Fréttablaðið - 11.06.2018, Side 9

Fréttablaðið - 11.06.2018, Side 9
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is ÖRUGG ENDURNÝJANLEG ORKA FYRIR ÞIG KYNNING Á DRÖGUM AÐ KERFISÁÆTLUN 2018-2027 OG UMHVERFISSKÝRSLU Fyrir liggur tillaga að kerfisáætlun 2018-2027 um uppbyggingu flutningskerfis raforku á Íslandi. Landsnet kynnir nú tillögu að kerfisáætlun í samræmi við raforkulög nr. 65/2003 m.s.br. og umhverfisskýrslu í samræmi við lög nr. 105/2006. Kerfisáætlun ’allar m.a. um grunnforsendur fyrir áætlun, niðurstöður valkostagreininga, áætlun um uppbyggingu meginflutningskerfisins til næstu 10 ára og lýsingar á framkvæmdaverkum á tímabilinu 2019-2021. Umhverfisskýrslan gerir grein fyrir forsendum, nálgun og niðurstöðu matsvinnu, ásamt þeim mótvægisaðgerðum sem lagðar eru til. Tillaga að kerfisáætlun og umhverfisskýrsla eru aðgengilegar á vefsíðu Landsnets, www.landsnet.is og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b. Ábendingar og athugasemdir við kerfisáætlun og um umhverfisskýrsluna skal senda til Landsnets á netfangið landsnet@landsnet.is eða á heimilisfangið Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík, merkt Athugasemdir við kerfisáætlun 2018-2027. Frestur til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar við tillögurnar er til og með 15. júlí 2018. Það er von Landsnets að flestir kynni sér efni kerfisáætlunar og umhverfisskýrslu. Landsnet stendur fyrir opnum kynningarfundum á: Egilsstöðum 12. júní á Icelandair Hótel Héraði, kl. 15:00-17:00 Akureyri 13. júní á Hótel KEA, kl. 15:00-17:00 Ísafirði 19. júní á Hótel Ísafirði, kl. 14:00-16:00 Hellu 26. júní á Stracta Hotel, kl. 15:00-17:00 Verið velkomin Ísland nýtur mikillar velvildar um þessar mundir. Landið þykir áhugavert og eftirsótt á svo marg- an hátt; fólk hefur áhuga á að heim- sækja Ísland og segja frá upplifun sinni. Þetta skapar sóknarfæri fyrir íslenskar afurðir úr sjó og af landi til frekari verðmætasköpunar. Nýir drifkraftar í kauphegðun Það er fróðlegt að rýna í breytingar á gildismati og viðhorfi neytenda til að átta sig á breytingum á kauphegðun og eftirspurn. Þróunin hefur verið í þá átt að fólk sækist síður eftir að eignast hluti og deilir frekar eða sam- nýtir. Á sama tíma sækjast neytendur í vaxandi mæli eftir upplifun. Samkvæmt nýlegri greiningu Deloitte endurspeglast þessi viðhorf hjá stórum hluta neytenda við val á matvælum. Meðvitaðir neytendur hugsa um hvaða áhrif hegðun þeirra hefur á umhverfi og samfélag. Þeir vilja vita hvar vörur sem þeir kaupa eru framleiddar eða jafnvel hannaðar, og það skiptir þá jafnvel meira máli en atriði eins og verð, tegund eða gerð vörunnar. Eftirspurn eftir lífrænum matvælum fer vaxandi, ár frá ári. Holl- usta og hreinleiki skipta máli. Alda- mótakynslóðin er tilbúin að greiða meira fyrir ferskan og heilsusamlegan mat og leggur töluvert á sig til að finna slíkar afurðir. Tækniþróun er sterkur drifkraftur og leikur stórt hlutverk í kaupákvörð- un neytenda sem og möguleikum framleiðenda til að ná til neytenda. Notkun farsíma og samfélagsmiðla vex hratt og innkaup í gegnum inter- netið verða auðveldari. Áskorunin fyrir framleiðendur felst í að nýta sér þetta í markaðssetningu á erlendum mörkuðum og til að ná til erlendra