Fréttablaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 12
Rætt verður um hágengi krónunnar, áskoranir á vinnumarkaði, samkeppnismál og
regluverk, þróun skattbyrði fyrirtækja, menntastefnu fyrir atvinnulífið og leiðir til að gera betur.
Til máls taka Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, Ásta S. Fjeldsted,
framkvæmdastjóri VÍ, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Finnur Árnason,
forstjóri Haga, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráðherra.
Boðið verður upp á létta hádegishressingu, súpu og nýbakað brauð.
SAMKEPPNISHÆFT
ÍSLAND?
HÁDEGISVERÐARFUNDUR UM SAMKEPPNISSTÖÐU
ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA.
Á GRAND HÓTEL REYKJAVÍK, ÞRIÐJUDAGINN 12. JÚNÍ KL. 12.00-13.30
Finnur
Árnason
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
Bjarni
Benediktsson
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Ásdís
Kristjánsdóttir
Lilja
Alfreðsdóttir
Ásta S.
Fjeldsted
Vinsamlega skráið þátttöku á www.sa.is
Fótbolti Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu mætti á fyrstu æfingu
sína í Karbardinka í gær en tæplega
tvö þúsund manns voru á opinni
æfingu liðsins að sögn Guðna Bergs-
sonar, formanns KSÍ. Aðstæður voru
hinar bestu en það voru nokkrir leik-
menn auk fyrirliðans, Arons Einars
Gunnarssonar sem tóku létta æfingu
í gær. Ragnar Sigurðsson, Alfreð
Finnbogason og Birkir Bjarnason
tóku létta æfingu í sólinni enda langt
ferðalag að baki daginn áður. Aron
Einar tók aðeins létta upphitun með
liðsfélögum sínum en fylgdist vand-
lega með æfingaleik sem fór fram á
æfingasvæðinu. Heimir Hallgríms-
son, þjálfari landsliðsins, sagði að fjar-
vera leikmannanna ætti sér eðlilega
skýringu þegar Fréttablaðið ræddi við
hann í gær.
„Það var stífleiki og þreyta ennþá
eftir leikinn gegn Gana, það fengu
nokkrir leikmenn krampa þann
daginn og við vildum ekki taka neina
óþarfa áhættu,“ sagði Heimir og bætti
við:
„Fyrsta æfingin er alltaf svo-
lítið hættuleg, leikmenn eru eins og
beljur á vorin. Það er gott gras, góðar
aðstæður og menn verða full ákafir
en það var mjög klókt af þeim að taka
bara létta æfingu og vera með sjúkra-
þjálfaranum í dag. Ég á svo von á því
að þeir taki fullan þátt á morgun.“
Hann er enn vongóður um að
fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson
taki þátt í leiknum gegn Argentínu í
Moskvu eftir sex daga.
„Ég er mjög vongóður, miðað við
hvernig staðan er í dag eru allar líkur
á því að hann spili. Hins vegar þurfum
við að fara varlega með æfingarnar
hans, ef við förum of geyst af stað
getur komið eitthvert bakslag í þetta.
Eins og staðan er í dag reiknum við
með að hann spili gegn Argentínu.“
Heimir hrósaði Rússum fyrir upp-
bygginguna á æfingasvæðinu en hann
segir miklar framfarir hafa orðið á
einu ári.
„Það verður að hrósa þeim fyrir
það, fyrir ári var þetta svæði einfald-
lega í rúst en það er allt í toppstandi
í dag, völlurinn og allt saman. Fyrstu
viðbrögð okkar eru góð og það situr
oft í manni og það er gott að það var
jákvæð upplifun,“ sagði Heimir sem
tók góða veðrinu fagnandi.
„Ég hef komið hingað áður og kann
vel við allt saman hérna en ég verð að
segja að þetta lítur betur út að sumri
til. Maður kann betur við allt saman
þegar sólin kemur fram og hitastigið
hækkar,“ sagði Heimir glaðbeittur að
lokum. kristinnpall@frettabladid.is
Reiknum með
Aroni gegn
Argentínu
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska landsliðsins,
reiknar með því að Aron Einar Gunnarsson verði
klár á laugardaginn gegn Argentínu. Hann líkti
fyrstu æfingunni í Rússlandi við það þegar kýrnar
komast út á vorin í sólina og græna grasið.
Tæplega tvö þúsund manns fylgdust með fyrstu æfingu íslenska karlalandsliðs-
ins í Rússlandi í gær. Heimir Hallgrímsson er hæstánægður með alla aðstöðu
ytra og bjartsýnn á að Aron verði með gegn Argentínu. FRéTTAblAðið/EyþóR
1 1 . j ú n í 2 0 1 8 M Á n U D A G U R12 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
1
1
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
1
8
-2
D
A
C
2
0
1
8
-2
C
7
0
2
0
1
8
-2
B
3
4
2
0
1
8
-2
9
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K