Fréttablaðið - 11.06.2018, Side 16
Best er að reyna strax að ná blettum úr fatnaði og áklæði. Ellegar þorna þeir inn í efnið
og erfiðara verður og stundum
ógjörningur að ná þeim úr.
Áður en hafist er handa er skyn-
samlegt að lesa vel þvottaleiðbein-
ingar. Sumir litir og efni þola ekki
þvott og þá er ráðið að fara með
flíkina í efnalaug sem oft getur náð
erfiðustu blettum úr.
Meðal efna sem duga gegn
algengustu blettum eru brennslu-
spritt, aseton, hreinsað bensín,
uppþvottalögur, grænsápa, hvít
handsápa, sjampó, klór, glýserín,
þvottaefni og teppa- og húsgagna-
sápa.
Náttúrvæn blettaefni, sem til eru
á flestum heimilum, eru sítróna,
sem er náttúrulegt bleikiefni, borð-
edik, matarsódi, gróft salt, talkúm,
mjólk og súrmjólk. Tannkrem og
aska eru ágætis hreinsiefni á rispur
í gleri, málmi, viði og steini.
Soðið kalt vatn betra
Best er að þurrka sem mest upp
af vökva með eldhúspappír eða
klút. Suma bletti þarf svo að skafa
ofan af áður en hafist er handa við
eiginlega blettahreinsun.
Ef uppþvottalögur er notaður
á bletti í fatnaði er þessi aðferð
áhrifarík: Berið uppþvottalög
á blettinn og bleytið aðeins í
blettinum ef hann er orðinn þurr.
Setjið flíkina í plastpoka, lokið vel
fyrir og látið bíða í nokkra klukku-
tíma. Bleytið þá upp í blettinum
með volgu vatni og þvoið því næst
flíkina á venjubundinn hátt.
Sé vatn notað til að ná úr
blettum er best að sjóða kalt vatn
úr krana í stað þess að nota hita-
veituvatn sem getur skilið eftir
rönd í kringum staðinn þar sem
bletturinn var.
Algeng blettavandamál
l Bananar og ávextir: Nuddið
hvíta flík með sítrónusafa, látið
bíða smástund og þvoið svo á
venjulegan máta. Uppþvottalögur
gefur góða raun á ávaxtabletti.
l Blek og túss: Brennsluspritt
nær flestum tegundum bleks af
fatnaði og húsgögnum.
l Blóð: Best er að leggja flík með
blóðblettum í bleyti í kalt vatn
með salti (1dl gróft salt/3 l vatn)
í 15 mínútur. Berið síðan lífræna
sápu á blettina, látið liggja góða
stund, skolið og þvoið. Blóð
blettum í dýnum er best að ná
með því að reisa dýnuna upp
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Litsterkt sinnep getur verið erfitt viðeignar þegar það sullast á föt en til eru góð ráð við flestum blettum.
Skínandi hreint sumar
Bjartasti tími ársins stendur nú yfir með tilheyrandi grillveislum, grasgrænku og einstaka sulli. En
þegar sólin skín, skín líka í bletti og minnstu óhreinindi. Hér gefast góð vopn í blettastríðinu.
Sumarið er tími
grasgrænku
í fötum. Gott
er að nota
uppþvottalög
á erfiðustu blett-
ina og sítrónu-
safa á fatnað úr
hvítu efni.
NORDICPHOTOS/
GETTY
á rönd, bleyta í blettinum með
köldu vatni, gera þykkan graut
úr matarsóda og vatni og bera á
blettinn. Látið þorna og burstið
eða ryksugið af.
l Fita: Majónes, matarolía,
smjör, lýsi og önnur matarfita
leysist best upp með sápu eða
uppþvottalegi en lýsisbletti
getur þurft að bleikja í lokin með
sítrónusafa.
l Grasgræna: Uppþvottalögur eða
grænsápa eru góð á grasgrænu.
Berið á og látið liggja góðan
tíma. Skolið og þvoið vel á eftir.
Sítrónusafi eða bleikiefni getur
dugað vel á grasgrænu í hvítu efni.
l Kaffi og kakó: Skolið vel úr volgu
vatni. Berið uppþvottalög eða
grænsápu á blettinn og látið liggja
góða stund. Skolið og þvoið á
eftir.
l Karrí: Inniheldur litsterkt túrm
erik sem getur verið erfitt að ná
úr. Best er að nudda glýserín
upplausn á blettinn og láta bíða
í hálfa klukkustund. Skolið vel og
þvoið.
l Kertavax: Auðveldast er að frysta
eða kæla vaxblettinn og skafa
sem mest af. Gott er að leggja
eldhúspappír yfir litlaust vax
og strauja með volgu straujárni.
Brennsluspritt nær oftast lituðu
kertavaxi. Kertavaxleifar leysast
upp við 60°C hita.
l Kísill: Nota má edik, sítrónu eða
matarsóda í kringum blöndunar
tæki.
l Rauðvín: Stráið matarsóda yfir
blettinn og látið þorna. Skolið og
þvoið á venjulegan hátt. Hella má
hvítvíni strax yfir rauðvínsblett
eða nota sódavatn og þurrka upp
með svampi.
l Tómatsósa: Látið kalt vatn renna
á blettinn, notið mildan upp
þvottalög og þvoið síðan.
l Tyggjó: Best er að kæla og frysta
tyggjóklessuna. Skafið síðan
af með hníf og notið hreinsað
bensín til að ná restinni af blett
inum í burtu.
l Varalitur: Best er að nota
brennsluspritt eða hreinsað
bensín. Berið svo sápu á blettinn
og látið liggja um stund. Skolið
vel úr.
Heimild: Leiðbeiningastöð heimil
anna. Sjá leidbeiningastod.is.
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
Kaka ársins
2018
Verð
3200 kr. -
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . j ú N í 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
1
1
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
1
8
-1
4
F
C
2
0
1
8
-1
3
C
0
2
0
1
8
-1
2
8
4
2
0
1
8
-1
1
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K