Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Glæsileg
samfella
B-FF skálar
Verð 11.800 kr.
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Varst þú á meðal
þeirra 1.130 sem
fengu Dalalíf Guð-
rúnar frá Lundi að
láni á Borgarbóka-
safninu í fyrra?
Ertu Lísibet eða
Þóra? Jón eða Jak-
ob? Efnt verður til
spurningakeppni
um líf og störf Guð-
rúnar frá Lundi í Borgarbókasafninu
Grófinni kl. 17-19 í dag, fimmtudaginn
1. mars, í tilefni af sýningu um höf-
undinn sem nú stendur yfir á safninu.
Fyrirkomulag keppninnar verður líkt
og í pöbbkvisskeppnum sem víða eru
haldnar eða liðakeppni með 2-4 í
hverju liði.
Bækur Guðrúnar voru í efsta sæti
yfir útlánsbækur á Borgarbókasafn-
inu árið 2017. Aðdáendur Guðrúnar
frá Lundi eru hvattir til að koma og
láta ljós sitt skína, sem og áhugafólk
um bókmenntir almennt.
Spyrill í keppninni verður Sunna
Dís Másdóttir, en spurningahöfundar
Marín Guðrún Hrafnsdóttir, lang-
ömmubarn skáldkonunnar, og Þórður
Sævar Jónsson.
Sigurliðið hlýtur vegleg verðlaun.
Kíktu í kaffi og láttu ljós þitt skína í
skemmtilegri spurningakeppni um
fólkið í Hrútadal og skapara þess.
Borgarbókasafnið - Menningarhús Grófinni
Spurningakeppni um fólkið
í Hrútadal og skapara þess
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðrún frá Lundi Bækur Guðrúnar voru í efsta sæti yfir útlánsbækur 2017.
Guðrún frá Lundi
on sumarið 2016.“
Að sögn Ara var erfiðast að fara
frá fjölskyldu sinni og unnustu, en
hann segist afar þakklátur fyrir
stuðning þeirra. Þá heimsækir unn-
usta hans, Vigdís Perla Maack, hann
þegar tækifæri gefast.
Námið leggst afar vel í Ara. „Ég
er á leikarabraut sem nefnist Colla-
borative and Devised Theatre Act-
ing. Þar er lögð mikil áhersla á að
geta skapað sína eigin leiklist bæði
með spuna og í hópavinnu. Einnig
lærum við þó öll gömlu trikkin sem
hafa verið kennd í leiklist í mörg ár.
Þessi braut er 10 ára gömul og fólkið
sem hefur útskrifast er langflest
meðal fremstu listamanna í áhuga-
verðum leikhúsum á Englandi þessa
dagana. Brautin var búin til í sam-
starfi við leiklistarhópinn Complicite
sem er í fremstu röð þegar kemur að
leiklist í Evrópu. Við erum mikið að
vinna með líkamann og hvernig þú
notar hann, hvernig þú getur verið
opinn fyrir öllum hugmyndum sem
kvikna og búið til þína eigin list. Mér
finnst þetta vera algjört snilldarnám
af því að ekki bara er verið að und-
irbúa okkur fyrir það að vera leikarar
heldur getum við líka farið og skapað
okkar eigin vinnu og list. Við erum að
gera virkilega skemmtilega hluti
núna, eins til dæmis að vinna í alls-
konar hreimum sem maður er ekki
vanur komandi úr íslenskunni og
Animal Studies eða „dýrafræði“ þar
sem við lærðum hvernig mismunandi
dýr hreyfa sig og hugsa og hvernig
maður getur búið til karakter úr hin-
um ýmsu dýrum. Við fengum svo öll
eitt dýr sem kennaranum fannst við
vera og áttum að búa til stutta senu
úr því. Ég fékk bjarndýr og gerði ég
hann að gömlum, pirruðum djass-
söngvara.“
Bara rétt að byrja
Ari segist vonast til að geta kom-
ið aftur til Íslands eftir nám og geta
hafið störf sem leikari, ásamt því að
halda uppi góðu tengslaneti í London.
