Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 22
Getty Images/iStockphoto
Truflaðar trufflur
Þótt trufflur vaxi ekki villtar á Íslandi er hægt að búa til himneska rétti með
truffluafurðum sem fást í betri sælkeraverslunum landsins. Lyftu elda-
mennskunni upp á hærra plan og komdu á óvart með nýju bragði!
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Fyrir fjóra
8 sneiðar af hráskinku
8 sneiðar af melónu
hvíttrufflu-balsamedik
Hreinsið melónu, skerið hana í sneiðar af
sömu þykkt og hitið grillið vel upp á með-
an. Leggið melónusneiðarnar á brennandi
heitt grillið og eldið í stutta stund á báð-
um hliðum.
Setjið melónusneiðarnar í djúpan disk
og leggið hráskinku yfir. Í lokin dreypið
þið yfir hvíttrufflu- balsamediki og njótið.
Frábær forréttur.
Grilluð melóna með hráskinku
og hvíttrufflu-balsamediki
MATUR Truffluolíu, trufflusmjör, truffluhunang, truffluhrísgrjón, truffluost,trufflupasta og heilar trufflur í krukkum er hægt að kaupa í sælkera-
verslunum og betri búðum hérlendis, t.d. frá fyrirtækinu Savitar.
Truffluvörur
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.3. 2018
Fyrir 3-4
600 g andabringur
40 g krukka af hunangi með
hvítum trufflum
100 ml balsamedik
50 ml rjómi
salt og pipar
klípa af smjöri, ca. 1 tsk.
Skerið ytri húð andabring-
unnar með beittum hníf, en
ekki í kjötið, með beinum
skurði og þverskurði, þar til
það myndast grind. Saltið
og piprið á báðum hliðum.
Bræðið klípu af smjöri á
steikarpönnu og brúnið síð-
an andabringurnar á báðum
hliðum.
Til að gera bringurnar
stökkar skal setja þær í ofn í
5 mínútur við 200°C.
Þegar andabringan er
tilbúin skuluð þið setja hana
á skurðbretti. Bætið bal-
samediki, rjóma og 20 g af
hunangi með hvítum truffl-
um í pönnuna þar sem anda-
bringan var elduð. Hitið sós-
una þar til hún þykknar.
Skerið andabringuna og
látið sneiðarnar á disk með
heitum kartöflum eða á sal-
atbeð.
Klárið réttinn með sós-
unni sem þið voruð að laga
og dreypið „dassi“ af hun-
angi með hvítum trufflum
yfir.
Stökk andabringa með
truffluhunangi