Fréttablaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 6
STJÓRNSÝSLA Kjararáð neitar að afhenda Fréttablaðinu afrit af fundar­ gerðum sínum. Að mati kjararáðs var ráðið ekki stjórnvald í tíð eldri laga sem um það giltu. Því eigi stjórnsýslu­ og upplýsingalög ekki við um störf þess. Fréttablaðið hefur kært synjun kjararáðs sem ítrekað slær því á frest að svara úrskurðarnefnd um upp­ lýsingamál (ÚNU). Fréttablaðið bað þann 28. nóvem­ ber á síðasta ári um afrit af fundar­ gerðum ráðsins frá upphafi árs 2008 til dagsins í dag. Tæpum þremur vikum síðar var beiðnin ítrekuð og að auki beðið um afrit af bréfum frá þeim sem undir ráðið heyrðu til þess á sama tímabili. 20. desember barst svar frá skrifstofustjóra ráðsins þess efnis að ekki hefði gefist tími til að taka afstöðu til erindisins vegna fyrir­ hugaðra og yfirstandandi flutninga. Það myndi hins vegar verða „gert á nýju ári“. Á nýju ári bað blaðamaður um að það yrði afmarkað nánar hvenær árið 2018 von gæti verið á svari. Ítrekun þess efnis var send 24. janúar. Svar kjararáðs barst 12. febrúar þar sem beiðninni var hafnað þar sem hún var of víðtæk. Í milltíðinni hafði Frétta­ blaðið leitað milligöngu ÚNU. Sama dag og synjun kjararáðs barst var því sent nýtt erindi þar sem aðeins var óskað eftir afritum af fundargerð­ um frá ársbyrjun 2013 og til dagsins í dag. Þegar ekkert svar hafði borist eftir tvær vikur var á ný leitað til ÚNU. Þann 14. mars barst svar kjararáðs þar sem synjað var um afrit af fundar­ gerðunum. Í svari ráðsins kom fram að gögnin sem beðið var um hefðu orðið til í tíð eldri laga um ráðið en ný lög um kjararáð tóku gildi í júlí 2017. Því yrði farið með gagnabeiðnina samkvæmt þeim. Í nýjum lögum um kjararáð er kveðið á um að upplýs­ inga­ og stjórnsýslulög gildi um það en svo er ekki í þeim eldri. Í svarinu kom fram að ráðið væri sjálfstætt í störfum sínum, skipan þess reifuð og bent á að úrskurðum þess yrði ekki skotið til annarra en stjórnvalda. Að lokum var komist að þeirri niðurstöðu að „kjararáð [heyrði] ekki undir framkvæmdar­ valdið samkvæmt þeirri þrígreiningu ríkisvaldsins sem kveðið er á um í 2.  gr. stjórnarskrárinnar.“ Því gildi upplýsinga­ og stjórnsýslulög ekki um störf þess. Ráðið hefði þó „leitast við í störfum sínum að horfa til ákvæða nefndra laga“. Fréttablaðið kærði niðurstöðu þessa til ÚNU. ÚNU veitti ráðinu frest til 5. apríl til að skila frekari rökstuðn­ ingi fyrir ákvörðun sinni en fékk síðar frest til 11. maí til að svara. Síðar ósk­ aði ráðið eftir fresti til 28. maí en sá frestur fékkst ekki. Í fyrradag bárust þau skilaboð að ráðið hygðist skila umsögn sinni þann 4. júní. Það gekk ekki eftir og er umsögn boðuð í dag, 11. júní. – jóe Kjararáð vill ekki afhenda Fréttablaðinu fundargerðir sínar Rekstrarland er hluti af Olís Hleyptu lífi í veisluna þína með fallegum veisluvörum frá Rekstrarlandi. Pappírsdúkar, renningar, servíettur í mörgum litum, einnota diskar, glös og hnífapör, kerti og fleira. Útskriftir, brúðkaup, afmæli, ættarmót og endurfundir verða enn glaðlegri með veisluvörunum okkar. LEGGÐU Á BORÐ MEÐ OKKUR Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 8–17. Kjararáð telur sig ekki stjórnvald og því gildi stjórnsýslu- og upplýsingalög ekki um störf þess. KANADA Það kastaðist í kekki milli leiðtoga Bandaríkjanna og Kanada að loknum fundi G7 ríkjanna í Kanada um helgina. Einn viðskiptaráðgjafa Bandaríkjaforseta lét hafa eftir sér að það væri „sérstakur staður í helvíti“ fyrir Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada. Þetta var 44. fundur G7 ríkjanna en hópurinn samanstendur af Kanada, Bandaríkjunum, Frakklandi, Þýska­ landi, Ítalíu, Japan og Bretlandi. Rússar voru meðlimir hópsins til ársins 2014 en var úthýst í kjölfar framgöngu þeirra á Krímskaganum. ESB hefur einnig átt seturétt á fundum hópsins. Fundurinn nú fór fram 8.