Morgunblaðið - 17.04.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.04.2018, Qupperneq 4
Margt mælir með nýjum leikvangi Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Guðni Bergsson, formaður Knatt- spyrnusambands Íslands (KSÍ) seg- ist vera sannfærður um að fjölnota leikvangur með opnanlegu þaki í Laugardal í Reykjavík myndi borga sig upp á nokkrum árum. „Ég tel að fjölnota leikvangur sé æskilegasta niðurstaðan og KSÍ leggur mikla áherslu á það, vegna þess að slíkt gerði okkur kleift að leika mótsleiki í nóv- ember og mars, sem við annars getum ekki gert, þar sem við með okkar opna leik- vang erum við skilgreind sem vetrarleikvangur og fáum ekki að spila heimaleiki á þeim tíma árs,“ sagði Guðni. Ríkisstjórnin, borgarráð Reykja- víkur og stjórn KSÍ hafa nú sam- þykkt að stofna undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd og á und- irbúningi fyrir ákvörðun um upp- byggingu Laugardalsvallar skuli lokið fyrir lok ársins. Í gær var birt skýrsla starfshóps sem ríkið og Reykjavíkurborg skip- uðu í janúar til að fjalla um málið. Telur starfshópurinn margt mæla með því að núverandi þjóðarleik- vangur í Laugardal verði endurnýj- aður. Geti þjóðarleikvangur hvort heldur sem er verið opinn knatt- spyrnuvöllur eða fjölnotaleikvangur með opnanlegu þaki. Ljóst sé þó að kostnaður og áhætta við fjölnotaleik- vang sé vel umfram kostnað og áhættu við opinn knattspyrnuvöll. Mikilvægt skref Guðni átti sæti í starfshópnum. Hann segir að þessi niðurstaða sé mikilvægt skref í áttina að því að endurbyggja Laugardagsvöll. Fjöl- nota leikvangur yrði mikill akkur fyrir samfélagið í heild, því það væri hægt að nýta hann undir hvers kon- ar viðburði, tónleika og fleira. Vissu- lega sé slíkur leikvangur mun dýrari en opinn leikvangur, „en ég er sann- færður um að fjölnota leikvangur myndi borga sig upp á nokkrum ár- um,“ sagði Guðni Bergsson. Í niðurstöðum starfshópsins segir að ákvörðun um byggingu og eign- arhald þjóðarleikvangs verði tekin með hliðsjón af niðurstöðu vinnu undirbúningsfélags og stöðu opin- berra fjármála. Verði tekin ákvörðun um byggingu þjóðarleikvangs geti útboðsferli framkvæmda tekið frá nokkrum mánuðum og upp undir eitt ár og framkvæmdatími verið að minnsta kosti tvö ár. Nýr leikvangur Tvær útgáfur af hugsanlegum leikvangi. Sú efri sýnir leikvang sem tekur 17.500 manns með yfirbyggðum áhorf- endastæðum en opnu þaki. Śú neðri sýnir fjölnota leikvang fyrir um 20.000 áhorfendur með þaki sem hægt er að opna og loka.  Formaður KSÍ telur að fjölnota leikvangur með opnanlegu þaki yrði mikill akkur og borgi sig upp á nokkrum árum Guðni Bergsson 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 „Það kom ekkert út úr fundinum og enn ber mikið á milli,“ segir Áslaug Valsdóttir, formaður Ljósmæðra- félags Íslands, að loknum fundi með samninganefnd ríkisins í húsnæði Ríkissáttasemjara í gær. „Við erum ósammála og ekkert að nálgast. Ég held að það sé töluvert langt í land ennþá. Það er fundur eftir 10 daga og ég veit ekki hvort nokkuð gerist. Ég á ekk- ert frekar von á því,“ segir Áslaug og bætir við að ljós- mæður hugsi nú sinn gang og kanni hvað sé í stöðunni. Áslaug segir ljósmæður ekki sérlega bjartsýnar en þær séu í baráttuhug og taki öllu með ró. Það semjist á endanum. Vongóður þó að ekki sjái til lands „Við ræddum saman og niðurstaðan var sú að það sé ennþá svo langt á milli að við sjáum ekki til lands,“ sagði Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins. „Viðræðurnar eru búnar að vera í gangi heillengi og það ber mikið á milli,“ segir Gunnar og bætir við að þrátt fyrir allt sé hann vongóður um að samningar tak- ist. ge@mbl.is Ljósmæður hugsa sinn gang Morgunblaðið/Eggert Barátturglaðar Ljósmæður berjast fyrir betri kjörum.  