Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Ný sending frá
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
„Það er orðið jafndýrt að búa hér og í
dýrustu hverfum borgarinnar, en
húsnæðisverð hefur hækkað um rúm-
lega 60% á síðasta áratug eða svo,“
segir Arnar Már, sem lagði stund á
tískuhönnun við Listaháskóla Íslands
og útskrifaðist þaðan árið 2013. Eftir
skólann lagði hann land undir fót og
bjó í París um tíma þar sem hann
vann fyrir franska hönnuðinn Mart-
ine Sitbon, fyrir tískumerkið Rue Du
Mail. „Þetta var áhugaverður tími í
París en því miður tók eigandi tísku-
hússins, Jimmy Chan, þá ákvörðun
að loka. Svo vinnan sem ég hafði lagt
til komst ekki á tískupallana í fram-
haldi af því.“
Í Royal College of Arts
Eftir það ákvað Arnar Már að
flytja til Bretlands og sækja meist-
aranám við Royal College of Arts.
„Kærastan mín var aldrei ánægð í
París, svo þessi ákvörðun var góð fyr-
ir okkur bæði. Skólinn í Bretlandi
þykir einn af þeim bestu, svo æv-
intýrið í tískunni var bara rétt að
byrja hjá mér.“
Þess má geta að skólinn mældist
besti tískuskóli í heimi árið 2016. Var
Arnar Már ánægður í því umhverfi?
„Já, mjög. Skólinn hefur svo margt;
frábæra kennara, gott tengslanet inn
í iðnaðinn víðsvegar um heiminn og
svo frábæra nemendur auðvitað.“
Arnar Már bætir við að hann sé í
miklu sambandi við skólasystkini sín.
„Við reynum að vinna eins mikið sam-
an og hægt er.“
Það var einmitt í náminu sem Arn-
ar Már fékk tækifæri til að leggja
stund á að hanna hugmyndir fyrir
ilmvatnsiðnaðinn. „IFF er eitt
stærsta fyrirtækið í ilmvatnsiðn-
aðinum í heiminum, gerir ilmvötn fyr-
ir mörg af stóru merkjunum. Þeir
efndu til samkeppni, sem ég tók þátt
í, til að finna nýjar leiðir til að nota
ilmvötn. Ég vann þessa keppni, sem
sneri að vörumerkinu Ninu Ricci, og
þannig hef ég fengið fleiri áhugaverð
verkefni til að vinna að tengd ilm-
vötnum.“
Starfar fyrir mismunandi aðila
Í dag vinnur hann verkefni fyrir
ýmis vörumerki, mörg þeirra eru
þekkt og verkefnin því þannig að ekki
má ræða um þau á opinberum vett-
vangi. „Tækifærin eru víða og í dag
starfa ég fyrir mismunandi aðila, s.s.
ilmvatnsfyrirtæki, íþróttafyrirtæki,
tískuhús og útivistarfata-
framleiðendur. Ég starfa í mínu eigin
stúdíói og hef því möguleika á að gera
alls konar hluti ásamt því að vera að
þróa eigin línu í mínu nafni.“
Aðspurður hvaðan þekking hans á
ilmvötnum kemur hlær hann og seg-
ir: „Ég hef aldrei notað ilmvatn á æv-
inni, svo ég þurfti að byrja frá grunni.
