Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 27
Sumarlína
Burberry 2018
eftir Christ-
opher Bailey.
4.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Vila
3.990 kr.
Fallegur blúndutoppur. HAF Store
41.900 kr.
Vasi úr Pallo-línu Carinu Seth
Andersson. Línan er hand-
blásin í Smálöndum í Svíþjóð.
Zara
11.995 kr.
Köflóttir jakkar eru
aðalmálið um þessar
mundir.
Asos.com
6.000 kr.
Hvít ökklastígvél frá Public Desire.
Geysir
46.800 kr.
Flott peysa frá
franska tískuhúsinu
Isabel Marant.
Net-a-Porter.com
27.000 kr.
Töff gallabuxur frá M.I.H. Jeans.
Í þessari viku …
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Óskalistinn að þessu sinni er hversdagslegur.
Köflóttar kápur eru vinsælar um þessar mund-
ir og fann ég eina afskaplega fína í Zöru sem er
í þægilegu sniði og fulkomin fyrir vorið.
Maria-Black.com
8.000 kr.
Eyrnalokkur frá danska
hönnunarhúsinu Mariu
Black í möttu gulli.
Hönnuðurinn Raf
Simons, listrænn
stjórnandi Calvin
Klein, hefur hannað
línu af töskum fyrir
þekkta töskumerk-
ið Eastpak. Línan
er innblásin af
framtíðarsýn kvik-
myndarinnar Blade
Runner.
Töskurnar eru
meðal annars plast-
húðaðar sem gefur
þeim skemmtilegt útlit og yfirbragð en línan var fyrst
kynnt á þriðjudag.
Töskurnar og bakpokarnir eru meðal annars fáanleg
á vefsíðu Eastpak eastpak.com.
Fatahönnuðurinn Raf Simons hannaði
skemmtilega línu fyrir Eastpak.
AFP
BAKPOKAR Í ANDA BLADE RUNNER
Einstakir bakpokar
fyrir Eastpak
Pokarnir eru
meðal annars
plasthúðaðir.
Riccardo Tisci mun taka við starfi listrænsstjórnanda hjá Burberry af Christopher Bai-ley sem sagði starfi sínu lausu á síðasta ári
eftir 17 ár hjá Burberry. Áður hafði Riccardo Tisci
starfað sem listrænn stjórnandi franska tískuhúss-
ins Givenchy í um áratug eða frá 2005 til 2017. Mun
Ítalinn því færa starfsstöðvar sínar frá París til
London og verður fyrsta lína Tisci fyrir Burberry
kynnt í september á þessu ári.
Riccardo Tisci, sem er einn eftirsóttasti hönnuður
dagsins í dag, breytti miklu fyrir Givenchy þegar
hann starfaði þar. Hönnun hans einkennist mikið til
af glæsileika og dökkri litapallettu. Hann hefur ein-
stakt auga fyrir smáatriðum og eru hátískulínur Gi-
venchy sannkölluð listaverk.
Hann var fyrstur að kynna svokallaða lúxus-
götutísku og færði til að mynda strigaskóna á hærri
stall og er mikill áhrifavaldur þegar kemur að þeirri
strigaskótísku sem er allsráðandi í dag. Það verður
því forvitinilegt að sjá hvað gerist hjá Burberry í ná-
inni framtíð þar sem Christopher Bailey hefur ávallt
haldið svolítið í hefðir með merkinu og hefur fengið
langan tíma til þess að móta tískuhúsið eftir eigin
höfði.
Riccardo Tisci
til Burberry
Í vikunni var tilkynnt að ítalski hönn-
uðurinn Riccardo Tisci hefði verið
ráðinn listrænn stjórnandi breska
tískuhússins Burberry.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Strigaskór frá
Givenchy.
Fyrsta lína Riccardo Tisci fyrir Bur-
berry verður kynnt í september.
Sumarlína Riccardo Tisci
fyrir Givenchy 2018.