Mikið ber á milli samningsaðila  Samningafundur skil- aði engum árangri  Ljósmæður rólegar en í baráttuhug Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ísland er í hópi sex Evrópulanda sem eru á áætlun varðandi barátt- una gegn lifrarbólgu C, að sögn AFP-fréttastofunnar. Þetta kom fram á alþjóðlegu lifrarþingi sem haldið var í París í síðustu viku. Markmið Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) um að útrýma lifrarbólgu, sem orsakast af veiru, sem mikilsháttar heilbrigðis- vá árið 2030 voru samþykkt fyrir tveimur árum. Stefnt er að því að fækka nýsmiti um 90% og dauðs- föllum vegna sjúkdómsins um 65%. Valgerður Rúnarsdóttir, yfir- læknir á Vogi, kynnti niðurstöður íslenska meðferðarátaksins gegn lifrarbólgu C á þinginu í París, að því er fram kom í fréttatilkynningu frá Landspítalanum. Á fyrstu fimm- tán mánuðum meðferðarátaksins höfðu 518 sjúklingar byrjað lyfja- meðferð á Landspítalanum, Vogi og í fangelsi. Þar af höfðu 473 lokið henni. Af þeim sem luku meðferð fengu 94% lækningu. Að þeim með- töldum sem ekki luku meðferð læknuðust 90%. Eftir tvö ár í átak- inu hafa 652 hafið meðferð við lifr- arbólgu C. Tölur um algengi lifrarbólgu C meðal einstaklinga sem lögðust inn í fíkniefnameðferð á Vogi og höfðu sögu um neyslu vímuefna um æð vöktu athygli. Algengi hefur lækkað um 72% síðan átakið hófst. Það fór úr 43% algengi árið 2015 í 12% al- gengi árið 2017. Ný smit eða ný- gengi meðal einstaklinga á Vogi lækkaði líka verulega eða um 53% milli áranna 2015 og 2017. Það gerð- ist þrátt fyrir að fjöldi nýrra ein- staklinga í hópi þeirra sem sprauta sig sé meiri. Þetta þykir vera vís- bending um góðan árangur eftir að- eins tveggja ára meðferðarátak gegn lifrarbólgu C á Íslandi. Vísindagreinar um átakið Vísindateymi meðferðarátaks gegn lifrarbólgu C hefur nýverið birt tvær greinar í virtum vísinda- tímaritum. Þar kemur m.a. fram að Ísland eigi góða möguleika á að verða fyrst til að ná markmiðum Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um útrýmingu lifrarbólgu C sem meiriháttar heilbrigðisvár. Í grein sem birtist í Journal of Internal Medicine er meðferðar- átakinu lýst og hvernig Ísland geti orðið fyrst landa til að ná markmiði WHO um 80% lækkun nýgengis lifrarbólgu C fyrir 2030. Þar segir og að gangi átakið áfram að óskum gæti Ísland náð að útrýma lifrar- bólgu C sem meiriháttar heilbrigð- isvá allt að tíu árum fyrr. Í grein í Journal of Hepatology kemur m.a. fram að með áframhald- andi skimun í áhættuhópum, að- gengi að lyfjameðferð og áherslu á skaðaminnkandi meðferð geti Ís- land orðið fyrst landa til að ná markmiðum WHO og komið í veg fyrir að nýr faraldur brjótist út. Ísland er í far- arbroddi gegn lifrarbólgu C  Ísland gæti orðið fyrst til að ná markmiðum varðandi lifrarbólgu C Morgunblaðið/Eggert Byrjunin Sigurður Ólafsson læknir kynnti átakið þegar það hófst. Átak gegn lifrarbólgu C » Þriggja ára átak gegn lifrar- bólgu C hófst hér á landi í árs- byrjun 2016. » Landspítalinn er ábyrgur fyrir framkvæmdinni. Sjúkra- húsið Vogur er aðalsamstarfs- aðili. » Sóttvarnarlæknir hefur yfir- umsjón með átakinu í umboði heilbrigðisráðherra. » Hægt er að lækna lifrar- bólgu C hjá flestum sjúklingum með viðeigandi lyfjagjöf. Í skýrslu starfshópsins kemur fram að Verkfræðistofan Verk- ís hafi greint og metið raun- hæfi kostnaðaráætlana sem liggja að baki framkvæmda- kostnaði við uppbyggingu á nýjum þjóðarleikvangi í Laugardal. Er m.a. byggt á gögnum og upplýsingum frá verkkaupum, stjórnendum Borgarbrags og ráðgjöfum ráðgjafarfyrirtækisins Lagar- dére Sports. Niðurstaða starfshópsins er að opinn knattspyrnuvöllur gæti kostað á bilinu á bilinu 7 til 11 milljarða en fjölnota mannvirki með opnanlegu þaki gæti kostað á bilinu 11 til 18 milljarða króna. Frekari undir- búningsvinna í næsta áfanga muni leiða í ljós hvor leiðin sé samfélagslega hagkvæmari og hvort réttlætanlegt sé að ráð- ast í framkvæmd af þessu tagi fyrir opinbert fé. Óvissa um kostnaðinn NÝR LEIKVANGUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.