Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.4. 2018
Darrell Steinberg, borgar-
stjóri Sacramento, sendi til
að byrja með frá sér yfirlýs-
ingu, þar sem hann kvaðst
ekki efast um dómgreind lög-
reglumannanna sem skutu
Stephon Clark. Vakti yfirlýs-
ingin mikla reiði. Eftir að
hafa horft á myndupptökur af
skotárásinni var komið ann-
að hljóð í strokkinn enda
munu þær hafa valdið borg-
arstjóranum ógleði. „Ég held
að þetta sé í raun og veru
tækifæri fyrir Sacra-
mento og landið allt
að sýna að önnur
leið er fær.“
Hann stóð í garðinum hjáömmu sinni þegarókunnugir menn komu
skyndilega út úr myrkrinu og hróp-
uðu: „Sýndu okkur hendurnar“ og
„byssa“ áður en þeir hófu skothríð,
innan við tuttugu sekúndum eftir að
þeir birtust. Í fimm mínútur eftir að
skothríðinni lauk stóðu mennirnir,
sem reyndust heyra til lögreglunni í
Sacramento í Bandaríkjunum, graf-
kyrrir og í stað þess að veita hinum
fallna aðstoð héldu þeir áfram að
skipa honum að sýna á sér hend-
urnar. Sá grunaði lá hreyfingarlaus
á jörðinni og veitti enga mótspyrnu
þegar lífvana líkami hans var færð-
ur í handjárn. Skotin tuttugu, sem
hleypt var af, höfðu nægt til að
verða honum að fjörtjóni. Ekkert
vopn fannst á hinum látna – aðeins
farsími, sem hann hafði verið með í
hendinni. Því næst skrúfuðu lög-
reglumennirnir fyrir hljóðið á
myndavélunum sem þeir báru á sér.
Stephon Clark var aðeins 22 ára
þegar hann lést, eftir samskipti sín
við lögreglu, 18. mars síðastliðinn.
Hann lætur eftir sig tvo syni, eins
og þriggja ára.
„Þeir skutu hann eins og hund.
Þetta var aftaka,“ sagði bróðir hins
látna, Stevante Clark, í samtali við
breska blaðið The Guardian í vik-
unni. Að því búnu stappaði hann
fætinum tuttugu sinnum niður; einu
sinni fyrir hvert skot sem lögreglu-
mennirnir hleyptu af. „Tuttugu
sinnum. Það er eins og að stíga á
kakkalakka … og svo aftur og aftur
og aftur …“
Lögreglan hefur sagt að lögreglu-
mennirnir hafi verið að bregðast við
ábendingu um að einhver væri að
brjótast inn í bíla þegar þeir gengu
fram á Stephon Clark í garðinum.
Skreið inn í svefnherbergi
Amma Clarks, Sequita Thompson,
var heima þegar hún heyrði skot-
hvellina; greip sjö ára gamalt barna-
barn sitt og skreið inni í svefn-
herbergi, þar sem þær langmæðgur
földu sig, að sögn The Guardian.
Bróðirinn, Stevante Clark, hefur
verið áberandi í fjölmiðlum eftir að
bróðir hans lést en atvikið hefur
vakið mikla reiði vestra. „Ég ætti
ekki að þurfa að verja bróður minn.
Þvert á móti ættu þeir að þurfa að
sanna sakleysi sitt,“ sagði hann og á
þar við lögreglumennina. „Ég er
uppgefinn. Ég hata þetta. Hata líf
mitt.“
Andlát Stephons Clarks er olía á
eldinn; margir eru löngu búnir að fá
sig fullsadda á því að lögregla skjóti
óvopnaða blökkumenn til bana. Osc-
ar Grant, Michael Brown, Eric
Garner, svo einhverjir séu nefndir.
Hvað þá á tímum þegar skotvopna-
eign er aldrei sem fyrr í umræðunni
og þrýst er á um herta byssulöggjöf.
Clark-málið er þó bláköld áminning
um það að lögregla skýtur mun
fleira fólk til bana á ári hverju en
fellur fyrir hendi fjöldamorðingja.
„Hver veitir lögreglunni aðhald?“
spurði Darron Powe, gamall vinur
Clark-fjölskyldunnar, í vikunni.
„Hver vill ljá okkur rödd?“
Stevante Clark er ekki bjartsýnn
á að lögreglumennirnir sem skutu
bróður hans þurfi að svara til saka.
