Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Það eru til ótal leiðir til að „páska“ heimilið svolítið upp og guli liturinn getur dúkkað upp á ólíklegustu stöðum. 18 23.03.2018 Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Elínrós Líndal elinros@mbl.is Guðrún Guðlaugsdóttir gudrunsg@gmail.com Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Forsíðumyndina tók Hari Prentun Landsprent ehf. Það felast ýmiskonar tímamót í hátíðinni sem við kennum við páska. Páskahelgina höldum við heilaga til að minnast upprisunnar og lífs- ins, og að sama skapi vaknar jörðin og náttúran til lífsins. Á fésbók dúkka skyndilega upp myndir um þessar mundir þar sem fólk setur feginsamlega inn myndir af grænum laukum sem gægjast upp úr mold, jafndægur að vori eru að baki svo dagurinn er lengri en dimm- an næstu mánuðina – þetta er allt saman einhvern veginn upp á við og lífið er einfaldlega léttara. Þá skyldi enginn gera lítið úr því hvað brot úr páskaeggi getur gert fyrir sálartetrið í amstri dagsins. En flestir sem spjallað er við á síðum þessa blaðs virðast sammála um að eitt það indælasta sem páskahelgin hefur í för með sér sé sá almenni siður að taka tíma til slökunar og rólegheita, í nánd við sína nánustu, og leitast við að eiga samverustund sem hleður gömlu batteríin sem okkur er svo tamt að tala um. Hvað vill maður meira? Jú – páskaegg. Það má helst ekki vanta. Morgunblaðið/Hari Upprisan, lífið og loksins lengri dagar Páskarnir í Ungverjalandi eru tals- vert mikið frábrugðnir þeim sem haldnir eru á Íslandi, segir Antonia Hevesi í spjalli um hátíðina. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 8 Linnea Hellström segir frá því hvernig halda skal hátíðarveislu með vegan-nálgun og gefur girni- legar uppskriftir sem fá kjötætur til að hugsa sig tvisvar um. Morgunblaðið/Hari 14,16 Árstíðabundinn bjór verður sífellt atkvæðameiri og páskabjórinn er þar engin undantekning. Við kíkjum á innlenda páskabjóra í ár. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 34-35 Páskaskraut tekur furðumiklum breytingum frá einu tímabili til þess næsta. Sumt eldist vel, eins og gengur – annað ekki eins vel. Sjón er sögu ríkari. Morgunblaðið/Ásdís 36-37

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.