Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 29
Þessi önnur stærsta borg Mar- okkó býr yfir mikilli sögu og er stundum sögð menningarhöf- uðborg landsins. Miðalda- hverfið, Fes el-Bali, hefur mikið aðdráttarafl. Allt frá árinu 1989 hafa staðið þar yfir umfangs- miklar viðgerðir en vonast er til að í lok þessa árs hafi samtals 3.370 hús verið endurbætt. Stærsta einstaka verkefnið er Khizanat al-Qarawiyyin, sem er talið vera eitthvert elsta bóka- safn í heimi en það var opnað árið 859. Áður var það aðeins opið fáum fræðimönnum og há- skólanemum. Fes el-Bali er jafnframt stærsta bíllausa svæði í mið- borg í heiminum. Þarna er markaður með matvörum og öðrum marokk- óskum vörum. Þar sem bílar fyrirfinnast ekki er ekki óal- gengt að sjá asna draga kerrur á þessu svæði, líkt og ferðamað- urinn hafi farið aftur í tímann í einni svipan. FES, MAROKKÓ Aftur í tímann 4.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Laos er lítið land í Suðaustur-Asíu sem hefur heilmikið aðdráttarafl fyrir breiðan hóp fólks. Ævintýrafólk getur ferðast um neðanjarðarhella í ám, á tengilínu í frumskóg- inum eða klifrað, dýravinir geta farið í skoðunarferðir og virt fyrir sér apa og fíla á meðan menningarvitar geta skoðað forn musteri. Landið er grænt og vænt, ekki aðeins í útliti heldur stendur það framar öðrum löndum á þessu svæði í heim- inum hvað varðar umhverfisvæna ferðamennsku. Stór svæði í landinu eru vernduð og svæðin þar sem hægt er að skoða fíla eru sjálfbær og hafa verndun og hag fílanna að leiðarljósi. Höfuðborgin Vientiane þykir afslöppuð en einnig þykir það mikil lífsreynsla að heimsækja andlegu höfuðborgina Luang Prabang sem er á minjaskrá UNESCO. Laos er í markaðsátaki sem stendur og stefnir að því að laða til sín metfjölda ferðamanna í ár en markmiðið er að ná fimm milljón ferðamönnum til landsins. Búddagarður í höfuð- borginni Vientiane. GettyImages/iStockphoto LAOS Ævintýraferðir og fornminjar Kuang Si-fossarnir. ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU! Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. HUNANGS OG SÍTRÓNU- BRAGÐ APPELSÍNU- BRAGÐ SYKURLAUST Hinum megin á hnettinum liggur Nýja-Sjáland, land sem í sumu er ekki svo ólíkt Íslandi, þar eru til að mynda eldfjöll og í stað norðurljósanna er hægt að sjá suðurljós (aurora austral- is). Margir þekkja stórbrotið lands- lagið úr Hringadróttinssögu- myndunum og hið ógnvænlega rugby- lið landsins, en landið hefur upp á margt fleira að bjóða. Um 15% þjóð- arinnar eru maórar og er tungumál þeirra opinbert tungumál í landinu auk ensku. Siðir maóra eru mikilvægir í nýsjálenskri menningu. Adáendur „art deco“-arkitektúrs, líkt og fólk þekkir t.d. frá í pastellit- uðum húsum Miami-borgar, fá sitt- hvað fyrir sinn snúð í Napier á Norðurey en landið skiptist í tvær eyj- ar, Norðurey og Suðurey, auk fjölda minni eyja. Ástæðan fyrir þessum ein- kennandi arkitektúr er að Napier var endurbyggð á fjórða áratugi síðustu aldar eftir miklar skemmdir af völdum jarðskjálfta af stærðinni 7,8. Um miðj- an febrúar ár hvert er fjórða áratug- inum fagnað í borginni með gömlum bílum, tísku og tónlist að hætti þessa tíma heila helgi. Á öðrum árstímum er hægt að heimsækja Art deco- miðstöðina við sjóinn og fræðast nán- ar um byggingastílinn og borgina. Á Suðurey er landslagið magnað en en þar er m.a. vetrar-íþróttaborgin Queenstown sem er samt þess virði að heimsækja allt árið. Líka er hægt að mæla með heimsókn til Wanaka sem er í rúmlega klukkustundar fjar- lægð frá Queenstown, þar sem m.a. er hægt að stunda klifuríþróttir í sér- stökum garði í nágrenni borgarinnar. Art deco er alls- ráðandi í Napier. NÝJA-SJÁLAND Útivist og arkitektúr Suðurey. GettyImages/iStockphoto

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.