„Líkurnar á því að lögreglumenn
séu dæmdir í fangelsi eru afar
litlar. Réttlætinu verður
ekki fullnægt vegna
þess að bróðir
minn á ekki aftur-
kvæmt.“
Dauða Clarks
hefur verið ákaft
mótmælt í
Sacramento
og mótmæl-
endur meðal
annars lokað
hraðbrautum og heft aðgengi að leik
körfuboltaliðs borgarinnar, Sacra-
mento Kings, sem lýst hefur yfir
stuðningi við baráttu vandamanna
Clarks; meðal annars með því að
klæðast bolum honum til heiðurs
fyrir leik gegn Boston Celtics á dög-
unum.
Hann var manneskja
Bent hefur verið á að Stephon Clark
hafi áður komist í kast við lögin og
setið inni. Luke Tailor, vinur hans,
segir einu gilda hver hann var eða
hvað hann hafði gert. „Hann var
manneskja, sem í sjálfu sér er nóg
til þess að halda baráttunni áfram.“
Bróðir Clarks segir fortíð hans
ekki koma málinu á neinn hátt við.
Hún réttlæti ekki árásina. „Hvers
vegna tölum við ekki frekar um mis-
tök lögreglumannanna? Fólk er
hrætt við lögregluna. Ég er hrædd-
ur við að búa hérna. Mér finnst ég
ekki öruggur. Hvert í andskotanum
getur maður farið ef maður er ekki
lengur öruggur heima hjá ömmu
sinni?“
Skotinn til
bana í garðin-
um hjá ömmu
Enn eitt málið, þar sem óvopnaður blökkumaður
er skotinn til bana af lögreglu, hefur vakið mikla
reiði í borginni Sacramento í Bandaríkjunum.
Stephon Clark
með syni sína.
Varð
óglatt
AFP
Sequita Thompson, amma Stephons Clarks, í öngum sínum á blaðamannafundi. Með henni er lögmaðurinn Ben Crump.
’
Hvert í andskotanum getur maður
farið ef maður er ekki lengur öruggur
heima hjá ömmu sinni?
Stevante Clark, bróðir hins látna.
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
ÁSTRALÍA
SYDNEY Leikkonan
Margot Robbie hefur tekið
að sér að framleiða sjón-
varpsþætti fyrir ástralska
ríkissjónvarpið sem byggjast
á helstu leikritum Williams
Shakespeares. Þættirnir
munu gerast í samtímanum
og verður sagan sögð frá
sjónarhóli kvenna. Robbie
kveðst einkum og sér í
lagi ætla að leita til kvenna
við gerð þáttanna og helst
kvenna sem ekki hafa verið
áberandi til þessa.
KÍNA
HONG KONG Leikarinn Anthony Wong
hefur komist í samband við tvo hálfbræður sína
eftir að hann sagði sögu sína í breska ríkissjón-
varpinu, BBC. Leikarinn hefur sama og engin
samskipti haft við föðurfjölskyldu sína gegnum
tíðina og kann BBC að vonum bestu þakkir
fyrir hjálpina en málið vakti óskipta athygli.
ÞÝSKALAND
HAMBORG Lars Ulrich,
trymbill málmbandsins
Metallica, sagði á stórri mark-
aðsráðstefnu á dögunum að
ástæðan fyrir því að sveit hans
hefði náð meiri vinsældum en
önnur þrassbönd og málmbönd
yfi rhöfuð, væri sú að fjórmenn-
ingarnir hefðu aldrei litið svo
á að þeir tilheyrðu tiltekinni
stefnu. Þeir væru engum háðir
nema sér sjálfum og hefðu fyrir
vikið óheft listrænt frelsi sem
gerði þeim kleift að skipta um
kúrs upp úr þurru.
INDLAND
KARNATAKA Dýralífs-
fræðingar klóra sér nú í
höfðinu eftir að myndskeið
af fíl að reykja nokkuð sem
virðist vera sígaretta birt-
ist á netinu. Engin fordæmi
ku vera fyrir slíkri hegðun
hjá villtum fílum. Á mynd-
skeiðinu sést fíll í Nagarahole-þjóðgarðinum taka eitthvað upp
með rananum, setja það upp í sig og blása síðan frá sér reyk.