ferðamanna á Íslandi. Fólk deilir upplifun sinni og miðlar upplýsingum um vörur og þjónustu til vina sinna með einum smelli. Það treystir í minna mæli á skilaboð selj- enda og gerir kröfur til þeirra sem selja vörur og þjónustu um að nýta sér þessar boðleiðir. Getur áhugi á Íslandi aukið eftirspurn? Ímynd Íslands fellur vel að kröfum neytenda um umhverfisvæna og ábyrga framleiðslu. Hér eru sóknar- færi fyrir íslenska matvælafram- leiðslu og þá sem selja hreinar afurðir úr hafi eða af landi. Uppruni vöru getur orðið eins konar táknmynd sem neytendur sækjast eftir og vilja tengja sig við. Ekki bara vegna hins eiginlega upp- runa, heldur getur uppruni vísað til lífsgilda, svo sem hugmyndafræði við framleiðslu og meðferð hráefna, eða afstöðu til mannréttinda og sjálf- bærni. Við erum skammt á veg komin við að nýta okkur almennan áhuga á Íslandi og kröfu neytenda um að þekkja uppruna þeirra matvæla sem þeir kaupa í markaðssetningu erlendis. Við þurfum að fjárfesta meira í markaðsstarfi, segja áhuga- verðar sögur og fara nýstárlegar leiðir til að byggja upp vörumerki. Mark- miðið ætti að vera að skapa hughrif hjá neytendum svo þeir sækist eftir íslenskum afurðum og verði tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir þær. Umhverfið og almenn þróun er okkur Íslendingum því hagstæð. Uppruni er mikilvægur aðgrein- ingarþáttur í samkeppni, sem tengist ekki bara staðreyndum heldur líka tilfinningatengslum við uppruna vörunnar. Hvers virði er ímynd Íslands fyrir sjávarútveg og landbúnað? Guðný Káradóttir forstöðumaður sviðs matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar hjá Íslandsstofu Ég verð að játa að nú þegar heimsmeistaramótið í knatt-spyrnu nálgast er ég meira og meira að fara úr jafnvægi. Ég er fáránlega spenntur yfir þessu. HM í fóbolta hefur alltaf skipað virðingarsess í sálinni, alveg síðan í bernsku. Ég var aðdáandi Brass- anna. Ég fór að gráta þegar Zico, Eder, Junior og Sókrates töpuðu fyrir Paolo Rossi og ítalska lands- liðinu þegar ég var tíu ára. Ég man ennþá hina sáru tilfinningu. Þetta hafði djúpstæð áhrif á barnssálina. Kannski markaði þetta áfall í raun upphaf fullorðinsáranna. Ég hef alltaf horft á HM og EM, og sokkið inn í spennuna. Á annan fótbolta horfi ég varla neitt. Ég held ég deili því hugarástandi með fjölmörgum Íslendingum, að finn- ast hálfóraunverulegt og skrítið að núna skuli Ísland vera með í þessum áhrifamikla stórviðburði. Hvaða þýðingu hefur það? Þetta þarf að ræða. Flóðbylgja skellur á Heimsmeistaramótið mun skella á þessu samfélagi í lok vikunnar eins og flóðbylgja. Það mun engu máli skipta hverrar skoðunar við erum innbyrðis, hvað við gerum, hver við erum, hvaða stétt við tilheyrum. Við fáum öll sama hlut- verkaspjaldið afhent frá umheim- inum: Víkingar frá litla Íslandi. Hvort þú heitir Eyþór Arnalds eða Dagur B., Bjarni Ben eða Sanna Magda lena, Kata Jak. eða Björg- ólfur Thor. Hvort þú ert kvótaeig- andi eða verkalýðsforkólfur. Með eða á móti Reykjavíkurflugvelli. Ekkert svoleiðis mun skipta máli. Við verðum bara Íslendingar. Það er flóðbylgjan. Allt annað verður máð burt. Við verðum kraftaverkið á stórmótinu, örþjóðin sem reynir sig við hið ómögulega. Krúttlegt fólk sem öskrar húh. Þetta verða vikur hinnar