Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 Q7 e-tron Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við. 5 ár a áb yr g ð fy lg ir fó lk sb íl u m H E K LU að u p p fy ll tu m ák væ ð u m áb yr g ð ar sk il m ál a. Þ á er að fi n n a á w w w .h ek la .i s/ ab yr g d HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is 10.420.000 kr.Verð frá Lars Løkke Rasmussen, forsætisráð- herra Danmerkur, kveðst dást að og bera virðingu fyrir Hans Jónatan, þrælnum frá St. Croix í Karíbahafi sem flúði hingað til lands frá Dan- mörku í byrjun 19. aldar og á marga afkom- endur hér á landi og erlendis. Þetta kemur fram í svarbréfi hans til eins afkomend- anna, Kirsten Pflomm, banda- rískrar konu sem býr í Danmörku. Veitti hún Morg- unblaðinu aðgang að svari ráð- herrans. Pflomm ritaði fyrir nokkru bréf til forsætisráðherrans og óskaði eft- ir því að hann veitti þessum forföður sínum frelsi. Í svarbréfinu segir ráð- herrann að hann hafi fyrir ári, þeg- ar minnst var þess að hundrað ár voru síðan nýlenduyfirráðum Dana í Karíbahafi lauk, hlýtt á fjölmargar frásagnir um kúgun fólks og þján- ingar karla, kvenna og barna á ný- lendutímanum. „Þetta var svartur og ófyrirgefanlegur kafli í sögu Danmerkur,“ segir í bréfinu. Sú hugmynd að ein manneska geti ver- ið eign annarrar sé furðuleg. Því miður hafi Hans Jónatan verið uppi á tímum þegar slík viðhorf höfðu enn ekki verið kveðin niður. Dóm- stólar hafi þá ekki fallist á að veita Hans Jónatan frelsi. „En eins og félagar hans á St. Croix ákvað hann að taka málin í eigin hendur til að öðlast frelsi. Ég dáist að því og ber virðingu fyrir því,“ segir forsætisráðherra Dan- merkur. „Ég get hvorki snúið við tímanum né dómi fortíðarinnar, hversu óskiljanlegir sem hlutirnir eru. En ég get sagt það frá hjarta mínu og huga, að barátta Hans Jón- atans fyrir því að losna úr fjötrunum skapar honum sess sem eilífum merkisbera frelsis.“ Saga Hans Jónatans var sögð í bók Gísla Pálssonar, prófessors í mannfræði við Háskóla Íslands, Hans Jónatan – Maðurinn sem stal sjálfum sér, sem út kom 2014. Bókin er ævisaga þrælsins sem varð versl- unarmaður og bóndi á Djúpavogi. Hún hefur einnig verið gefin út á ensku og dönsku og er væntanleg í franskri útgáfu í vor. gudmundur@mbl.is Løkke dáist að Hans Jónatan  Þrælahald svartur kafli í sögu Dana Hans Jónatan » Hörundsdökkur þræll í ný- lendu Dana í Karíbahafi. » Eftir flutning til Danmerkur strauk hann til Íslands í byrjun 19. aldar. » Var vel tekið, kvæntist hér og varð verslunarmaður og bóndi á Djúpavogi. Kirsten Pflomm Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Íris Róbertsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér á lista bæjarmála- félagsins Fyrir Heimaey, sem stofn- að var fyrir helgi í Vestmannaeyj- um. Íris sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að framboð hennar ætti sér ákveðinn aðdraganda því ákveð- in átök hefðu átt sér stað innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum. „Ég fór á þennan stofnfund hjá Fyrir Heimaey í síðustu viku og mér leist mjög vel á margt sem þar kom fram. Félagið á að standa fyrir ýmis grunngildi, sem snúa að lýðræðis- legum vinnubrögðum og bættu sam- félagi. Það var mjög góður andi á þessum fundi, sem gefur vísbend- ingar um það sem koma skal. Svo kom fram þessi áskorun á mig, um að bjóða mig fram, frá mörgum sem hafa verið samherjar mínir í pólitík í langan tíma,“ sagði Íris í samtali við Morgunblaðið í gær. Íris segist heyra og finna á því fólki sem skoraði á hana, að það vilji efla lýðræðisleg vinnubrögð í stjórn- málunum í Vestmannaeyjum. „Mig langar raunverulega að taka þátt í slíkri vinnu og veit að ég get lagt mitt af mörkum til þess,“ sagði Íris. Aðspurð hvort hún væri búin að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum, sagði Íris: „Ég er búin að senda mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins bréf varðandi öll mín trúnaðarstörf fyrir flokkinn og útskýra ákvörðun mína um að gefa kost á mér á listanum Fyrir Heimaey.“ Líkt og fram hefur komið var Íris afar ósátt við það að ákveðið var að efna ekki til prófkjörs í Sjálfstæð- isflokknum í Vestmannaeyjum, fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí nk. Íris var spurð hvort óánægja hennar hefði beinst að öðrum atrið- um í starfi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum og sagði hún svo vera, en vildi ekki útlista það nánar, en hún kvaðst hafa gert grein fyrir aðdraganda málsins í bréfinu til miðstjórnar. Leggur áherslu á lýð- ræðisleg vinnubrögð  Segir framboð sitt eiga sér ákveðinn aðdraganda eyjar.net/TMS Framboð Íris býður sig fram fyrir bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.