Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.3. 2018
Ungmennin frá Flórída hræð-
ast ekki einhver öflugustu
samtök landsins, NRA.
„Dana Loesch, ég vil að þú
vitir að við ætlum að styðja
tvö börn þín á þann hátt sem
þú munt ekki gera,“ sagði
Emma González sem átti
ekki í vandaræðum með að
takast á við þessa tals-
konu NRA á CNN.
Ljóst er að skipulagð-
ar mótmælagöngur
verða haldnar í höf-
uðborginni Washington,
DC og víðar 24. mars
þannig að þetta er ekki
það síðasta sem á eftir
að heyrast í Gonzá-
lez og félögum.
Unglingarnir í Marjory Sto-neman Douglas-skólanum íFlórída hafa vakið athygli
og aðdáun heimsins. Í stað þess að
leggjast undir sæng, sem hefði ver-
ið skiljanlegt eftir svona mikið
áfall, en sautján nemendur skólans
voru skotnir til bana af 19 ára
byssumanni, fyrrverandi nemanda
við skólann, 14. febrúar, ákváðu
þeir að berjast. Í þetta skiptið með
orðin að vopni, fyrst á samfélags-
miðlum en svo í sjónvarpsþáttum.
Skilaboðin eru þau að þetta megi
alls ekki gerast aftur og það þurfi
að breyta byssulögum; „Aldrei aft-
ur“ er nafn hreyfingarinnar sem
varð til í kjölfarið.
Emma González er einn þessara
nemenda sem hefur vakið athygli.
„Hver einasta manneskja hérna,
allt þetta fólk ætti að vera heima
hjá sér að syrgja. En í staðinn er-
um við hérna uppi saman því ef
það eina sem ríkisstjórnin og for-
setinn geta gert er að hugsa til
okkar og biðja fyrir okkur, þýðir
það að það er tími fyrir fórn-
arlömbin að leiða þessa breytingu
sem við þurfum,“ sagði González á
baráttufundi um síðustu helgi. Hún
byrjaði á Twitter eftir skotárásina
og er þegar komin með 1,15 millj-
ónir fylgjenda. Samtök byssueig-
anda í Bandaríkjunum, NRA, eru
með rúmlega 600 þúsund fylgj-
endur.
Baráttan ber árangur
Baráttan er að skila sér. Tveir af
stærstu byssusölum landsins,
Walmart og Dick’s Sporting Goods,
ákváðu á miðvikudag að takmarka
byssusölu sína. Verslanirnar ætla
að hætta að selja allar tegundir
árásarriffla í verslunum sínum og
krefjast þess að kaupendur hafi
náð 21 árs aldri, óháð lögum. Sam-
kvæmt alríkislögum verður maður
að hafa náð 21 árs aldri til að
kaupa skammbyssu en frá 18 ára
aldri er hægt að kaupa hálf-
sjálfvirka riffla og fleiri tegundir af
byssum.
Walmart sagðist hafa endur-
skoðað stefnu sína í ljósi nýliðinna
atburða og Edvard Stack, forstjóri
Dick’s, sagði að nú væri komið nóg.
Barátta unga fólksins hefði náð til
hans. „Við elskum þessa krakka og
baráttu þeirra, nú er komið nóg.
Þetta náði til okkar. Við viljum
taka afstöðu og fá vonandi fólk til
að tala um þetta,“ sagði hann en
Dick’s var á undan Walmart með
ákvörðun sína. Ákvörðun Walmart
hefur líka mikið vægi út af stærð
sinni en keðjan selur byssur í um
helmingi af 4.000 stórverslunum
sínum. Í hverri viku versla um 150
milljónir manna víðs vegar um
Bandaríkin í Walmart.
Viðbrögð Trumps
Fyrstu viðbrögð Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta voru hins vegar
að vopna kennara, sem baráttufólki
fannst hlátursefni. Í vikunni skaut
síðan kennari af byssu í grunnskóla
nálægt Atlanta, reyndar í tómri
stofu, en það sýnir að vopnaðir
kennarar eru vart lausnin. Trump
kom síðan öllum á óvart, ekki síst
félögum sínum í Repúblikana-
flokknum, þegar hann tilkynnti í
beinni útsendingu á miðvikudag að
hann styddi breytingar á byssulög-
gjöf þar sem m.a. yrði skylda að
skoða bakgrunn kaupenda betur og
leyfilegt yrði að taka byssur tíma-
bundið af einstaklingum sem teljast
í áhættuhópi. Þetta er í algjörri
andstöðu við hin öflugu samtök
byssueigenda í landinu, NRA. Al-
menningur er í meira mæli á móti
þeim núna og endurspegla ákvarð-
anir fyrirtækja það en á meðal
þeirra fyrirtækja sem hafa slit-
ið öll tengsl við samtökin eru
bílaleigan Hertz, MetLife-
tryggingar og flugfélagið
Delta.