­9. júní en hann hefur verið kallaður G6+1 vegna afstöðu Donalds Trump, for­ seta Bandaríkjanna. Forsetinn var ein­ angraður á fundinum og endaði á því að yfirgefa hann á undan leiðtogum annarra ríkja. Neitaði forsetinn meðal annars að rita undir sameiginlega yfir­ lýsingu ríkjanna um að þau myndu vinna í sameiningu að því að draga úr viðskiptahindrunum og verndar­ stefnu eigin framleiðslu í formi tolla. Sem frægt er hafa Bandaríkin boðað hækkaða tolla á innflutt ál og stál. Ríki heimsins hafa svarað í sömu mynt og er deilan harðvítug. Hækkunin af hálfu Bandaríkjanna tók gildi þann 1. júní síðastliðinn og hafa ríki heimsins boðað gagnaðgerðir sem myndu taka gildi um næstu mánaðamót. „Ég tjáði forsetanum að við mynd­ um svara hækkuninni með gagn­ aðgerðum þann 1. júlí. Hann tjáði mér á móti að hann teldi það mistök. Ég er sammála því að það er ekki eitt­ hvað sem við viljum gera. Við viljum ekki skaða bandaríska verkamenn eða viðskiptasambandið milli Kanada og Bandaríkjanna. En ólögmætum hækk­ unum stjórnar Trumps verður að svara,“ sagði Trudeau á blaðamanna­ fundi. Venju samkvæmt stökk Trump á Twitter til svara. Sagði hann að Trudeau hefði verið „auðmjúkur og mildur“ á fundi þeirra. Yfirlýsing hans í kjölfar ráðstefnunnar hafi hins vegar verið „óheiðarleg og aum“. Tolla­ hækkanir Bandaríkjanna væru and­ svar þeirra við 270 prósenta tolli sem Kanada hefur lagt á innfluttar mjólk­ urafurðir. Fulltrúar stjórnar Trudeau sögðu á móti að ekkert hefði verið í yfirlýsingu hans sem ekki kom fram á fundi hans með forsetanum. „[Trudeau] stakk okkur í bakið,“ sagði Larry Kudlow, formaður banda­ ríska þjóðhagsráðsins, um yfirlýsing­ una. Peter Navarro, einn efnahagsráð­ gjafa Trumps, gekk lengra og fullyrti að það væri „sérstakur staður í helvíti“ fyrir menn sem gengju á bak orða sinna með þessum hætti. Tók hann undir orð forsetans um að Trudeau væri „óheiðarlegur og aumur“. Bæði Þýskaland og Frakkland hafa lýst yfir undrun sinni á málinu og for­ dæmt framgöngu Bandaríkjanna. joli@frettabladid.is Andar köldu milli Bandaríkjanna og Kanada eftir G7 ráðstefnuna Að mati stjórnar Donalds Trump er sérstakur staður í helvíti fyrir kanadíska forsætisráðherrann Justin Trudeau. Framganga hans á blaðamannafundi reitti stjórnvöld í nágrannaríkinu til reiði. Trudeau segir ekkert nýtt hafa komið fram á fundinum. Þýskaland og Frakkland hafa fordæmt viðbrögð Trumps. Stjórnarráð Þýskalands birti þessa mynd af fundinum en hún þykir ramma stemninguna ágætlega inn. NORDICPHOTOS/GETTY SINGAPÚR Forsetar Bandaríkjanna og Norður­Kóreu, þeir Donald Trump og Kim Jong­un, komu til Singapúr í gær til fundar. Það verður fyrsti fundur leiðtoga ríkjanna frá upphafi. Fundurinn fer fram á morgun á eynni Sentosa. Starfsbræðurnir ræddu við forsætisráðherra Singa­ púr við komuna til landsins og sagði Jong­un meðal annars að öll heims­ byggðin fylgdist með. Trump sagði að þetta gæti verið eina tækifærið til að koma á friði. Frá því að Donald Trump tók við sem forseti hefur samband mann­ anna tveggja verið nokkuð undar­ legt. Í upphafi skiptust þeir reglulega á móðgunum en skyndilega breyttist tónninn í samskiptum þeirra. Fund­ urinn á morgun er lokahnykkurinn í þeim viðræðum. – jóe Forsetarnir mættir til Singapúr ÍRAK Óttast er um afdrif atkvæðaseðla úr íröksku þingkosningunum eftir að eldur kviknaði í vörugeymslu í höfuð­ borginni Bagdad sem hýsti seðlana. Til stóð að endurtelja kjörseðlana. Flokkar sjía­klerksins Moqtada Sadr urðu hlutskarpastir í kosningunum 12. maí. Úrslitin þýða að núverandi ríkis­ stjórn hrökklast frá völdum. Kröfðust fulltrúar hennar endurtalningar á öllum greiddum atkvæðum. Víða eru uppi ásakanir um kosningasvindl. Talið er að stór hluti atkvæðaseðla úr Al­Rusafa­hverfi Bagdad hafi orðið að ösku í brunanum en það hefur ekki fengist staðfest. Óvíst er hvort niður­ stöður úr kjördæminu hefðu haft áhrif á niðurstöður endurtalningar. Ekki liggur fyrir hvort um íkveikju var að ræða. – jóe Atkvæði Íraka í ljósum logum 1 1 . J Ú N Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R6 f R é T T I R ∙ f R é T T A B L A ð I ð 1 1 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 1 8 -3 2 9 C 2 0 1 8 -3 1 6 0 2 0 1 8 -3 0 2 4 2 0 1 8 -2 E E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.