íslensku staðal- myndar. Þeim hjálmi verður troðið á okkur öll. Sá sem hefur skipulagt mál- þing fyrir klukkan fimm næsta laugardag um til dæmis stöðuna í ríkisfjármálum, eða alþjóðleg viðhorf til norrænnar matargerðar, eða togstreitu mínímalisma og rókokkó stíls í íslenskum arkitektúr á árabilinu 1950-70, getur gleymt því að nokkur mæti. Það er hægt að afpanta sal og veitingar núna. Kalt mat: Fótbolti mun yfirtaka allt. Ráð til áhugalausra Ég er ennþá að bögglast með að ákveða hvort ég eigi að kaupa bol á mig og fjölskylduna. Svoldið dýrt. Við þyrftum þá að bíða með að kaupa nýjan ísskáp. Ég á Íslands- trefil, sem ég fékk, gott ef ekki, á Laugardalsvelli í ágúst 1981, þegar Ísland mætti Nígeríu í eina skiptið hingað til. Ísland vann 3-0. Það var rok. Árni Sveinsson skoraði af kantinum. Hann ætlaði að gefa fyrir en boltinn fauk inn, í stóran sveig yfir kappklæddan markvörðinn. Það væri skemmti- legt ef við skoruðum svona mark á móti Nígeru núna. En hvað um það. Ég hugsa að ég láti þennan trefil nægja, og andlitsmálningu. Ég fagna semsagt HM. Til eru aðrir hins vegar, og ég þekki þá nokkra, sem hafa ekki snefil af áhuga á þessu. Það fólk færi ekki í lands- liðstreyju nema gegn mjög háu gjaldi. Hvernig á þetta fólk að haga sér næstu vikurnar? Verður lífið óbærilegt? Ég veit ekki hversu skynsamlegt það er fyrir þetta fólk að reyna að vera fúlt á móti. Ég held að það berjist enginn við þessa flóðbylgju. Það verður talað um „strákana okkar“ sem mun sjálfsagt fara í taugarnar á einhverjum. Réttara er auðvitað að segja „strákarnir“, en ég held að enginn muni mæta á málþing um það. Mín fyrsta ráðlegging til þessa fólks, sem ég hef fulla samúð með, er að reyna að hafa gaman af þessu. Ég sá kanadískan dansflokk leika rollur á Listahátíð nú um helgina. Það var virkilega fyndið og skemmtilegt og mjög spennandi. Maður velti fyrir sér hvað rollurnar myndu gera næst. Maður sökk inn í atriðið. Fótbolti er ekki ósvipaður. Það má opna hugann fyrir honum einsog öðru. Ýmislegt hægt að gera Ef þessi nálgun virkar ekki, þá geta auðvitað líka falist mikil tækifæri í því að þjóðfélagið verði almennt upptekið við að horfa á sjónvarpið og að restin sé í Rússlandi. Það verða fáir í sundi um miðjan dag á laugardaginn næsta, til dæmis. Maður getur æft flugsund eins og brjálæðingur. Jafnvel á sprellanum. Ef maður er haldinn þörf til að ganga um í Kringlunni í Spider- manbúningi, verður gott tækifæri þá. Næstu vikur verða líka góðar til að gera ýmislegt, sem fólk vill kannski koma í framkvæmd svo lítið ber á. Koma út úr skápnum, fá sér húðflúr, hætta á Facebook, skipta um hárgreiðslu. Í pólitíkinni geta líka ótal tækifæri skapast: Ganga úr Nató, taka upp nýjan gjaldmiðil, samþykkja áfengi í mat- vöruverslanir, eyða gögnum. Ísland verður líklega aldrei eins aftur. Staðan næstu vikurnar Guðmundur Steingrímsson Í dag Það verða fáir í sundi um miðjan dag á laugardaginn næsta, til dæmis. Maður getur æft flugsund eins og brjálæðingur. Jafnvel á sprell- anum. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 1 . j ú n Í 2 0 1 8 1 1 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 1 8 -4 6 5 C 2 0 1 8 -4 5 2 0 2 0 1 8 -4 3 E 4 2 0 1 8 -4 2 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.