Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Amino bitar
Í 30 g pokanumer
passlegur skammur af
próteini (26,4 g í poka).
Inniheldur 88%prótei
og engin aukaefni.
88% prótein
100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Einfaldle a hollt
og gott
snakk
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Undirbúningur borgarlínu fer að
óbreyttu á nýtt stig í haust með því
að þriðji áfangi fer af stað.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri Reykjavíkur, fjallaði um stöðu
málsins í vikulegu fréttabréfi sínu á
föstudaginn var. „Þegar við erum
búin að samþykkja málið í borgar-
stjórn verða nær öll sveitarfélögin á
höfuðborgar-
svæðinu búin að
festa borgarlínu í
sessi í sínum
skipulagsáætlun-
um,“ sagði Dagur
þar m.a.
Hrafnkell Á.
Proppé, svæðis-
skipulagsstjóri
hjá Samtökum
sveitarfélaga á
höfuðborgar-
svæðinu (SSH), segir Hafnarfjörð,
Kópavog, Mosfellsbæ og Seltjarnar-
nes hafa samþykkt breytingu á
svæðisskipulagi vegna borgarlínu.
Afgreiðslan sé í ferli hjá Garðabæ og
Kjósarhreppi og megi búast við að
hún liggi fyrir um mánaðamótin.
Greina frá athugasemdum
Hrafnkell segir að þegar sam-
þykkt allra sveitarfélaganna liggur
fyrir muni svæðisskipulagsnefnd
SSH upplýsa um athugasemdir við
skipulagið og hvernig brugðist var
við þeim, líkt og skipulagslög kveði á
um. Svo fari málið til Skipulagsstofn-
unar sem hafi það hlutverk að stað-
festa skipulagið. Að lokinni auglýs-
ingu í b-deild stjórnartíðinda taki
breytingin endanlega gildi.
Spurður hvaða þýðingu það muni
hafa segir Hrafnkell að þá verði
borgarlínan „orðin staðföst stefna
sveitarfélaga í svæðisskipulagi með
leiðbeiningum um hvernig sveitar-
félögin útfæri hana nánar í sínum
aðalskipulögum“.
Hann segir þessa staðfestingu
nauðsynlegan undirbúning verkefn-
isins, bæði hvað varðar samgöngu-
framkvæmdina og uppbyggingu
íbúða meðfram borgarlínu. Borgar-
línan snúist enda ekki aðeins um
samgöngumannvirkin. Sveitarfélög-
in þurfi að marka henni pláss í skipu-
lagi og byggja upp í kringum hana.
Ýmsar tímasetningar og upphæðir
hafa verið nefndar í tengslum við
undirbúning borgarlínunnar.
Raunhæft að byrja 2019
Spurður með hliðsjón af gangi
mála hvort raunhæft sé að hefja
framkvæmdir við borgarlínu á næsta
ári, eða 2020, segist Hrafnkell telja
það raunhæft. „Auðvitað vonumst
við til að geta byrjað á þessu verk-
efni sem fyrst. Sveitarfélögin hafa í
samvinnu við samgönguráðuneytið
og Vegagerðina lagt fram heildstæð-
ar tillögur um uppbyggingu sam-
göngumannvirkja á höfuðborgar-
svæðinu sem gera ráð fyrir úrbótum
á bæði stofnvegum og borgarlínu.
Málið er á dagskrá ríkisins og sam-
kvæmt fjármálaáætlun eiga viðræð-
ur við sveitarfélögin um borgarlínu
að hefjast á þessu ári. Undirbúning-
ur framkvæmda hefst ekki fyrr en að
þeim viðræðum loknum, vonandi á
næsta ári,“ segir Hrafnkell.
Hann bendir á að undirbúningur-
inn skiptist í fimm hluta. Fyrsti
áfanginn sé stefnumótun og undir-
búningur og gerð nýs svæðisskipu-
lags. Næsti áfangi sé mótun heildar-
kerfis og legu borgarlínu í svæðis-
skipulagi og aðalskipulagi. Þessum
áfanga sé nú að ljúka. Næst taki við
þriðji áfangi með undirbúningi fram-
kvæmda og fjármögnun. Samhliða
uppbyggingu borgarlínu sé stefnt að
uppbyggingu á þróunarásum með-
fram henni. Miðað við þessa tímalínu
geti fyrsti áfangi borgarlínu rúllað af
stað innan fjögurra ára.
Undirbúningur borgarlínu
Stefnu-
mótun og
undirbún-
ingur
Nýtt
svæðis-
skipulag
Mótun
heildar-
kerfis
Lega í aðal- og
svæðisskipu-
lögum
FjármögnunApríl 2018
Við erum hér
Framkvæmdamat
Upphafs-
fasi
Gróf
vinsun
Undir-
búningur
Gerð deili -
skipulags
Útboð og
framkvæmdirSamkomulag milli sveitarfélaga, Vegagerðar og samgönguráðuneytis
Greiningarvinna á
ólíkum leiðum
Gróft kostnaðarmat
á heildarkerfi
Akstur
borgarlínu
Skoðun á nauðsyn-
legum úrbótum á
vegakerfinu
Formlegt sam-
starf milli ríkis
og sveitarfélaga
Ákvörðun
um skiptingu
kostnaðar
Aðlögun leiðakerfis Strætó Uppbygging á þróunarásum
Ákvarðanir um
fyrsta áfanga
Mat á áhrifum
á nærsam-
félagið eftir
mismunandi
útfærslum
Nákvæm útfærsla
göturýma
Hönnunargögn
Borgarlína
Aðrir innviðir
Heimild: SSH
Borgarlínan að fara á nýtt stig
Svæðisskipulagsstjóri hjá SSH reiknar með að undirbúningur verkefnisins fari á nýtt stig í haust
Skipulagning íbúða meðfram borgarlínu geti þá hafist Verkefnið geti jafnvel hafist á næsta ári
Hrafnkell
Á. Proppé
Eins og rakið er í greininni hér til
hliðar hefur Hafnarfjörður afgreitt
skipulag borgarlínu.
Ólafur Ingi Tómasson, formaður
skipulags- og byggingarráðs
Hafnarfjarðar, segir að þótt ekki
sé gert ráð fyrir borgarlínu í sér-
rými á öllum svæðum skipulagsins
til ársins 2030 muni hún ganga
allar leiðir, þ.m.t. upp á Velli.
Leið 1 hjá Strætó gengur milli
Hafnarfjarðar og miðborgar
Reykjavíkur. Hún er nú ásamt leið
6, miðbær-Grafarvogur, ein vin-
sælasta leiðin í kerfinu. Margir
námsmenn nota þessar leiðir.
Borgarlínan fari upp á Vellina
SÝN SKIPULAGSSTJÓRA Í HAFNARFIRÐI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Hafnarfirði Vallahverfið er í mótun.
Allt um sjávarútveg