Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 8
Marit Bjørg-
en í mynda-
töku fyrir aug-
lýsingaherferð
vegna fjársöfn-
unar til krabba-
meinsrannsókna
árið 2017.
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.3. 2018
Reyktur lax
- Láttu það eftir þér
Söluaðilar:10-11,Hagkaup,Kostur,Icelandverslanir,Kvosin,Melabúðin,
Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin.
FJÖLSKYLDAN Unnusti Marit Bjørgen er Fred
Børre Lundberg, einnig kunnur keppnismaður, í
skíðagöngu og stökki, á árum áður. Lundberg var í
allra fremstu röð á tíunda áratugnum og vann, auk
ólympíugulls í 15 km göngu í Lillehammer 1994 og
4x5 km boðgöngu í Nagano fjórum árum síðar, þrenn
gullverðlaun á heimsmeistaramótum. Þá á Lundberg
tvo ÓL-silfurpeninga og þrjá slíka frá HM.
Lundberg er liðlega áratug eldri en Bjørgen, 47
ára, fæddur 25. desember 1969. Marit greindi frá því í
sjónvarpsviðtali fyrir nokkrum árum að hún hefði
fyrst séð núverandi unnusta sinn 13 ára gömul.
Hvatti hann þá til dáða fyrir framan sjónvarpið, þeg-
ar hann gekk á Ólympíuleikunum í Lillehammer.
Þegar þau hittust fyrst, nokkrum árum síðar, „var
eins og tíminn stöðvaðist“, sagði hún: það var ást við
fyrstu sýn. Þau hafa verið par í níu ár og eiga einn son,
Marius Bjørgen Lundberg. Marit tilkynnti í apríl 2015
að hún væri ólétt, ætti að eiga í desember, en stefndi
að því að snúa aftur til keppni. Hún stóð við það!
Marit Bjørgen og Marius, sonur hennar og Fred Børre
Lundberg. Sá litli varð tveggja ára 26. desember.
Unnustinn einnig
mikill afreksmaður
MARIT BJØRGEN Norska skíðakonan Marit Bjørgen varð um síðustu helgi
sigursælust allra í 94 ára sögu Vetrarólympíuleikanna. Hún hefur nú unnið
til 15 ólympíuverðlauna, þar af eru átta gullverðlaun, jafnmörg og landar
hennar, skíðaskotfimikappinn Ole Einar Bjørndalen og Bjørn Dæhlie, sem
keppti í skíðagöngu eins og Bjørgen, hafa unnið. Dæhlie nældi hins vegar
„aðeins“ í 12 verðlaun alls og Bjørndalen 13 á sínum tíma. Bjørgen vann
fimm verðlaun á leikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu og skaust þar með
fram úr þeim báðum.
Aðeins ein kona hefur fengið fleiri verðlaun í gervallri sögu Ólympíu-
leikanna; sovéska fimleikakonan Larisa Latynina var nær ósigrandi á sinni
tíð og á í safni sínu 9 gullpeninga og 18 ólympíuverðlaun alls en hún keppti á
þrennum leikum: fyrst í Melbourne 1956 og síðast í Tókýó 1964.
Marit Bjørgen er fædd 21. mars 1980 og er því að verða 38 ára. Hún ólst
upp í smábænum Rognes, nálægt Þrándheimi, næst-
elst þriggja barna hjónanna Kristin og Ola-Ivar.
Segja má að hún hafi nánast fæðst með gönguskíðin á
fótunum, líkt og svo margir Norðmenn! Foreldrarnir
gengu á skíðum, dóttirin fetaði ung í spor þeirra og
hóf að keppa sjö ára. Ferillinn hófst með glæsibrag
því Marit litla var ósigrandi fyrstu árin og tapaði ekki
keppni fyrr en 13 ára, á móti í Svíþjóð. Barn að aldri
var hún kraftmikil, gekk mikið á skíðum en fékk
einnig útrás í bæði handbolta og fótbolta.
Bjørgen sigraði fyrst á heimsbikarmóti fullorðinna í
Þýskalandi 2002. Keppti þá í sprettgöngu, lét einmitt
ljós sitt fyrst og fremst skína á þeim vettvangi í fyrstu
en gekk lengri vegalengdir í sífellt meira mæli eftir
því sem árin liðu, með sama frábæra árangrinum.
Það var svo síðla árs 2007 sem fór að blása á móti og
Bjørgen varð „aðeins“ í öðru og þriðja sæti á hverju
mótinu á fætur öðru um tíma; sigraði raunar ekki í
einstaklingsgrein á einu einasta móti árið 2008 en
nældi þó í fern gullverðlaun í sveitakeppni. Árang-
urinn á heimsmeistaramótinu 2009 varð skíðadrottn-
ingunni mikil vonbrigði, því þá fór hún heim án verð-
launa. Breytti í kjölfarið æfingaaðferðum sínum og
velti meira fyrir sér andlegum þáttum en áður. Óhætt
er að segja að það hafi reynst gæfuspor því árangur-
inn síðan hefur verið með ólíkindum. skapti@mbl.is
VERÐLAUN Keppnisferill Marit
Bjørgen er ævintýralegur. Hún
hefur unnið hvorki fleiri né færri
en 112 heimsbikarmót á ferlinum,
á nú að auki 15 ólympíuverðlaun
og hefur unnið til alls 26 verðlauna
á heimsmeistaramótum; frá HM á
hún 18 gull, fimm silfur og þrjú
brons. Sem sagt: samtals 41 ÓL-
og HM-verðlaun, meira en nokkur
annar skíðamaður – karl eða
kona. Myndin er tekin eftir sigur
norsku sveitarinnar í 4 x 5 km
göngu á ÓL í Suður-Kóreu. Frá
vinstri: Ingvild Flugstad Østberg,
Astrid Uhrenholdt Jacobsen,
Ragnhild Haga og Bjørgen.
Stórkostlegur
keppnisferill
LYF Veikindi hrjáðu Marit Bjørgen vetur-
inn 2009 til 2010 og þá fékk hún undan-
þágu frá Alþjóðaskíðasambandinu, FIS, til
að nota astmalyfið Symbicort, sem inni-
heldur efni á bannlista. Skíðakonan var þó
aldrei formlega greind með astma en
læknar töldu lyfjameðferð engu að síður
nauðsynlega.
Bjørgen notaði lyfið enn þegar kom að
Ólympíuleikunum 2010 í Vancouver í
Kanada og einn keppinauta hennar þar,
Justyna Kowalczyk frá Póllandi, sakaði þá
norsku um lyfjamisnotkun. Ekkert þótti
hins vegar athugavert og frá og með sept-
ember árið eftir hafa íþróttamenn ekki
þurft að sækja um undanþágu vegna lyfs-
ins: Notkun Symbicort hefur síðan þá ver-
ið heimil í takmörkuðu magni.
AFP
Undanþága
vegna lyfs
Sigursælust á
vetrarleikum
Fimmtándu
ólympíu-
verðlaunin í
höfn á
sunnudag-
inn var.
AFP
Marit Bjørgen og unnusti hennar, Fred Børre Lundberg, sem sjálfur var mikill afreksmaður í nor-
rænum greinum skíðaíþrótta, göngu og stökki. Hann vann t.d. fern verðlaun á Ólympíuleikum.
AFP
’Ferillinn hófst meðglæsibrag því Mar-it litla var ósigrandifyrstu árin og tapaði
ekki fyrr en 13 ára
Bjørgen er
gríðarlega vel
þjálfuð og afar
sterkleg eins
og hér sést
bersýnilega.
Facebook
AFP