Fréttablaðið - 11.06.2018, Síða 14

Fréttablaðið - 11.06.2018, Síða 14
Laufey með föður sínum, Bjarna Ólafssyni, við útskriftina í maí. Ljúffeng, litfögur og spicy vegan súpa. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is minni um að komast á samning og tveimur dögum síðar hringdi síminn þar sem ég var beðin um að taka prufuvakt. Í kjölfarið fór ég síðan á samning hjá staðnum.“ Færir ýmsar fórnir Laufeyún segir námið hafa verið afar skemmtilegt og lærdómsríkt en um leið oft erfitt. „Það þarf nefni- lega að sinna miklu fleiri verkefnum á veitingastað en að elda mat og þar finnst mér hreinlæti við matreiðslu skipta mjög miklu máli. Sjálf get ég ekki eldað í skítugu umhverfi enda fer fátt meira í taugarnar á mér.“ Hún segir mikinn aga þurfa til að geta unnið á kokkavöktum þar sem vinnudagurinn sé oft 12-15 klukku- stundir á dag. „Svona starf er ekki fyrir alla og sumir gefast því hrein- lega upp. Ég hins vegar elska þessar vaktir því mér finnst geggjað að vera í fríi í miðri viku og fá stundum þriggja daga helgarfrí. Venjulegur vinnudagur er 14 klukkustundir á virkum dögum en um helgar fer hann oft í 15 klukkustundir en mér finnst það ekkert mál.“ Fyrir vikið þarf hún að vera til- búin til að fórna ýmsu í lífinu. „Ég hef misst af mörgum afmælum og boðum því ég var á vaktinni. Það tók tíma fyrir fólkið í kringum mig að skilja að það er ekki alltaf auð- velt að skipta á vöktum en það er að síast inn.“ Gaman í vinnunni Kopar er ekki bara vinnustaður í huga Laufeyjar heldur hefur hún eignast marga nýja vini þar. „Það var og er alltaf gaman í vinnunni með öllu skemmtilega fólkinu mínu. Ég hef unnið víða en aldrei fundið fyrir eins góðum starfsanda eins og í þessum bransa. Margir sem hafa hætt störfum hér eru enn vinir mínir þannig að Kopar er og mun alltaf vera stór partur af lífinu mínu.“ Veitingastöðum hefur fjölgað hratt undanfarin ár hér á landi og finnst Laufeyju framtíðin vera nokkuð björt fyrir hana og annað ungt fólk í greininni. „Það hafa aldr- ei starfað jafn margir í greininni og núna auk þess sem útskriftarhóp- urinn frá MK var sá stærsti í sögu námsins, eða um 35 nemendur.“ Langar að skoða heiminn Sem fyrr segir tók Laufey nýlega við stöðu vaktstjóra á Kopar en þeirri stöðu hafði Alfreð Pétur Sigurðsson gegnt frá stofnun. „Alfreð var vakt- stjóri minn í langan tíma og kenndi mér margt af því sem ég kann í dag. Ég er ótrúlega spennt fyrir nýja starfinu en ég er annar neminn af Kopar sem er ráðinn í starfið.“ Hún á sér þann draum að ferðast um heiminn sem kokkur og kynnast fleiri matreiðsluhefðum en íslenskum og læra um leið að vinna með erlend hráefni sem eru ekki þekkt hér á landi. „Mig langar mikið til Danmerkur og þá helst til Kaupmannahafnar. Þar eru margir mjög flottir veitingastaðir sem ég hef augastað á. Það eru líka fleiri lönd í myndinni en ég ætla að byrja á því að koma mér til Danmerkur og sjá svo til hvað gerist í fram- haldinu.“ Uppáhaldsáhaldið í eldhúsinu? Beittur og góður hnífur. Hvert er uppáhaldskryddið og hráefnið? Ég elska kúmin vandræðalega mikið og er óhrædd við að prufa að setja það í rétti. Annars eru uppá- haldshráefnin mín rjómi og smjör því það er aldrei nóg af því. Er einhver réttur eða hráefni sem þú ætlar að prófa í ár? Markmiðið er að baka meira og prufa mig áfram í eftirréttum. Ég fékk KitchenAid hrærivél í útskriftargjöf sem verður mikið notuð í tilraunastarfsemi. Hvaða matreiðslumaður, inn- lendur og erlendur, er í mestu uppá- haldi? Ég gæti talið þá endalaust upp. Ylfa Helgadóttir, meistari minn, er náttúrlega fyrirmyndin mín sem kokkur og lít ég mikið upp til hennar. Einnig lít ég mikið upp til Georgs Arnars Halldórssonar, mat- reiðslumanns