Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu u KASSAR u ÖSKJUR u ARKIR u POKAR u FILMUR u VETLINGAR u HANSKAR u SKÓR u STÍGVÉL u HNÍFAR u BRÝNI u BAKKAR u EINNOTA VÖRUR u HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað 17. apríl 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 98.43 98.89 98.66 Sterlingspund 140.82 141.5 141.16 Kanadadalur 78.1 78.56 78.33 Dönsk króna 16.334 16.43 16.382 Norsk króna 12.679 12.753 12.716 Sænsk króna 11.696 11.764 11.73 Svissn. franki 102.48 103.06 102.77 Japanskt jen 0.9174 0.9228 0.9201 SDR 143.27 144.13 143.7 Evra 121.66 122.34 122.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 146.8478 Hrávöruverð Gull 1340.75 ($/únsa) Ál 2324.5 ($/tonn) LME Hráolía 71.94 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Heimavellir hafa selt erlendum fjárfestingarsjóði nýtt hlutafé í félag- inu, segir í tilkynn- ingu til Kauphallar- innar vegna fyrir- hugaðrar skrán- ingar á Aðallista. Ef miðað er við verðbil tilboðs- bókar B er verð- mæti hlutarins 302-374 milljónir króna. Verðbilið er 1,38-1,71. Heimavellir munu á næstu dögum ásamt Landsbankanum funda með fjár- festum í tengslum við almennt útboð á nýju hlutafé í félaginu og skráningar á hlutabréfamarkað. Áskriftartímabil útboðsins er dagana 7. og 8. maí. Í útboðinu bjóða Heima- vellir til sölu 750.000.000 nýja hluti í félaginu, fjölga má seldum hlutum í allt að 900.000.000 sé eftirspurn fyrir hendi. Heimavellir selja til er- lends fjárfestingarsjóðs Fasteignir í eigu Heimavalla. STUTT BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Hlutfall innflytjenda af starfandi á vinnumarkaði hefur farið vaxandi. Árið 2012 var hlutfallið 9,8% að jafn- aði en hefur vaxið í 16,5% árið 2017. Erlendum starfsmönnum fjölgaði um rúmlega sex þúsund á milli ára í desember síðastliðnum. Á sama tíma fækkaði Íslendingum á vinnu- markaði um 37. Þetta kemur fram í gögnum Hagstofunnar sem birtust í gær. „Við getum ekki á nokkurn hátt staðið undir hagvexti með íslensku starfsfólki,“ segir Hannes G. Sig- urðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. „Að teknu tilliti til örorku fjölgar ekki Íslend- ingum á vinnumarkaði,“ segir hann. Það þurfi þó að minnsta kosti þrjú þúsund nýja starfsmenn á ári til að geta staðið undir 2,5-3% hagvexti. „Ef hagvöxtur er tvöfalt meiri þarf tvöfalt fleiri erlenda starfsmenn. Þetta birtist glöggt í þessum tölum Hagstofunnar,“ segir Hannes. Hann bendir á að ferðaþjónusta og bygg- ingargeirinn séu í miklum vexti. „Við erum á skeiði vinnuaflsfreks hagvaxtar.“ Há laun laða að útlendinga Ásgeir Jónsson, deildarforseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands, segir að það hafi verið tiltölulega mikill hagvöxtur hérlendis á undan- förnum árum og að ekki hefði verið hægt að taka á móti mikilli fjölgun ferðamanna nema með liðsinni er- lends vinnuafls. „Laun hér á landi eru há í alþjóðlegum samanburði, einkum laun ófaglærðra sem hafa hækkað hlutfallslega meira en laun menntaðra á umliðnum árum. Gengi krónu hefur einnig styrkst verulega á sama tíma. Á undanförnum fjórum árum hafa íslensk laun því hækkað um 40-50% í erlendri mynt sem lað- ar að erlent starfsfólk í ferðaþjón- ustu, fiskvinnslu og byggingarstarf- semi,“ segir hann. Hannes segir að hagvöxtur bæti líf okkar allra. Af þeim sökum bæti innflutt vinnuafl hag landsmanna. „Auðvitað felast í því margar áskor- anir að fá svona marga útlendinga til landsins. Við þurfum að sinna þeim vel og búa svo um hnútana að þeir standi jafnfætis okkur hinum sem höfum búið hér lengi,“ segir hann og nefnir að mikil- vægt sé að læra af öðrum þjóðum, bæði það sem vel hefur tekist og af mistökum þeirra. Það þurfi m.a. að kenna þeim íslensku og styðja við bakið á þeim félagslega. Frumvarp um keðjuábyrgð Félagsmálaráðherra lagði fram lagafrumvarp í gær um réttindi og skyldur