Fréttablaðið - 11.06.2018, Page 19

Fréttablaðið - 11.06.2018, Page 19
Auðunn Stefánsson, forstöðumaður sölu á viðskiptalausnum hjá Advania, segir að fyrirtækið sjái um rekstur á kerfunum og viðhald á búnaðinum. MYND/STEFÁN Þúsundir íslenskra fyrirtækja nota sem stendur bókhalds-lausnir frá Advania og fer eftirspurnin ört vaxandi. Við- skiptavinir Advania eru af öllum stærðum og gerðum, þar á meðal fjöldi endurskoðunarstofa. Hægt er að fá áskrift af öllum bókhalds- kerfum og í ákveðnum tilfellum, þar sem umfang og flækjustig er lítið, fá fyrirtæki grunnupp- setningu frítt. Viðmiðið er að við- skiptavinurinn geti hafið notkun bókhaldskerfis 48 klukkutímum eftir að pöntun er gerð. Advania rekur bókhaldskerfin og undirliggjandi vélbúnað auk þess að annast afritatöku. Með áskriftunum fylgja hugbúnaðar- leyfi og uppfærsluréttindi ásamt tilheyrandi hýsingu á kerfunum. Auðunn Stefánsson, forstöðu- maður sölu á viðskiptalausnum hjá Advania, segir að þrátt fyrir að hægt sé að kaupa kerfin og setja upp hafi þróunin verið sú að flest fyrirtæki velji áskriftarleiðina. „Þannig losna fyrirtækin við að reka sinn eigin vélbúnað, við hjá Advania sjáum um reksturinn á kerfunum og að viðhalda búnað- inum undir kerfunum. Með því móti geta fyrirtækin einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi.“ Kerfi fyrir öll fyrirtæki Advania býður upp á mikla breidd í bókhaldskerfum og innihalda þau öll möguleika eins og að senda greiðslur í banka, stofna kröfur á viðskiptamenn og stemma af bankareikninga. Kerfin tengjast líka Þjóðskrá Íslands og bjóða upp á möguleika á að senda og taka á móti rafrænum reikningum, og standa rafræn skil á virðisauka- skattsgreiðslum. „Við bjóðum upp á þrjú bókhaldskerfi frá Micro- soft; TOK, NAV og AX sem henta fyrir allar gerðir fyrirtækja, allt frá smáum fyrirtækjum upp í stærstu fyrirtæki landsins,“ segir Auðunn og bætir við að kerfin byggist öll á Microsoft Dynamics umhverfinu sem hægt er að laga sérstaklega að þörfum viðskiptavina. Eitt útbreiddasta bókhaldskerfið hér á landi er NAV en þar er um að ræða alhliða viðskipta- og upp- lýsingakerfi sem hentar bæði milli- stórum og stórum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum, t.d. í heild- sölu, verslun og þjónustu, iðnaði, smásölu og dreifingu. Auk þess hefur Advania þróað fjölmargar viðbætur við NAV sem hjálpa fyrir- tækjum að ná enn betri árangri. Microsoft TOK er byggt á NAV bókhaldskerfinu en er í raun ein- faldari útgáfa og sniðin að smærri fyrirtækjum og einyrkjum. „TOK er fyrir smærri rekstur en NAV er frekar sniðið að stærri fyrir- tækjum. Þá erum við að tala um margþættari rekstur, til dæmis ef fyrirtæki eru með flókið verk- bókhald, mikla umsýslu í birgða- kerfi, ef þau eru í innflutningi eða eru í innflutningi og þurfa að toll afgreiða vörur. Fyrir smærri fyrirtæki í örum vexti er auðvelt að skipta úr TOK yfir í NAV því við- mótið er það sama.“ Þá býður Advania einnig upp á AX en það er kerfi fyrir stærri og flóknari rekstur. „Fyrirtæki í fjöl- þættum rekstri eða með alþjóðlega starfsemi geta reitt sig á Dynamics AX. Lausnin hentar stórum og umsvifamiklum fyrirtækjum sem til dæmis starfa á sviði framleiðslu, sölu eða þjónustu og eru með starfsstöðvar í mörgum löndum,“ segir Auðunn og bætir við að fjöl- mörg sérkerfi séu í boði fyrir Dyna- mics AX sem gera fyrirtækjum kleift að laga kerfið að sínum rekstri. Að auki eru í boði ýmsar lausnir sem eru samþætt bókhaldskerf- unum, svo sem greiningartól á borð við Power BI frá Microsoft, lausnir frá Microsoft til að halda utan umsamskipti við viðskipta- vini og skráningu sölutækifæra, afgreiðslukerfi frá LS Retail fyrir fyrirtæki í verslunar- eða veitinga- rekstri, vefverslanir svo nokkrar lausnir séu nefndar. Kennslustofa eða vefnámskeið Hjá Advania er boðið upp á nám- skeið fyrir allar þær lausnir sem fyrirtækið selur. „Við erum með kennslustofu hérna hjá okkur og sömuleiðis gefum við út mynd- bönd og kynningar. Hægt er að velja á milli þess að koma til okkar í kennslu eða skrá sig á vef- námskeið en þá eru teknir fyrir afmarkaðir verkþættir og er hvert myndband um stundarfjórðungur að lengd,“ segir Auðunn. Hjá Advania starfa rúmlega sex hundruð manns á Íslandi og þar af eru meira en hundrað starfsmenn sem starfa við bókhaldslausnir fyrirtækisins. Ítarlegar upplýs- ingar um bókhaldskerfin og aðra þjónustu Advania er að finna á vefsvæði fyrirtækisins, advania. is. Hægt er að hringja í 440-9000 og biðja um söluráðgjafa sem hafa sérhæft sig í því að greina hvaða lausnir henta mismunandi fyrir- tækjum. Breitt úrval bókhaldskerfa á einum stað hjá Advania Advania býður upp á bókhaldslausnir frá Microsoft fyrir allar gerðir fyrirtækja. Með því að vera í áskrift að bókhaldskerfi hjá Advania geta fyrirtæki einbeitt sér að kjarnastarfseminni. Hjá Advania er boðið upp á námskeið fyrir allar þær lausnir sem fyrirtækið býður upp á. KYNNINGARBLAÐ 3 M Á N U DAG U R 1 1 . j ú n í 2 0 1 8 BóKhALDSREKSTUR oG RÁÐGjöF 1 1 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 1 8 -3 7 8 C 2 0 1 8 -3 6 5 0 2 0 1 8 -3 5 1 4 2 0 1 8 -3 3 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.