Fréttablaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 46
Fótbolti „Það er alltaf gaman að
koma til móts við liðið og við vitum
hversu mikilvægur leikurinn er, við
þurfum þrjú stig hér ef við ætlum
okkur að komast inn á HM þann-
ig að eftirvæntingin er mikil. Við
erum keppnismanneskjur og við
getum ekki hleypt karlalandsliðinu
á HM og komist svo ekki sjálfar,“
sagði Gunnhildur hlæjandi og bætti
við:
„Við viljum auðvitað feta í þeirra
fótspor, það er gaman að sjá hvað
þjóðin fylkir sér á bak við þá og við
finnum fyrir þessum meðbyr.“
Er þetta fjórða viðureign liðanna
á stuttum tíma en Ísland hefur
unnið alla þrjá leikina til þessa.
Hafa þær skorað tólf mörk í þessum
þremur leikjum og haldið markinu
hreinu. Gunnhildur sagði erfitt að
skoða Slóvenana.
„Þetta er lið sem maður veit ekk-
ert hvernig spilar fyrr en flautað er
á. Þær eru orðnar öflugri og erfiðar
viðfangs, þetta verður þolinmæðis-
verk en ef við spilum okkar leik
tökum við þrjú stig. Við bjuggumst
við því að þetta yrði erfitt í Slóveníu
en náðum að brjóta þær niður og
við erum undir það búnar ef það
gerist aftur,“ sagði Gunnhildur en
hún tók því fagnandi að vera með
örlögin í eigin höndum.
„Það er betra að hafa þetta í
okkar höndum, þessi leikur er
alveg jafn mikilvægur og leikirnir í
september og við þurfum að mæta
í hann af fagmennsku.“
Gunnhildi líður vel í NWSL-
deildinni vestanhafs en hún segir
að bandaríska deildin sé sú sterk-
asta sem hún hafi leikið í.
„Mér líður mjög vel í Utah, þetta
er skemmtileg deild og það eru öll
lið mjög svipuð að getu þannig að
þetta eru alltaf erfiðir leikir. Ég er
mikil keppnismanneskja og vil
þurfa að leggja 100% í alla leiki.
Það tók okkur smá tíma að komast
í gang en við stefnum á úrslita-
keppnina.“
Vel mætt á alla leiki
„Við erum í rauninni með alveg
nýtt lið, erum með nýjan þjálfara
og nýja leikmenn en bæjarfélagið
hefur tekið okkur ótrúlega vel. Það
eru 8.000 manns á öllum leikjum.
Eigandinn sem á líka karlaliðið í
bænum gerir allt fyrir okkur sem
er eitthvað sem þekkist ekki alls
staðar í kvennaboltanum,“ sagði
Gunnhildur sem kann mjög vel við
fjallaloftslagið.
„Fjallið, umhverfið og náttúran.
Þetta er allt saman frábært, bærinn
er svolítið sérstakur en ég kann
ótrúlega vel við mig í Utah.“
kristinnpall@frettabladid.is
Leikurinn gegn Slóveníu í kvöld jafn
mikilvægur og sá gegn Þýskalandi
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, sem leikur með Utah Royals og íslenska kvennalandsliðinu, segir að íslenska liðið sé vel stemmt og tilbúið
í leikinn gegn Slóveníu á Laugardalsvelli í kvöld. Sigur í kvöld þýðir að stelpurnar okkar verði í toppsætinu fyrir lokaumferðirnar tvær í
haust en efsta liðið kemst beint inn á Heimsmeistaramótið 2019 sem fram fer í Frakklandi. Gunnhildur segir eftirvæntinguna mikla.
Gunnhildur Yrsa segir ekki hægt að hleypa karlalandsliðinu á Heimsmeistaramótið í ár og komast svo ekki sjálfar á HM í Frakklandi á næsta ári, létt í bragði. Fréttablaðið/Ernir
17-0 í síðustu fjórum leikjum
Kvennalandslið Íslands og Slóveníu
hafa mæst fimm sinnum og er töl-
fræðin íslenska liðinu í hag. Slóvenía
vann reyndar fyrsta leik liðanna, 2-1,
í undankeppni EM 2009.
Íslendingar hafa unnið síðustu
fjóra leiki sína gegn Slóvenum með
markatölunni 17-0. Ísland vann
seinni leikinn gegn Slóveníu í undan-
keppni EM 2009 með fimm mörkum
gegn engu. Margrét Lára Viðarsdóttir
skoraði þrjú marka Íslands í leiknum.
Ísland vann báða leikina gegn Slóv-
eníu í undankeppni EM 2017; 0-6 úti
og 4-0 heima. Dagný Brynjarsdóttir
skoraði tvö mörk í báðum leikjun-
um. Með sigrinum á Laugardalsvelli
héldu Íslendingar upp á sæti í þriðju
lokakeppni EM í röð.
Íslensku stelpurnar unnu svo fyrri
leikinn gegn því slóvenska í undan-
keppni HM 2019 með tveimur
mörkum gegn engu. Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir og Rakel Hönnu-
dóttir skoruðu mörkin í fyrri hálfleik.
Sigur í leiknum í kvöld, sem yrði
fimmti sigurinn á Slóveníu í röð,
kæmi Íslandi á topp síns riðils í
undankeppninni og í góða stöðu
fyrir leikina gegn Þýskalandi og
Tékklandi í haust. – iþs Freyr alexandersson er þjálfari íslenska kvennalandsliðsins. Fréttablaðið/Ernir
1 1 . j ú n í 2 0 1 8 M Á n U D A G U R14 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
1
1
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
1
8
-3
2
9
C
2
0
1
8
-3
1
6
0
2
0
1
8
-3
0
2
4
2
0
1
8
-2
E
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K