starfsmannaleiga eða er- lendra fyrirtækja sem senda starfs- menn til Íslands tímabundið. Hall- dór Grönvold, aðstoðar- framkvæmdastjóri ASÍ, segir að í frumvarpinu sé verið að innleiða svokallaða keðjuábyrgð. Hann seg- ist vonast til lögin leiði til þess að notendafyrirtækin, þ.e. þau sem nýta sér þjónustu umræddra fyrir- tækja, vandi sig betur því annars geta þau þurft að standa undir launakostnaðinum sjálf. Beri ríkari ábyrgð Fram kemur í lagafrumvarpinu að gert sé ráð fyrir að notendafyr- irtæki geti borið ábyrgð á vangoldn- um lágmarkslaunum starfsmanna þess erlenda fyrirtækis sem veitir notendafyrirtækinu þjónustu á grundvelli þjónustusamnings og ábyrgð notendafyrirtækisins nái jafnframt til vangoldinna lágmarks- launa starfsmanna annarra fyrir- tækja sem hafa gert þjónustusamn- inga sem byggjast á þjónustusamningi án þess að um sé að ræða beint samningssamband milli notendafyrirtækisins og þess- ara fyrirtækja. Ókleift að standa undir hagvexti án útlendinga Laun á Íslandi eru há » Laun hér á landi eru há í al- þjóðlegum samanburði. » Einkum laun ófaglærðra sem hafa hækkað hlutfallslega meira en laun menntaðra á umliðnum árum. » Gengi krónu hefur einnig styrkst verulega á sama tíma. » Á undanförnum fjórum ár- um hafa íslensk laun því hækk- að um 40-50% í erlendri mynt.  Þurfum þrjú þúsund nýja starfsmenn á ári til að standa undir 3% hagvexti Hlutfall innflytjenda á vinnumarkaði 15% 12% 9% 6% 3% 0% 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 Heimild: Hagstofan Allir Lögheimili á Íslandi Lögheimili erlendis Hannes G. Sigurðsson Ásgeir Jónsson Halldór Grönvold Ákveðið hefur verið að hefja sölu- ferli á Jarðborunum. Jarðboranir eru í eigu SF III, sem er félag í rekstri Stefnis hf., einkafjárfesta og starfsmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu. Árið 2012 keypti SF III 82% hlut í Jarðborunum af Íslandsbanka. Hluthafar SF III eru, samkvæmt fréttum frá þeim tíma, Festi lífeyr- issjóður, Gildi lífeyrissjóður, LSR, Samherji og Stefnir - Íslenski at- hafnasjóðurinn. Baldvin Þor- steinsson, forstjóri Jarðborana, á 7,8% hlut í fyrirtækinu, samkvæmt ársreikningi. Tekjur fyrirtækisins jukust um 46% á milli ára og námu 6,2 milljörðum króna árið 2016. Hagnaður dróst hins vegar veru- lega saman á milli ára. Hann nam 303 millj- ónum króna árið 2016, saman- borið við 1,5 milljarða árið áður. Þann hagnað má þó rekja til niðurfærslu skulda fyrir 1,5 milljarða króna. Íslandsbanki hefur umsjón með söluferlinu. Bjóða fjárfestum Jarðboranir til sölu Baldvin Þorsteinsson Afkoma Origo, sem skráð er í Kauphöll, verður lakari á fyrsta fjórðungi ársins en á fyrsta árs- fjórðungi í fyrra. Áætlað er að fé- lagið tapi 30-40 milljónum króna á fyrsta fjórðungi í árs, borið saman við 70 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í afkomuviðvörun. Áætlaðar tekjur félagsins á fyrsta ársfjórðungi eru um 3.750 milljónir króna samanborið við 3.996 milljónir á sama tíma árið 2017. Gert er ráð fyrir að rekstrar- hagnaður félagsins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) verði um 105 milljónir króna sam- anborið við 242 milljóna króna árið 2017. Lakari rekstrarniðurstöðu má rekja til nokkurra þátta. Megin- ástæðan er minni vörusala hjá Origo samanborið við fyrsta árs- fjórðung 2017 og hækkandi launa- kostnaður. Í byrjun árs tók félagið upp nýtt nafn og sameinaði tvö inn- lend dótturfélög við móðurfélagið. Mikil vinna og kostnaður hefur far- ið í sameininguna og hefur félagið varið hærri fjármunum á fjórð- ungnum í markaðsstarf og endur- mörkun samanborið við fyrri tíma- bil. Einskiptiskostnaður á fyrsta ársfjórðungi vegna ofangreinds er áætlaður um 50 milljónir króna, segir í tilkynningu. Félagið vinnur enn að uppgjöri fyrsta ársfjórðungs. Origo boðar 30-40 milljóna króna tap

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.