En fljótlega fór ég að fá hugmyndir
sem tengdust spurningunni: Af
mér var sagt þegar ég byrjaði í skól-
anum var að allt yrði að hafa tilgang
og það mætti aldrei leggjast í vinnu
sem hefði enga þýðingu.“
Að mati Arnars Más er London
ekki svo stór og í raun heimurinn
ekki heldur. „Með aðstoð tölvutækn-
innar getur maður unnið í tísku-
bransanum hvar sem maður er stadd-
ur í veröldinni um þessar mundir.“
Arnar Már segir að það sé ekki
auðsótt að fá vinnu sem hönnuður
fyrir stóru tískuhúsin. „Kaup og kjör
eru ekki til fyrirmyndar fyrir nýút-
skrifaða hönnuði, en það býr til ný
jaðarmynstur. Ég finn fyrir því hér
að hönnuðir vinna meira í verkefnum
og við getum leyft okkur að gera hlut-
ina öðruvísi.“
Í dag eru ekki margir ungir hönn-
uðir með hefðbundnar tískusýningar
upp á gamla mátann. „Við fæðumst á
veraldarvefnum og því þarf ekki að
sýna IRL (In Real Life) að mínu
mati. Við getum sýnt beint í gegnum
veraldarvefinn og svo erum við með
flottar innsetningar á réttu stöðunum
og vekjum þannig athygli. Ásamt því
að vera í sambandi við flotta sýning-
araðila víða.“
Tískuvikan í Kaupmannahöfn
Næst á dagskrá hjá þessum unga
flotta hönnuði er verkefni á tískuvik-
unni í Kaupmannahöfn, þar sem hon-
um hefur boðist að sýna útskriftarlín-
una sína sem hluta af Raven Special
Project. „Línan mín, sem hægt er að
sjá á heimasíðunni minni, www.arn-
armarjonsson.com, er fyrir karl-
menn. Hún er hugsuð sem þægileg
og með gott notagildi. Ég hugsa um
viðskiptavininn, hver áhugamál hans
eru og fleira í þeim dúr.“
Tæknin vinnur
með hönnuðum
Tískuhönnuðurinn Arnar Már hefur unnið fyrir nokk-
ur af þekktustu tískumerkjum heims þrátt fyrir ung-
an aldur. Hann býr í austurhluta Lundúnaborgar, þar
sem menning og listir dafna og iðandi mannlífið
fangar huga þeirra sem þangað koma. Við komumst
að því hvernig er að vera ungur íslenskur fatahönn-
uður í hinum stóra heimi tískunnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tískan Arnar Már
Jónsson fatahönnuður
segir mikla samkennd í
tískuiðnaðinum. Hún
hafi komið honum á
óvart.
hverju notum við ilmvatn eingöngu
sem vökva á húð? Hvernig væri að
bjóða upp á hluti sem gæfu frá sér
ilm? Ilmur getur einkennt áhugasvið
okkar og við þekkt hvert annað á
lyktinni einni saman en ekki bara í
gegnum samtal og augun.“
Tribal-hugmyndafræði
Hann segir eigið vörumerki lýsa
hugmyndaheimi sínum og sinna nán-
ustu í gegnum Tribal-hugmynda-
fræði og nýsköpun. „Ég er mikið fyr-
ir nýsköpun og tækni og að vinna með
orku sem verður til innan ákveðinna
hópa, sem dæmi úr mínum nánasta
vinahópi.“
Hann notfærir sér tækni sem not-
uð er til að gera íþróttavörur og yf-
irfærir hana á hversdagsfatnað.
„Að mínu mati verður hversdags-
fatnaður æ þægilegri, eins og sjá má
á því hvernig við klæðum okkur í dag,
og er það mjög mikilvægt fyrir mig
að það sé ekki hindrandi að klæðast
flíkunum mínum. Auðvitað er Ísland
mjög mikilvægt þegar kemur að
hönnuninni og er allt hannað með
þetta „clash“ á milli borgarlífsins og
náttúrunnar og veðurfar Íslands í
huga.“
Hvernig er tískuiðnaðurinn að þínu
mati?
„Ágætur. Ég náttúrlega þekki ekk-
ert annað. Þetta er endalaus vinna en
það er mikil samkennd í bransanum,
sem kom mér verulega á óvart. Það
er mikil menning og rannsóknir svo
ekki sé minnst á nýsköpun hjá fólki í
kringum mig, sem kom verulega á
óvart í byrjun. En skólinn sem ég var
í lagði áherslu á nýsköpun og að við
fengjum aðgang að öllu því sem er í
boði í tískunni í dag. Það fyrsta sem