Barátta unga fólksins
sem lifði af skotárásina
er því að skila sér. Því
tókst að tala á yfirveg-
aðan hátt en samt sýna
tilfinningar. Það vill
ekki bara samúðar-
kveðjur heldur breyt-
ingar og vita að það
er hægt að koma í
veg fyrir svona
skotárásir og láta ekki segja sér
neitt annað.
Þau hafa tjáð sig svo vel í kast-
ljósi fjölmiðla að samsærissinnar
héldu því fram að González og
skólafélagi hennar David Hogg
væru leikarar sem fengnir hefðu
verið til að afla stuðnings við herta
byssulöggjöf meðal almennings.
Áhrif ungmennabóka
Þetta eru krakkar sem hafa alist
upp við lestur distópískra ung-
mennabóka (young adult) þar sem
unga fólkið svarar fyrir sig og þarf
oftar en ekki að berjast upp á líf og
dauða. Rithöfundurinn Patrick S.
Tomlinson @stelthygeek skrifaði á
skemmtilegan hátt um þennan hóp
á Twitter. „Þið fylgdust með kyn-
slóð sem ólst upp við Harry Potter,
Hungurleikana og Marvel-myndir,
þið tókuð burt von þeirra, störf og
framtíðina og studduð svo ýktasta
ofur-vondakall sögunnar í embætti
forseta og svo eruð þið hissa að
krakkarnir svari fyrir sig?“
Aldrei aftur!
Nemendurnir sem lifðu skotárásina af í Marjory
Stoneman Douglas-skólanum í Flórída hafa breytt
umræðunni um byssueign í Bandaríkjunum.
Dana Loesch,
talskona NRA.
Mótmæli
í mars
AFP
Skólastarf hófst á ný á miðvikudaginn eftir tveggja vikna hlé í Marjory Stoneman Douglas-grunnskólanum í Flórída.
’
Hann hefði ekki skaðað svona marga
nemendur með hnífi.
Emma González
ERLENT
INGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR
ingarun@mbl.is
BRETLAND
LONDON Listaverk nígeríska listamannsins Ben Enwonwu frá
1974 af Tutu prinsessu seldist fyrir meira en milljón pund eða um
170 milljónir íslenskra króna á uppboði í vikunni. Þetta er hæsta
verð sem verk eftir nígerískan nútímalistamann hefur selst á. Búið
var að meta myndina á um 40
milljónir íslenskra króna. Listsali
uppgötvaði verkið þegar hann
var beðinn um að meta nokkur
listaverk í íbúð í norðurhluta
London en ekki hafði verið vitað
um verkið frá láti listamannsins
árið 1994. Enwonwu er talinn
vera faðir nígerísks módernisma.
ÁSTRALÍA
Ástralir skiluðu meira en 57.000 vopn-
um til ríkisins á síðasta ári en þá var
hægt í þrjá mánuði að skila ólöglegum
vopnum án þess að eiga á hættu að
vera saksóttur fyrir það. Takmarkið er
að fækka ólöglegum vopnum í landinu.
Það er ólöglegt að eiga óskráð vopn
í Ástralíu en viðurlögin eru allt að 24
milljóna króna sekt og 14 ára fangelsi.
ÞÝSKALAND
BERLÍN Þjóðverjar rann-
saka nú tölvuárás á innri net
varnarmála- og innanríkis-
ráðuneytis. Talið er að þekktur
rússneskur hakkarahópur
„Fancy Bear“ eða APT28 hafi
verið að verki. Þetta er sami
hópurinn og talinn er standa
að baki tölvuárása í Banda-
ríkjunum, m.a. í tengslum við
forsetakosningarnar 2016.
Lekans varð vart í desember
og talið er að hakkararnir hafi
haft aðgang að tölvukerfunum
í hátt í ár.
SPÁNN
SAN SEBASTIÁN Óvenjulegar
vetrarhörkur hafa gert fólki lífi ð leitt
víðsvegar um Evrópu. Til að mynda
snjóaði á stöðum þar sem algengara
er að fólk leggist í sand og baði sig
í sjónum eins og í San Sebastán á
Spáni. Tugir manna hafa látist í frostinu
víðsvegar um álfuna en margir þeirra
voru heimilislausir. Samgöngur hafa víða farið úr skorðum vegna snjókomunnar.