Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.4. 2018 Darrell Steinberg, borgar- stjóri Sacramento, sendi til að byrja með frá sér yfirlýs- ingu, þar sem hann kvaðst ekki efast um dómgreind lög- reglumannanna sem skutu Stephon Clark. Vakti yfirlýs- ingin mikla reiði. Eftir að hafa horft á myndupptökur af skotárásinni var komið ann- að hljóð í strokkinn enda munu þær hafa valdið borg- arstjóranum ógleði. „Ég held að þetta sé í raun og veru tækifæri fyrir Sacra- mento og landið allt að sýna að önnur leið er fær.“ Hann stóð í garðinum hjáömmu sinni þegarókunnugir menn komu skyndilega út úr myrkrinu og hróp- uðu: „Sýndu okkur hendurnar“ og „byssa“ áður en þeir hófu skothríð, innan við tuttugu sekúndum eftir að þeir birtust. Í fimm mínútur eftir að skothríðinni lauk stóðu mennirnir, sem reyndust heyra til lögreglunni í Sacramento í Bandaríkjunum, graf- kyrrir og í stað þess að veita hinum fallna aðstoð héldu þeir áfram að skipa honum að sýna á sér hend- urnar. Sá grunaði lá hreyfingarlaus á jörðinni og veitti enga mótspyrnu þegar lífvana líkami hans var færð- ur í handjárn. Skotin tuttugu, sem hleypt var af, höfðu nægt til að verða honum að fjörtjóni. Ekkert vopn fannst á hinum látna – aðeins farsími, sem hann hafði verið með í hendinni. Því næst skrúfuðu lög- reglumennirnir fyrir hljóðið á myndavélunum sem þeir báru á sér. Stephon Clark var aðeins 22 ára þegar hann lést, eftir samskipti sín við lögreglu, 18. mars síðastliðinn. Hann lætur eftir sig tvo syni, eins og þriggja ára. „Þeir skutu hann eins og hund. Þetta var aftaka,“ sagði bróðir hins látna, Stevante Clark, í samtali við breska blaðið The Guardian í vik- unni. Að því búnu stappaði hann fætinum tuttugu sinnum niður; einu sinni fyrir hvert skot sem lögreglu- mennirnir hleyptu af. „Tuttugu sinnum. Það er eins og að stíga á kakkalakka … og svo aftur og aftur og aftur …“ Lögreglan hefur sagt að lögreglu- mennirnir hafi verið að bregðast við ábendingu um að einhver væri að brjótast inn í bíla þegar þeir gengu fram á Stephon Clark í garðinum. Skreið inn í svefnherbergi Amma Clarks, Sequita Thompson, var heima þegar hún heyrði skot- hvellina; greip sjö ára gamalt barna- barn sitt og skreið inni í svefn- herbergi, þar sem þær langmæðgur földu sig, að sögn The Guardian. Bróðirinn, Stevante Clark, hefur verið áberandi í fjölmiðlum eftir að bróðir hans lést en atvikið hefur vakið mikla reiði vestra. „Ég ætti ekki að þurfa að verja bróður minn. Þvert á móti ættu þeir að þurfa að sanna sakleysi sitt,“ sagði hann og á þar við lögreglumennina. „Ég er uppgefinn. Ég hata þetta. Hata líf mitt.“ Andlát Stephons Clarks er olía á eldinn; margir eru löngu búnir að fá sig fullsadda á því að lögregla skjóti óvopnaða blökkumenn til bana. Osc- ar Grant, Michael Brown, Eric Garner, svo einhverjir séu nefndir. Hvað þá á tímum þegar skotvopna- eign er aldrei sem fyrr í umræðunni og þrýst er á um herta byssulöggjöf. Clark-málið er þó bláköld áminning um það að lögregla skýtur mun fleira fólk til bana á ári hverju en fellur fyrir hendi fjöldamorðingja. „Hver veitir lögreglunni aðhald?“ spurði Darron Powe, gamall vinur Clark-fjölskyldunnar, í vikunni. „Hver vill ljá okkur rödd?