Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.3. 2018 Ungmennin frá Flórída hræð- ast ekki einhver öflugustu samtök landsins, NRA. „Dana Loesch, ég vil að þú vitir að við ætlum að styðja tvö börn þín á þann hátt sem þú munt ekki gera,“ sagði Emma González sem átti ekki í vandaræðum með að takast á við þessa tals- konu NRA á CNN. Ljóst er að skipulagð- ar mótmælagöngur verða haldnar í höf- uðborginni Washington, DC og víðar 24. mars þannig að þetta er ekki það síðasta sem á eftir að heyrast í Gonzá- lez og félögum. Unglingarnir í Marjory Sto-neman Douglas-skólanum íFlórída hafa vakið athygli og aðdáun heimsins. Í stað þess að leggjast undir sæng, sem hefði ver- ið skiljanlegt eftir svona mikið áfall, en sautján nemendur skólans voru skotnir til bana af 19 ára byssumanni, fyrrverandi nemanda við skólann, 14. febrúar, ákváðu þeir að berjast. Í þetta skiptið með orðin að vopni, fyrst á samfélags- miðlum en svo í sjónvarpsþáttum. Skilaboðin eru þau að þetta megi alls ekki gerast aftur og það þurfi að breyta byssulögum; „Aldrei aft- ur“ er nafn hreyfingarinnar sem varð til í kjölfarið. Emma González er einn þessara nemenda sem hefur vakið athygli. „Hver einasta manneskja hérna, allt þetta fólk ætti að vera heima hjá sér að syrgja. En í staðinn er- um við hérna uppi saman því ef það eina sem ríkisstjórnin og for- setinn geta gert er að hugsa til okkar og biðja fyrir okkur, þýðir það að það er tími fyrir fórn- arlömbin að leiða þessa breytingu sem við þurfum,“ sagði González á baráttufundi um síðustu helgi. Hún byrjaði á Twitter eftir skotárásina og er þegar komin með 1,15 millj- ónir fylgjenda. Samtök byssueig- anda í Bandaríkjunum, NRA, eru með rúmlega 600 þúsund fylgj- endur. Baráttan ber árangur Baráttan er að skila sér. Tveir af stærstu byssusölum landsins, Walmart og Dick’s Sporting Goods, ákváðu á miðvikudag að takmarka byssusölu sína. Verslanirnar ætla að hætta að selja allar tegundir árásarriffla í verslunum sínum og krefjast þess að kaupendur hafi náð 21 árs aldri, óháð lögum. Sam- kvæmt alríkislögum verður maður að hafa náð 21 árs aldri til að kaupa skammbyssu en frá 18 ára aldri er hægt að kaupa hálf- sjálfvirka riffla og fleiri tegundir af byssum. Walmart sagðist hafa endur- skoðað stefnu sína í ljósi nýliðinna atburða og Edvard Stack, forstjóri Dick’s, sagði að nú væri komið nóg. Barátta unga fólksins hefði náð til hans. „Við elskum þessa krakka og baráttu þeirra, nú er komið nóg. Þetta náði til okkar. Við viljum taka afstöðu og fá vonandi fólk til að tala um þetta,“ sagði hann en Dick’s var á undan Walmart með ákvörðun sína. Ákvörðun Walmart hefur líka mikið vægi út af stærð sinni en keðjan selur byssur í um helmingi af 4.000 stórverslunum sínum. Í hverri viku versla um 150 milljónir manna víðs vegar um Bandaríkin í Walmart. Viðbrögð Trumps Fyrstu viðbrögð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta voru hins vegar að vopna kennara, sem baráttufólki fannst hlátursefni. Í vikunni skaut síðan kennari af byssu í grunnskóla nálægt Atlanta, reyndar í tómri stofu, en það sýnir að vopnaðir kennarar eru vart lausnin. Trump kom síðan öllum á óvart, ekki síst félögum sínum í Repúblikana- flokknum, þegar hann tilkynnti í beinni útsendingu á miðvikudag að hann styddi breytingar á byssulög- gjöf þar sem m.a. yrði skylda að skoða bakgrunn kaupenda betur og leyfilegt yrði að taka byssur tíma- bundið af einstaklingum sem teljast í áhættuhópi. Þetta er í algjörri andstöðu við hin öflugu samtök byssueigenda í landinu, NRA. Al- menningur