Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 28
FERÐALÖG Þeir sem eru á leið til New York ættu endilega aðskella sér á Downton Abbey-sýninguna sem stendur til 2. apríl. M.a. er hægt að skoða eldhús Mrs. Patmore. Downton Abbey-sýning 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.3. 2018 SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 17:00 í Hörpu GettyImages/iStockphoto Ferðalög á framandi slóðir Í síðustu viku var á þessum síðum mælt með öðruvísi borgarferðum í Evrópu en nú er komið að lengri ferðalögum. Hér eru taldir upp fimm áfangastaðir á framandi slóðum sem eru jafnframt á listum ferðatímarita yfir heitustu áfangastaði ársins 2018. Ferðalög geta verið lykillinn að nýrri lífsreynslu og opnað hlið að aukinni víðsýni, ekki síst þegar ferðalangurinn kemst í snertingu við aðra menningu og lífshætti. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Bláa hliðið, Bab Bou Jeloud, í Fes í Marokkó. PERÚ Matarmenning og mikil saga Lamadýr á slóðum Inka við Machu Piccu. Flestir tengja Machu Picchu hvað mest við landið enda hafa þessi mannvirki Inka frá 15. öld mikið aðdráttarafl fyrir ferða- fólk en það er margt fleira að sjá í landinu en gamlar minjar. Til að mynda hefur útivistarfólk nóg að gera þarna en víða er hægt að fara í ævintýrasiglingar á ám, svifvængjaflug og hjóla- ferðir, svo eitthvað sé nefnt. Enn fremur eru margar skipu- lagðar gönguferðir um Inka- slóðir. Í höfuðborginni Lima eru mörg söfn sem varpa ljósi á mikla sögu landsins en þessi nærri tíu milljón íbúa stórborg þykir jafnframt vera matarhöf- uðborg Suður-Ameríku. Tveir veitingastaðir í landinu eru á topp tíu yfir bestu veitingastaði í heimi (theworlds50best.com). Central, veitingastaður mat- reiðslumannsins Virgilio Mart- ínez, situr í fimmta sæti en hann þykir fara með gesti í lit- ríkt ferðalag um perúvíska mat- argerð, frá sjávarbotni til hæstu fjalla. Í áttunda sæti er Maido, veitingastaður Mitsuharu Tsumura, en þar er japönsk- perúvísk matargerð í hávegum höfð. Í borginni er líka gott úr- val af mat fyrir vegan-fólk og grænmetisætur. Lima er matarhöfuð- borg Suður-Ameríku. GettyImages/iStockphoto Ríkið Uttarakhand er þekkt sem land guðanna því þar er að finna svo marga heilaga staði hindúa sem hafa lengi laðað til sín bæði indverska og alþjóðlega gesti. Gaman er að segja frá því að hálf öld er liðin frá því að borgin Rishikesh í Uttarakhand fékk heimsókn frá einhverjum frægustu gestum sínum, Bítlunum, en þangað ferðaðist sveitin þegar frægðarsól hennar skein hvað hæst í febrúar 1968 til að læra hugleiðslu hjá Maharishi Mahesh Yogi. Af liðsmönnum sveit- arinnar virðast John Lennon og George Harrison hafa fundið hvað sterkasta tengingu við Indland en þeir dvöldu þarna í sex vikur og sömdu mörg lög á meðan. Enn getur fólk komið til Uttarakhand til að dýpka jógaiðkun sína en þar eru margir jógaskólar og hefur Rishikesh m.a.s. verið kölluð jógahöfuðborg heimsins en þarna er hægt að læra margar tegundir af jóga og hugleiðslu. Borgin er í norðurhluta landsins, við rætur Himalaja-fjallanna við fljótið Ganges. Hægt er að fara til Rishikesh á hvaða árstíma sem er en betra er að forðast júní þegar getur orðið mjög heitt og júlí en þá eru hótel umsetin vegna hátíðarinnar Savan. Hægt er að mæla með ferðalagi í febrúar og mars og líka frá ágúst til október. RISHIKESH, INDLANDI Jógahöfuðborg heimsins GettyImages/iStockphoto

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.