“ Stevante Clark er ekki bjartsýnn á að lögreglumennirnir sem skutu bróður hans þurfi að svara til saka. „Líkurnar á því að lögreglumenn séu dæmdir í fangelsi eru afar litlar. Réttlætinu verður ekki fullnægt vegna þess að bróðir minn á ekki aftur- kvæmt.“ Dauða Clarks hefur verið ákaft mótmælt í Sacramento og mótmæl- endur meðal annars lokað hraðbrautum og heft aðgengi að leik körfuboltaliðs borgarinnar, Sacra- mento Kings, sem lýst hefur yfir stuðningi við baráttu vandamanna Clarks; meðal annars með því að klæðast bolum honum til heiðurs fyrir leik gegn Boston Celtics á dög- unum. Hann var manneskja Bent hefur verið á að Stephon Clark hafi áður komist í kast við lögin og setið inni. Luke Tailor, vinur hans, segir einu gilda hver hann var eða hvað hann hafði gert. „Hann var manneskja, sem í sjálfu sér er nóg til þess að halda baráttunni áfram.“ Bróðir Clarks segir fortíð hans ekki koma málinu á neinn hátt við. Hún réttlæti ekki árásina. „Hvers vegna tölum við ekki frekar um mis- tök lögreglumannanna? Fólk er hrætt við lögregluna. Ég er hrædd- ur við að búa hérna. Mér finnst ég ekki öruggur. Hvert í andskotanum getur maður farið ef maður er ekki lengur öruggur heima hjá ömmu sinni?“ Skotinn til bana í garðin- um hjá ömmu Enn eitt málið, þar sem óvopnaður blökkumaður er skotinn til bana af lögreglu, hefur vakið mikla reiði í borginni Sacramento í Bandaríkjunum. Stephon Clark með syni sína. Varð óglatt AFP Sequita Thompson, amma Stephons Clarks, í öngum sínum á blaðamannafundi. Með henni er lögmaðurinn Ben Crump. ’ Hvert í andskotanum getur maður farið ef maður er ekki lengur öruggur heima hjá ömmu sinni? Stevante Clark, bróðir hins látna. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is ÁSTRALÍA SYDNEY Leikkonan Margot Robbie hefur tekið að sér að framleiða sjón- varpsþætti fyrir ástralska ríkissjónvarpið sem byggjast á helstu leikritum Williams Shakespeares. Þættirnir munu gerast í samtímanum og verður sagan sögð frá sjónarhóli kvenna. Robbie kveðst einkum og sér í lagi ætla að leita til kvenna við gerð þáttanna og helst kvenna sem ekki hafa verið áberandi til þessa. KÍNA HONG KONG Leikarinn Anthony Wong hefur komist í samband við tvo hálfbræður sína eftir að hann sagði sögu sína í breska ríkissjón- varpinu, BBC. Leikarinn hefur sama og engin samskipti haft við föðurfjölskyldu sína gegnum tíðina og kann BBC að vonum bestu þakkir fyrir hjálpina en málið vakti óskipta athygli. ÞÝSKALAND HAMBORG Lars Ulrich, trymbill málmbandsins Metallica, sagði á stórri mark- aðsráðstefnu á dögunum að ástæðan fyrir því að sveit hans hefði náð meiri vinsældum en önnur þrassbönd og málmbönd yfi rhöfuð, væri sú að fjórmenn- ingarnir hefðu aldrei litið svo á að þeir tilheyrðu tiltekinni stefnu. Þeir væru engum háðir nema sér sjálfum og hefðu fyrir vikið óheft listrænt frelsi sem gerði þeim kleift að skipta um kúrs upp úr þurru. INDLAND KARNATAKA Dýralífs- fræðingar klóra sér nú í höfðinu eftir að myndskeið af fíl að reykja nokkuð sem virðist vera sígaretta birt- ist á netinu. Engin fordæmi ku vera fyrir slíkri hegðun hjá villtum fílum. Á mynd- skeiðinu sést fíll í Nagarahole-þjóðgarðinum taka eitthvað upp með rananum, setja það upp í sig og blása síðan frá sér reyk.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.