Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 12

Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta er minningabók umokkur Eggert. Ég hafðifengið inni í Kjarvalsstofu íParís árið 2013 til að sinna því sem ég var þá að vinna að. Og Eggert kom með mér. Við vorum í tvo heila mánuði að vori á þessum dásamlega stað sem París er. Þá verður maður svo hrærður og skrifar í litlu bókina sína hughrif. Og Eggert var allan tímann að taka ljósmyndir. En þessi ljóðabók varð til miklu síð- ar, nú þegar ég hafði tíma til að setjast niður milli bóka og semja ljóð. Og þá leitaði ég fanga í litlu Parísar- bókina. Smám saman púslaði ég þessu saman, ljóðum mínum og teikningum og ljósmyndum hans frá Parísardvölinni. Ég fann hvað sorgin við að missa Eggert dýpkaði mig, en hann lést óvænt rúmu ári eftir Par- ísardvölina, í lok árs 2014,“ segir Þór- unn Jarla Valdimarsdóttir, rithöf- undur og sagnfræðingur, sem sendir nú frá sér sína þriðju ljóðabók, Villi- maður í París. „Ég er svo vel menntuð að ég geri mér grein fyrir að við erum villi- menn, en í villimennskunni býr þrótt- ur. Stoltur villimaður hefur mikla reisn, eins og eðlilegt dýr,“ segir Þór- unn og bætir við að ljóðavaxtar- broddurinn sé alltaf að nema ný skynlönd, bæði með texta og mynd- um. „Þegar maður veit að maður fer í ferðalag, þá ferðast maður í mörgum víddum. Í grískri goðafræði segir frá undraskógi þar sem eru ótal lítil vötn, en hvert vatn er hlið inn í aðra vídd. Þegar við skynjum söguna þar sem við förum um, þá stækkar heimurinn svo mikið. Þá opnast aðrar víddir, rétt eins og í þessari ljóðabók, þar opnast fjórða víddin.“ Getur sleikt báðar nasir Þórunn segir að henni finnist gott að hvíla sig með því að skrifa ljóð, þegar hún er þreytt við vinnu á stórri bók í lausu máli. „Ég fékk kraft út úr því að vinna þessa ljóðabók, kraft til að klára bókina um Skúla fógeta, sem ég er að vinna að núna. Það sálfræðilega við þetta er að ham- ingjan sem fylgir því að klára eitt- hvað, hún varir aðeins í stutta stund. En að vera á leiðinni að einhverju göfugu takmarki gerir mann ham- ingjusaman. Ég er því afar ánægð núna, ég þarf ekkert að pompa niður eftir útkomu þessarar bókar. Ég ætla að reyna að tileinka mér að vera æv- inlega byrjuð á öðru verkefni þegar ég klára annað. Svo ég haldi fluginu og hamingjunni,“ segir Þórunn og bætir við að hún reyni meðvitað að skapa í ólíku formi, því hún vill helst ekki endurtaka sig. Enda skrifar hún jöfnum höndum sagnfræðirit, ævi- sögur, skáldsögur og ljóð. „Endurtekning er fyrir mér hundleiðinleg, ég hef ekki tíma fyrir endurtekningar í einu stuttu lífi. Þess vegna les ég frekar harðkjarna fræði- bók sem segir mér eitthvað nýtt um manninn eða tilveruna sem ég vissi ekki, heldur en að lesa skáldskap sem er ekki ferskur og segir mér ekkert nýtt. Ég er til dæmis nýbúin að lesa bestu bók í heimi, Máttugar meyjar, eftir Helgu Kress, en hún fjallar um þátt kvenna í íslenskum fornbók- menntun, ófrjálsar konur en sterkar sem neita að láta kúga sig. Af því skapast átök milli kynjanna sem drífa frásagnir fornbókmennta áfram. Þetta er lykilbók um að bókmennta- sagan útskýrir hvernig orðið var tek- ið af konum og þær þaggaðar.“ Þórunn segir að hér líkt og ann- ars staðar í heiminum hafi verið mikil skáldadýrkun og þá einvörðungu á karlkyns skáldum. „Ég man eftir sjálfri mér sem krakka að láta tung- una ná upp í nefið, því það merkti að maður væri skáld. Ég var svo mikið barn að ég fattaði ekki að ég átti ekk- ert með að vera skáld, því ég væri Hoppar alltaf út í þá Signu sem lífið er Þórunn Jarla Valdimarsdóttir segist óvart hafa orðið rithöfundur. Hún skrifar jöfnum höndum sagnfræðirit, ævisögur, skáldsögur og ljóð. Nýútkomna ljóðabók, Villimaður í París, tileinkar hún eiginmanninum heitnum, Eggerti Þór Bern- harðssyni, sem lést 2014. Hún segir sorgina við að missa Eggert hafa dýpkað sig. Ljósmynd/Úr ljóðabókinni Í París Eggert tók þessa mynd af Þórunni að punkta hjá sér hughrif. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Góð stund Eggert og Þórunn með kettina, Hnoðru, Loðbrand og Rósu. Náttúrufræðingurinn og handverkskonan Guðrún Bjarnadóttir hefur jurta- litað ull samkvæmt gömlum hefðum á vinnustofu sinni í Hespuhúsinu í Borgar- firði í mörg ár. Þar mun hún halda tvö jurtalit- unarnámskeið í næsta mán- uði á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Fyrra námskeiðið er almennt jurtalit- unarnámskeið og haldið 19. maí, en það seinna, 26. maí, fjallar um lit- unaraðferð þar sem indígólitun er notuð. Guðrún, sem er hafsjór fróðleiks um jurtalitun og grasnytjar, segir m.a. í grein um gras- nytjar á landnámsöld og myrkum miðöldum í árs- riti Sögufélags Borgar- fjarðar 2017 að til litunar hafi fjallagrös verið not- uð til að búa til gulan lit. Einnig hafi þau með aðstoð keytu [staðið hland] gefið rauðan lit, en það hafi verið mikil fyrirhöfn og tímafrek. Í greininni rek- ur hún hvernig fólk nýtti sér villtar jurtir með margvíslegum hætti, að- allega til matar, drykkjar og lækninga en líka sem búsáhöld og verkfæri til að bæta híbýli sín. Og ekki síst til að lita og fegra klæði. Endurmenntun Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri Grasnytjar Guðrún jurtalitar á vinnustofu sinni í Hespuhúsinu. Jurtir til að lita og fegra klæði Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk þú ert koddinn milli fóta minna þú ert sængin sem faðmar mig tíminn er ekki til Kær leikur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.