Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 5

Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 5
Hreint loft – tær snilld! Við þökkum eftirtöldum aðilum gott samstarf Það er mikið öryggismál fyrir íslenskt þjóðfélag að vera sjálfbært í framleiðslu súrefnis og köfnunarefnis, ekki síst með tilliti til öryggis sjúklinga, en sjálfbærni og umhyggja fyrir umhverfinu eru leiðarstef í starfsemi ÍSAGA og Linde samsteypunnar. Fyrirtækið kappkostar enda að vera með vistvænar vörur og tæknilausnir, í takt við þá tæru snilld að vinna súrefni og köfnunarefni úr andrúmslofti - hreinu lofti! Verksmiðjan í Vogum er alsjálfvirk og er henni fjarstýrt af starfsfólki ÍSAGA, sem fylgist með rekstrinum allan sólarhringinn. Enginn mengandi úrgangur eða aukaefni fylgja framleiðslunni og eini útblásturinn er lyktarlaus vatnsgufa. Staðsetningin dregur einnig úr kolefnisspori ÍSAGA en u.þ.b. 90% af því fljótandi súrefni sem fyrirtækið dreifir fer til viðskiptavina sem eru í innan við 100 km fjarlægð frá nýju verksmiðjunni. ÍSAGA ehf. fagnar nýrri súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju í Vogum á Vatnsleysuströnd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.