist
stjórnarskrá Danmerkur.
Því hefur reyndar verið kom-
ið í lög hér að þyngja megi refs-
ingar verulega ef sérstaklega
skilgreindir „hatursglæpir“
koma við sögu. Valið á þeim
lýtur ekki síst tískubólum og
því væri við hæfi að bæta „me
too“ við réttarheimildirnar.
Ekki hefur 65. grein stjórn-
arskrárinnar verið breytt til að
veita undanþágu til að fylgja
þessari tísku hér á landi.
Það er þekkt að æðsti dóm-
stóll Danmerkur virðist ætla
löggjafanum mikið rými til að
meta það hvort ný lög samrým-
ist stjórnarskrá. Það gerðu ís-
lenskir dómstólar einnig lengst
af, en hafa á síðari tímum sýnt
meiri styrk í slíkum efnum.
Hreinskilin dönsk
umræða með heit-
strengingum um
öflug viðbrögð
vekur mikla athygli}
Horfst í augu
við staðreyndir
A
llt of oft gleymist að þakka fyrir
það sem vel er gert. Því væri
ánægjuefni að geta þakkað ríkis-
stjórninni fyrir vel unnin störf, en
þegar litið er yfir feril hennar
sést að það er ómögulegt, því stjórnin hefur
nánast ekkert gert.
Og þó. Hún hefur horfið frá stefnu fyrri
stjórnar um að lækka almennan virðisauka-
skatt. Hún hefur hægt á markmiðum fyrri rík-
isstjórnar um að minnka hlut mengandi elds-
neytis. Hún hefur ákveðið að hækka fjár-
magnstekjuskatt um 10%. Hún hefur dregið
úr aðhaldi í ríkisfjármálum, þannig að pen-
ingastefnunefnd Seðlabankans treystir sér
ekki til þess að halda áfram vaxtalækk-
unarferlinu sem stóð allt síðasta ár og hafði
boðað framhald á miðað við fyrri fjármála-
áætlun. Og hún ákvað að hafa kampavín í lægra skatt-
þrepi en bjór, enda ekki að ástæðulausu nefnd kampa-
vínsstjórnin.
Ekkert af þessu er ástæða til þess að þakka. Ráðherr-
arnir hljóta samt að hafa gert eitthvað fleira en mæta sem
auglýsingaefni fyrir einkafyrirtæki. En þó að grannt sé
leitað finnst ekkert. Og það er einmitt ljósi punkturinn.
Ég vil því þakka ríkisstjórninni fyrir verkleysi. Öllum
er ljóst að þessi ríkisstjórn var mynduð utan um fortíðina.
Stefnt er að því að lækka aðgangseyrinn að náttúru-
auðlindum og gæta þess vel að markaðslögmálin fái ekki
að ráða verðinu. Stefnt er að því að draga Ísland smám
saman út úr samstarfi Evrópuþjóða og fylgja feigðarflani
Breta. Stefnt er að því að tryggja að hags-
munir neytenda verði fyrir borð bornir í land-
búnaðarmálum. Verkleysi ríkisstjórnarinnar
er þess vegna lofsvert.
Ríkisstjórnin setti fram starfsáætlun þings-
ins fyrir vorþing og sú áætlun er efnismesta
skjal sem frá stjórninni hefur komið. Á þing-
málaskránni eru fjölmörg mál sem höfðu þeg-
ar verið lögð fram af fyrri ríkisstjórn á fyrra
þingi eða voru tilbúin til framlagningar af
hálfu Viðreisnarstjórnarinnar og virðist ekki
vera mikill ágreiningur um. Ríkisstjórninni er
samt um megn að prenta upp þau mál sem eru
þegar tilbúin. Auðvitað er ekki tími til slíks,
þegar ríkisstjórnin og þingmenn hennar eru
bókstaflega úti að aka. Næstu verkefni full-
trúa ríkisstjórnarinnar er að taka saman akst-
ursskýrslur þingmanna, þar sem ríkisstjórnin
sýnir mikinn metnað með því að fara allt aftur til 1. jan-
úar 2018.
Sumir hafa áhyggjur af því að lítill tími gefist til þing-
starfa ef einhver mál koma loksins fram. Þær áhyggjur
eru óþarfar. Þingmenn VG hafa í áranna rás lagt þann
skerf helstan til þingstarfa að tala sem allra mest. Nú
þegar þau eru komin í ríkisstjórn hafa þau ekkert að
segja (þó að það hafi ekki alltaf haldið þeim frá pontunni).
Því losna fjölmargir dagar sem ella hefðu verið undir-
lagðir í ræður þeirra. Tíminn er nægur, þó að það sé sem
betur fer ekkert um að ræða frá stjórninni.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Það er svo fátt, ef að er gáð …
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Hugmyndir um nýtingu vind-
orku með uppsetningu vind-
orkugarða hafa verið kynntar
víða um land. Hugmyndirnar eru
mislangt á veg komnar.
Landsvirkjun hefur hugað
sérstaklega að því að beisla
vindinn. Fyrirtækið hefur starf-
rækt tvær vindrafstöðvar á Haf-
inu við Búrfell í nokkur ár og
kynnt hugmyndir um alvöru
vindorkugarða þar og við
Blönduvirkjun. Garðurinn við
Blöndu fékk grænt ljós hjá
þriðju verkefnisstjórn um
rammaáætlun en garðurinn við
Búrfell var settur í biðflokk.
Áætlunin hefur ekki verið af-
greidd frá Alþingi.
Fyrirtækið Biokraft setti upp
tvær vindmyllur í Þykkvabæ.
Áform fyrirtækisins um að end-
urnýja myllurnar vegna þess að
önnur eyðilagðist í eldi hafa
mætt andstöðu í sveitarfé-
laginu. Stærri áform fyrirtæk-
isins eru í undirbúningsferli.
Áætlanir um
vindorkugarða
LANDSVIRKJUN