Morgunblaðið - 27.02.2018, Page 31
Verðlaunin fyrir bestan leik karl-
leikara voru veitt Anthony Bajon
fyrir kvikmyndina La priére.
Hefðbundin tveggja flokka kyn-
skipt leikaraverðlaun eru reyndar
áhugavert fyrirbæri í ljósi þess að
ólíkt því sem tíðkast Hollywood, þá
leikur kynlífsþerapistinn og trans-
konan Hanna Hoffmann sjálfa sig í
Touch Me Not. Þegar transfólk er
farið að leika sjálft sig, í stað þess
að vera leikið af ýmist karli eða
konu, þá er spurning hvort ekki sé
of þröng skilgreining að hafa bara
tvö kyn til að verðlauna á slíkum
hátíðum eða hvort verðlaun fyrir
leik eigi að vera kynskipt yfirhöfuð.
Tilfinningin var að það væri orðið
þreytt. Leikaraval Touch Me Not
er til þess fallið að draga upp á yf-
irborðið ýmsa þætti spurningar-
innar um nánd, snertingu og mann-
réttindindi. Ein áhugaverðasta
persóna myndarinnar er leikin af
vefhönnuðinum fjölfatlaða Christi-
an Bayerlein sem lifir mjög áhuga-
verðu og gefandi lífi vegna þess að
hann fær einstaklingsmiðaða að-
stoð þar sem hann fer sjálfur með
stjórn eigin lífs. Aðstoðin miðast
við hans eigin þarfir og ekki er
ætlast til að hann aðlagi líf sitt að
dagskrá stofnunar.
Tilfinning fréttaritara fyrir hlut-
verki Tómasar í kvikmyndinni er
að hann sé einskonar framlenging
á rannsakandi augnaráði leikstjóra,
en hún tekur fram strax í byrjun
myndar að myndgerðin sé rann-
sóknartæki á fyrirbærinu nánd.
Myndin er á sama tíma einhvers
konar sálgreinimeðferð og er per-
sóna Tómasar sú sem virðist um-
breytast hvað mest í ferlinu. „Ég
vona að kvikmyndin opni rými fyrir
sjálfskoðun og umbreytingu, að
hún hristi upp í hugmyndum áhorf-
anda um nánd. Ég vona að hún
komi af stað umræðu, næri um-
burðarlyndi og tjáningarfrelsi og
víkki út mengi þeirra sem fá að
taka þátt. Ég vona að myndin
styrki einstaklinga sem hafa orðið
fyrir barðinu á fordómum,“ sagði
Pintilla í samtali við nettímaritið
Women and Hollywood í vikunni.
Við erum ekki þau einu sem
vildu handritin heim
Leikaranum Bajon var ekki spáð
sigri heldur Gael Garcia Bernal
fyrir leik sinn í mexíkósku mynd-
inni Museo eftir Alonso Ruizpal-
acios. Kvikmyndin hreppti þess í
stað Silfurbjörninn fyrir besta
handritið. Hún er fyrir margra
hluta sakir merkileg. Hún fjallar
um tvo æskuvini sem ákveða að
stela fornum munum Maya-indjána
úr mannfræðisafninu í Mexíkóborg
og byggist á sannsögulegum at-
burðum. Það sem kemur strax upp
í huga blaðamanns eru umræður
þessa dagana varðandi senu í vís-
indaskáldsögunni Black Panther
sem frumsýnd var nýlega í kvik-
myndahúsum. Í myndinni er fjallað
um afríska prinsinn T’Challa sem
snýr aftur til heimalandsins Wak-
anda til að taka við konungssætinu.
