Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Blaðsíða 21
1.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Hönnun úr ýmsum áttum Hér gefur að líta fjölbreytta nýja hönnun úr ýmsum áttum sem hefur vakið athygli í mánuðinum. Bæði fáguð hönnun á heimilið og hönnun sem hefur áhrif á umhverfið og framtíðina. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Fyrirtæki eru sífellt að verða með- vitaðri um plastnotkun sína í vörum og umbúðum og áhrif þessa þáttar á umhverfið og fram- tíðina. Danska fyrirtækið Legó hefur nýverið hafið framleiðslu á sjálf- bærum kubbum úr sykurreyr til þess að minnka plastframleiðslu fyrirtækisins. Kubbarnir sem um ræðir eru safn af plöntukubbum og því frek- ar táknræn byrjun og eru vörurn- ar eru væntanlegar í verslanir seinna á árinu. Þrátt fyrir að plöntukubbarnir séu eingöngu smávægilegt brot af öllum Legó- kubbum sem framleiddir eru seg- ist Legó ætla að skipta út öllum plastkubbum fyrir sjálfbæra kubba fyrir árið 2030. Sjálfbæru kubbarnir eru fram- leiddir á svipaðan hátt og plast- kubbarnir og Legó leggur jafn- framt uppúr því að munurinn sé ekki sýnilegur. Legó ætlar að hefja framleiðslu á sjálfbærum plastkubbum úr sykurreyr. Sjálfbærir Legó-kubbar Legó stefnir á að vera hætt að fram- leiða kubba úr plasti árið 2030. Hönnunarhúsið Foster + Partners hefur hannað stól sem gefur fólki næði í háværum rýmum. Stólinn er með háu baki sem dregur svolítið úr hljóðmengun, formið er bogadregið sem er til mikilla þæginda. Á stólnum er síðan hægindastóll og armur ásamt litlu borði með usb-tengi svo nýta megi stólinn sem eins konar skrifstofurými. Stóllinn, sem ber heitið the Cove, var fyrst kynntur í síðustu viku á flugvallaráðstefnunni Passenger Terminal Expo í Stokkhólmi. Foster + Partners kynntu stólinn the Cove á flugvallaráðstefnu í Stokkhólmi í síðustu viku. Stóll sem veitir næði í háværum rýmum Stólinn er hægt að nýta sem eins konar skrifstofu þar sem þar er bæði lítið borð og usb-tengi. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA? eldu á milli fimm girnilegra tegunda f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru ægilegir, ljúffengir og fljótlegir. ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS V a þ Styrkur til tónlistarnáms MINNINGAR SJÓÐUR JPJ Ím y n d u n a ra fl / M -J PJ www.minningarsjodur-jpj.is 2017 Sölvi Kolbeinsson -saxófón 2016 Baldvin Oddson-trompet 2015 Rannveig Marta Sarc-fiðla 2014 Sólveig Thoroddsen-harpa 2013 Hulda Jónsdóttir-fiðla 2012 Benedikt Kristjánsson-söngur 2011 Matthías I. Sigurðsson-klarinett 2010 Gunnhildur Daðadóttir-fiðla 2009 Helga Þóra Björgvinsdóttir-fiðla 2008 Jóhann Nardeau-trompet 2007 Melkorka Ólafsdóttir-flauta 2006 Elfa Rún Kristinsdóttir-fiðla 2005 Ögmundur Þór Jóhannesson-gítar 2004 Víkingur Heiðar Ólafsson-píanó 2003 Birna Helgadóttir-píanó 2002 Lára Bryndís Eggertsdóttir-orgel 2001 Pálína Árnadóttir-fiðla 2000 Hrafnkell Orri Egilsson-selló 1999 Una Sveinbjarnardóttir-fiðla 1998 Árni Heimir Ingólfsson-píanó/tónv. 1997 Þórður Magnússon-tónsmíðar 1996 Ingibjörg Guðjónsdóttir-söngur 1995 Sigurbjörn Bernharðsson-fiðla 1994 Guðni A. Emilsson-hljómsveitarstj. 1993 Tómas Tómasson-söngur 1992 Þóra Einarsdóttir-söng f y r r u m s t y r k þ e g a r Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat, fyrrum aðal stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun á þessu ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til framhaldsnáms erlendis á skólaárinu 2018-2019. Veittur er einn styrkur að upphæð 1.500.000 kr. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 1. maí nk. til formanns sjóðsins: Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat Pósthólf 35, 121 Reykjavík Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.