Fréttablaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 42
Önnur syrpa Netflix-þátt-anna Queer Eye kemur inn á streymisveituna á
föstudaginn, 15. júní. Fyrsta stiklan
úr þáttaröðinni var birt á fimmtu-
daginn í síðustu viku og þar sást að
í þessari þáttaröð taka þeir bæði
konu og transmann undir verndar-
væng sinn í fyrsta sinn.
Queer Eye þættirnir voru endur-
vaktir af Netflix eftir rúmlega
áratugar hlé á síðasta ári og fyrsta
syrpan af nýju þáttunum var birt
í febrúar á þessu ári. Þættirnir
ganga út á að fimm manna hópur
samkynhneigðra karlmanna tekur
að sér að bæta líf eins einstaklings,
sem er yfirleitt einhleypur gagn-
kynhneigður karlmaður.
Nýju þættirnir slógu óvænt í
gegn, en þeir eru töluvert öðruvísi
en þeir gömlu. Nýir stjórnendur
hafa tekið við, áherslan er meiri á
sálfræðilegu hliðina og að byggja
fólk upp frekar en útlitið og þætt-
irnir hafa tekið fyrir alls kyns sam-
félagsvandamál og snert hjarta-
strengi áhorfenda á ýmsan hátt.
Í nýju þáttaröðinni snúa hinir
fimm fræknu aftur til Georgíu í
Suðurríkjum Bandaríkjanna en
það hefur þegar verið staðfest að
þriðja þáttaröðin er tekin upp í
bænum Yass í Ástralíu. Áhorfendur
þáttanna geta líklega getið sér til
um hvers vegna nafn bæjarins
höfðaði til stjórnendanna.
Queer Eye
kemur aftur á
föstudag
Nú stendur yfir sýning á búningum á
Árbæjarsafni.
Nú stendur yfir þjóðbúninga-sýningin Búningana í brúk! á Árbæjarsafni. Þar getur
að líta fjölbreyttar gerðir íslenskra
þjóðbúninga en sýningin var
opnuð í Lækjargötu á laugardaginn
var og stendur yfir til sunnudagsins
17. júní. Prúðbúnar félagskonur í
Heimilisiðnaðarfélaginu sitja yfir
sýningunni allan sýningartímann
og þær veita gestum góðfúslega
upplýsingar um íslenska þjóðbún-
inga en félagið hefur staðið fyrir
átaksverkefninu Út úr skápnum
– þjóðbúningana í brúk síðustu
vikur og mánuði. Markmiðið með
því er að vekja fólk til umhugsunar
um íslensku búningana og hvetja
það til að nota búninginn við sem
flest tækifæri. Sýningin er haldin í
tilefni af 100 ára afmæli fullveldis
Íslands. Hún er opin frá kl. 10-17
alla daga. Búningana í brúk! er yfir-
skrift þjóðbúningasýningar sem
var opnuð í Árbæjarsafni síðast-
liðinn laugardag, 9. júní. Meðlimir
Heimilisiðnaðarfélagsins settu
upp sýninguna í tilefni af 100 ára
afmæli fullveldisins og hún nýtur
styrks úr afmælissjóði.
Þjóðbúninginn
í brúk
Spessi sýnir fjölbreytt mannlíf Breiðholtsins
Ljósmyndarinn Spessi verður í Listamannaspjalli í Klúbbi Listahá-tíðar í dag í Listasafni Reykjavíkur
– Hafnarhúsi. Spjallið hefst klukkan 12.
Portrettmyndir Spessa úr Breið-
holtinu sýna fjölbreytta mannlífsflóru í
póstnúmerinu 111.
Um sýninguna segir á vef Listahá-
tíðar:
„Í portrettmyndum Spessa er engu
líkara en viðfangsefnið, umhverfið og
væntingar ljósmyndarans renni saman
í eina órofa heild. Hann veit að hverju
hann leitar en er ekki alveg öruggur um
hvað hann fær. Eftirvæntingin skilar
sér í einhvers konar undarlega settlegri
óvissustemningu.“ E.G.
Sýningin er opin fimmtudaga til
sunnudaga frá klukkan 14 til 17 í Rýmd,
Völvufelli 13.
Sýningin er í samstarfi við Breiðholts
Festival og er styrkt af starfslaunasjóði
listamanna og menningar- og ferða-
málasviði Reykjavíkurborgar.
Spessi í spjalli
Frjáls framlög enginn kostnaður!
www.facebook.com/samferdafoundation
Þú finnur okkur á Facebook – ekki hika við að fylgja okkur þar, við
gerum góðverk í hverjum mánuði fyrir íslensku þjóðina.
Hjá okkur í Samferða er enginn kostnaður og allt rennur
óskert til þeirra sem þurfa svo sannarlega á að halda.
Þú getur hringt í eftirtalin númer:
VILTU GLEÐJA FORELDRA LANGVEIKRA BARNA
EÐA FJÖLSKYLDUR ÞAR SEM FORELDRI ER AÐ
GLÍMA VIÐ LÍFSÓGNANDI SJÚKDÓM?
907 1081 - 1.000 kr. 907 1083 - 3.000 kr.
907 1085 - 5.000 kr. 907 1090 - 10.000 kr.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . j ú N í 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
1
1
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
1
8
-1
0
0
C
2
0
1
8
-0
E
D
0
2
0
1
8
-0
D
9
4
2
0
1
8
-0
C
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K