er í meira mæli á móti þeim núna og endurspegla ákvarð- anir fyrirtækja það en á meðal þeirra fyrirtækja sem hafa slit- ið öll tengsl við samtökin eru bílaleigan Hertz, MetLife- tryggingar og flugfélagið Delta. Barátta unga fólksins sem lifði af skotárásina er því að skila sér. Því tókst að tala á yfirveg- aðan hátt en samt sýna tilfinningar. Það vill ekki bara samúðar- kveðjur heldur breyt- ingar og vita að það er hægt að koma í veg fyrir svona skotárásir og láta ekki segja sér neitt annað. Þau hafa tjáð sig svo vel í kast- ljósi fjölmiðla að samsærissinnar héldu því fram að González og skólafélagi hennar David Hogg væru leikarar sem fengnir hefðu verið til að afla stuðnings við herta byssulöggjöf meðal almennings. Áhrif ungmennabóka Þetta eru krakkar sem hafa alist upp við lestur distópískra ung- mennabóka (young adult) þar sem unga fólkið svarar fyrir sig og þarf oftar en ekki að berjast upp á líf og dauða. Rithöfundurinn Patrick S. Tomlinson @stelthygeek skrifaði á skemmtilegan hátt um þennan hóp á Twitter. „Þið fylgdust með kyn- slóð sem ólst upp við Harry Potter, Hungurleikana og Marvel-myndir, þið tókuð burt von þeirra, störf og framtíðina og studduð svo ýktasta ofur-vondakall sögunnar í embætti forseta og svo eruð þið hissa að krakkarnir svari fyrir sig?“ Aldrei aftur! Nemendurnir sem lifðu skotárásina af í Marjory Stoneman Douglas-skólanum í Flórída hafa breytt umræðunni um byssueign í Bandaríkjunum. Dana Loesch, talskona NRA. Mótmæli í mars AFP Skólastarf hófst á ný á miðvikudaginn eftir tveggja vikna hlé í Marjory Stoneman Douglas-grunnskólanum í Flórída. ’ Hann hefði ekki skaðað svona marga nemendur með hnífi. Emma González ERLENT INGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR ingarun@mbl.is BRETLAND LONDON Listaverk nígeríska listamannsins Ben Enwonwu frá 1974 af Tutu prinsessu seldist fyrir meira en milljón pund eða um 170 milljónir íslenskra króna á uppboði í vikunni. Þetta er hæsta verð sem verk eftir nígerískan nútímalistamann hefur selst á. Búið var að meta myndina á um 40 milljónir íslenskra króna. Listsali uppgötvaði verkið þegar hann var beðinn um að meta nokkur listaverk í íbúð í norðurhluta London en ekki hafði verið vitað um verkið frá láti listamannsins árið 1994. Enwonwu er talinn vera faðir nígerísks módernisma. ÁSTRALÍA Ástralir skiluðu meira en 57.000 vopn- um til ríkisins á síðasta ári en þá var hægt í þrjá mánuði að skila ólöglegum vopnum án þess að eiga á hættu að vera saksóttur fyrir það. Takmarkið er að fækka ólöglegum vopnum í landinu. Það er ólöglegt að eiga óskráð vopn í Ástralíu en viðurlögin eru allt að 24 milljóna króna sekt og 14 ára fangelsi. ÞÝSKALAND BERLÍN Þjóðverjar rann- saka nú tölvuárás á innri net varnarmála- og innanríkis- ráðuneytis. Talið er að þekktur rússneskur hakkarahópur „Fancy Bear“ eða APT28 hafi verið að verki. Þetta er sami hópurinn og talinn er standa að baki tölvuárása í Banda- ríkjunum, m.a. í tengslum við forsetakosningarnar 2016. Lekans varð vart í desember og talið er að hakkararnir hafi haft aðgang að tölvukerfunum í hátt í ár. SPÁNN SAN SEBASTIÁN Óvenjulegar vetrarhörkur hafa gert fólki lífi ð leitt víðsvegar um Evrópu. Til að mynda snjóaði á stöðum þar sem algengara er að fólk leggist í sand og baði sig í sjónum eins og í San Sebastán á Spáni. Tugir manna hafa látist í frostinu víðsvegar um álfuna en margir þeirra voru heimilislausir. Samgöngur hafa víða farið úr skorðum vegna snjókomunnar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.