Senan sem Museo minnir á sýnir
T’Challa í safni ekki ólíku British
Museum í London sem hýsir dýr-
gripi sem Bretar tóku ófrjálsri
hendi á nýlendutímanum. T’Challa
horfir á öxi í glerskáp og leiðréttir
leiðsögumanninn þegar hann fer
ranglega með að öxin komi frá
öðru fólki í Afríku en af Wakanda-
ættbálknum. Fer svo að lokum að
T’Challa gengur út af safninu með
öxina sem upphaflegir eigendur
endurheimta. Í Museo er farið inn
á þessa heitu umræðu um safn-
eignir fyrrverandi nýlenduherra
með því að spyrja hvers vegna einn
þjófnaður sé fordæmdur á meðan
hinn upprunalegi sé það ekki.
Annars er af ótal mörgu að
segja, enda er þetta marglaga há-
tíð þar sem færasta fólk í mörgum
kimum fær að sýna verk sín og
eiga í samtali við kollega og áhorf-
endur. Nokkrir af helstu kvik-
myndaleikstjórum Þýskalands
höfðu tekið sig saman í undanfara
hátíðarinnar og kallað á nýja sýn
fyrir hátíðina þegar stjórnandi
hennar Dieter Kosslick hættir árið
2019. Þeir vilja fleiri þekkt nöfn á
henni, eins og á kvikmyndahátíð-
unum í Cannes og Feneyjum. Það
er hinsvegar skoðun blaðamanns
að styrkur hátíðarinnar sé einmitt
falinn í minna áberandi kimum
hennar, þar sem verið er að skoða
formið og veita nýjum sjónar-
hornum brautargengi. Ef til vill má
finna ástæðu hræðslu þessara vel
þekktu leikstjóra í vali dómnefndar
í ár. Hún hallast ekki nógu mikið
að meginstraumnum eða viðteknum
hugmyndum um gæði.
Ljósmynd/Hulda Rós Guðnadóttir
Rauði dregillinn Tómas Lemaquis stillti sér upp fyrir myndatöku þegar hann mætti á sýningu Touch Me Not.
„Þetta er bara ótrúlega góð tilfinning,“ sagði hann í samtali við mbl.is um Gullbjörninn sem kvikmyndin hreppti.
Ljósmynd/Hulda Rós Guðnadóttir
Viðtöl Tómas, fyrir miðju, og Georg Georgi umboðsmaður hans, til vinstri,
ræddu við blaðamenn um þátttökuna í verðlaunakvikmynd Adina Pintilla.
Ruth Beckermann Filmproduktion
Uppgjör Kvikmynd Ruth Beckermann, Waldheims Walzer, hlaut Glashütte-
heimildarkvikmyndaverðlaunin. Í henni er uppgjör við nasismann.
Ljósmynd/Alejandra Carvajal
Museo Margir spáðu Gael Garcia Bernal verðlaunum fyrir bestan leik í
Museo en svo varð ekki. Myndin hlaut Silfurbjörninn fyrir besta handritið.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas.
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fim 1/3 kl. 20:00 131. s Sun 4/3 kl. 20:00 134. s Sun 11/3 kl. 20:00 137. s
Fös 2/3 kl. 20:00 132. s Fös 9/3 kl. 20:00 135. s Lau 17/3 kl. 20:00 138. s
Lau 3/3 kl. 20:00 133. s Lau 10/3 kl. 20:00 136. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 2/3 kl. 20:00 56. s Fim 8/3 kl. 20:00 58. s Lau 10/3 kl. 20:00 Lokas.
Lau 3/3 kl. 20:00 57. s Fös 9/3 kl. 20:00 59. s
Allra síðustu aukasýningar komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Lau 21/4 kl. 20:00 17. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn
Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn
Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka
Lau 10/3 kl. 16:00 5.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 17.sýn
Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fim 15/3 kl. 19:30 AUka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 16:00 Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Faðirinn (Kassinn)
Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn
Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Þri 27/2 kl. 19:30 Auka Þri 6/3 kl. 19:30 13.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn
Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn
Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 4/3 kl. 13:00 13.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 1/3 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 22:30 Fös 9/3 kl. 22:30
Fös 2/3 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Fös 2/3 kl. 22:30 Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 22:30
Lau 3/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 7/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Matur
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?