„Draumurinn er að geta í raun
verið með annan fótinn í London á
sama tíma og ég bý á Íslandi. Ég
væri til í að reyna að gera allt sem
leiklist hefur upp á að bjóða, leikhús,
bíó, sjónvarp, útvarp og allt heila
klabbið.“
En hvaða ráðleggingar skyldi
hann hafa fyrir fólk sem ber draum-
inn um leiklistina í brjósti sér?
„Ekki hætta ef þú veist að þetta
er það sem þú vilt gera. Hugsaðu út
fyrir kassann og ekki vera hræddur
að reyna eitthvað öðruvísi. Ég man
þegar ég var að sækja um skóla og
fékk öll þessi nei að þá byrjaði fólk að
spyrja hvort ég vildi ekki bara hætta
þessu. Leiklist var draumurinn svo
ég hélt áfram þangað til ég komst
inn. En auðvitað er þetta ekkert búið
hjá mér, ég er bara rétt að byrja og
ég á eftir að fá fullt af nei-um í gegn-
um þennan feril en vonandi verða
nokkur já inn á milli.“
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Ari Freyr Ísfeld Óskarsson,26 ára gamall Reykvík-ingur, fæddur og uppalinní Laugardalnum, hefur
brennandi ástríðu fyrir leiklist. Hann
hefur líka ýmis önnur áhugamál, svo
sem að skella sér í sund með góðu
fólki og slaka á í pottinum eða guf-
unni. Þá hefur hann einnig mikinn
áhuga á fötum og eyðir að eigin sögn
alltof miklum pening í það áhugamál.
En ástríða hans liggur þó fyrst og
fremst í leiklistinni.
„Ég byrjaði svona í alvöru að
hugsa um leiklist í menntaskóla. Þá
fékk ég að vera með í Fúríu sem er
leiklistarfélagið í Kvennó. Var með í
leikritinu öll fjögur árin mín. Þar
kynntist ég líka spuna sem hefur gert
mér alveg ótrúlega gott á þessum
stutta ferli. Kennir manni að hugsa
hratt og út fyrir boxið og segja það
sem manni dettur í hug. Eftir Kvennó
var ég tvisvar með í Stúdentaleikhús-
inu, í sýningunum Nashyrningarnir
og Auka, sem voru sýndar í Norð-
urpólnum sáluga. Einnig er ég ásamt
þremur öðrum núverandi Reykjavík-
urmeistari í leikhússporti sem er
spunakeppni. Það hefur aðeins verið
haldið ein keppni og það var árið 2014
þannig að við erum enn ríkjandi
meistarar.“
En hvers vegna skyldi London
hafa orðið fyrir valinu?
„Ég sótti nokkrum sinnum um í
Leiklistarháskóla Íslands en þeim
leist ekkert á mig. Ég hafði heyrt um
marga frábæra leiklistarskóla hérna í
London og þar sem mig langaði að
verða leikari þá var eina í stöðunni að
sækja bara um. Svo ég sótti um
nokkra skóla og komst inn í Royal
Central. Í kjölfarið flutti ég til Lond-
Neitaði að gefast upp á draumnum
Leiklistarástríðan leiddi
Ara Frey Ísfeld Óskars-
son til Bretlands en sum-
arið 2016 lagði hann
land undir fót og fluttist
búferlum til London, þar
sem hann leggur nú
stund á leiklist við leik-
listarskólann Royal Cent-
ral School of Speech and
Drama í London.
Ljósmynd/Vigdís Perla Maack
London Ara Frey líkar vel í London og vonast til að geta byggt upp tengslanet í Bretlandi og unnið á Íslandi.
Ljósmynd/Vigdís Perla Maack.
Áhugamál Þótt ástríða Ara Freys liggi fyrst og fremst í leik-
listinni hefur hann mikinn áhuga á fötum.
„Við erum að gera virkilega skemmti-
lega hluti núna, eins til dæmis að vinna
í allskonar hreimum sem maður er
ekki vanur komandi úr íslenskunni.“
Í ýmsum hlutverkum Ari Freyr, t.v., hefur tek-
ið þátt í mörgum uppfærslum á vegum skólans.