á Óx. Hann er bara svo flottur og klár kokkur. Uppá- halds erlendi kokkurinn minn er Grant Achatz, eigandi Alinea í Chicago, sem er drauma Michelin staðurinn minn. Hvaða snilligáfu hefur þú í eld- húsinu sem fáir vita um? Það er eflaust eitthvað sem ég veit ekki sjálf. Ég er hins vegar góður leiðtogi og finnst góð liðs- heild skipta máli og passa alltaf að hún sé til staðar. Áttu þér uppáhaldsmatreiðslu- þátt? Það eru Chef’s Table og Hell’s Kitchen með Gordon Ramsay. Hvað eldar þú helst þegar þú ert heima? Súpur, því ég veit ekkert betra en góða og bragðmikla súpu. Hvers konar mat finnst þér spenn- andi að prófa þegar þú borðar úti? Ég borða mikið á veitingastöðum og panta mér yfirleitt nokkra smá- rétti til að deila með öðrum. Svo finnst mér mjög spennandi að velja smakkseðilinn svo hægt sé að prófa sem mest úr eldhúsinu, ég mæli svo sannarlega með því. Grillar þú mikið og þá hvað helst? Ég var einmitt að eignast grill og Le Creuset grillpönnu þannig að ég mun grilla mikið í sumar. Grillaðar lambakótelettur eru í miklu uppá- haldi ásamt grilluðum fiski. Laufey gefur hér lesendum upp- skrift að vegansúpu sem allir ættu að ráða við. „Sjálf elska ég súpur og um leið að gefa fólki sem er vegan að borða því það er svo þakklátt fyrir góðan mat. Ég á eina vinkonu sem heitir Eva Dröfn og er veganisti sem er klikkuð í þessa súpu.“ Spicy vegan súpa Fyrir 4 2 sætar kartöflur 3 hvítlauksgeirar 1 lítill engifer 1 rauður chili 5 gulrætur ½ lítri appelsínusafi, t.d. Trópí 1 lítri vatn 1 krukka kókosmjólk 1 msk. karrí 1 tsk. túrmerik 1 tsk. kúmin 1 tsk. timían 1 tsk. paprikukrydd ½ tsk. cayenne-pipar (má sleppa) Salt og pipar eftir smekk Ofan á súpuna: Smátt skorinn vorlaukur Saxaður ferskur kóríander Muldar salthnetur Límónubátar Skerið sætar kartöflur, gulrætur, engifer, hvítlauk og chili í bita. Sjóðið vel í potti með vatni, appelsínudjús og kókosmjólk. Á meðan þetta sýður er kóríander saxaður og vorlaukur skorinn smátt. Skerið límónu í báta og myljið salthneturnar. Allt sett í sér skálar. Maukið grænmetið í pott- inum með matvinnsluvél eða töfra- sprota. Kryddað með karríi, kúmini, timíani, paprikukryddi, cayenne- pipar og salti og pipar. Súpan er borin fram og hver og einn fær sér kóríander, vorlauk, salthnetur og límónu ofan á eftir smekk. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil- helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | „Svona starf er ekki fyrir alla og sumir hreinlega gefast því upp. Ég hins vegar elska þessar vaktir því mér finnst geggjað að vera í fríi í miðri viku og fá stundum þriggja daga helgarfrí,“ segir Laufey. MYND/STEFÁN Þann 14. júní n.k. mun stórglæsilegt sérblað um HM í knattspyrnu fylgja Fréttablaðinu. Áfram Ísland Blaðið kemur út sama dag og flautað er til leiks á mótinu. Fyrsti leikur Íslands er tveim dögum síðar, gegn ljón sterku liði Argentínu. Í blaðinu er að finna eitthvað fyrir alla. Gallharðir fótboltaáhugamenn fá sinn skammt af áhugaverðum viðtölum og fróðleik. Auk þess er slegið á léttari strengi fyrir þá sem hafa almennt minni áhuga á boltanum en eru að sjálfsögðu gallharðir stuðningsmenn íslenska liðsins. Í blaðinu verður einnig að finna stórt leikjadagatal sem auðvelt er að kippa út úr blaðinu og færa inn úrslit leikja jafnóðum á meðan á mótinu stendur. Áhugasamir auglýsendur geta fengið nánari upplýsingar í síma 512 5402 eða með því að senda póst á netfangið serblod@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . J Ú N Í 2 0 1 8 M Á N U DAG U R 1 1 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 1 8 -1 9 E C 2 0 1 8 -1 8 B 0 2 0 1 8 -1 7 7 4 2 0 1 8 -1 6 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.