Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018
✝ Björn Einars-son fæddist í
Reykjavík 2. júlí
1934. Hann and-
aðist á heimili sínu
Hraunbraut 8 í
Kópavogi 6. apríl
2018.
Foreldrar Björns
voru Einar Ásgeir
Guðbjartsson, f. 15.
september 1901, d.
15. október 1985, og
Skúlína Theodóra Haraldsdóttir,
f. 5. ágúst 1900, d. 30. janúar
1988.
Björn ólst upp í Reykjavík í
Efstasundi 6, einn af sjö systk-
inum, systkini hans eru Kristín
Jósefína, f. 18. mars 1927, d. 28.
júlí 1995, Halldóra Guðbjört, f. 4.
febrúar 1928, d. 2. júní 2014, Ant-
on, f. 8. desember 1928, d. 10.
apríl 2004, Haraldur, f. 24. febr-
úar 1937, d. 28. mars 1982, Hörð-
ur, f. 18. júlí 1940, d. 9. júlí 2016,
og Hafsteinn, f. 11. maí 1942.
Uppeldisbróðir Björns er Einar
er Páll Enos, f. 12. febrúar 1964.
Sonur hans frá fyrri sambúð er
Sigursteinn. 3) Valdimar Jón, f.
6. mars 1963, kvæntur Hildi Ing-
ólfsdóttur, f. 22. júlí 1966, börn
þeirra eru Anna Magnea, Yrsa
Hrund, d. 25. desember 1987,
Oddur Aron, Lilja Bjarney og
Sigurbjörg Katla. 4) Ingibjörg
Ebba, f. 31. ágúst 1965, dætur
hennar eru Telma Glóey Jóns-
dóttir og Rebekka Unnur Rún-
arsdóttir. 5) Sverrir, f. 4. desem-
ber 1974, giftur Herdísi Krist-
jönu Heiðarsdóttur, f. 1. nóvem-
ber 1978, dætur þeirra eru
Sandra Rut, Andrea Ósk og
Harpa Ösp. Langafabörn eru
fimm: Áróra Kristín, Aðalsteinn
Smári, Böðvar Darri, Máni og Ið-
unn Eva.
Björn fór ungur til sjós eða 13
ára gamall. Eftir að elsta barn
þeirra hjóna fæddist kom hann í
land og gerðist bílstjóri. Hann
var mikill fótboltaáhugamaður,
dyggur stuðningsmaður Fram
og lét sig sjaldan vanta á völlinn.
Hann var mikill fjölskyldumaður
og hafði gaman af því að ferðast
um landið með fjölskyldunni.
Útför Björns fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 17. apríl
2018, og hefst athöfnin klukkan
13.
Guðbjartsson, f. 2.
ágúst 1945, d. 27.
ágúst 2016.
Hinn 4. desember
1959 kvæntist Björn
eftirlifandi eigin-
konu sinni Önnu
Magneu Valdimars-
dóttur, f. 1. október
1938. Foreldrar
hennar voru Valdi-
mar Össurarson, f.
1. maí 1896, d. 29.
júní 1956, og Jóna Bjarney Jóns-
dóttir, f. 11. október 1896, d. 9.
maí 1986. Börn Björns og Önnu
Magneu eru: 1) Ásgerður Theo-
dóra, f. 24. ágúst 1959, sonur
hennar frá fyrri sambúð er Björn
Rúnar Benediktsson. Ásgerður
er gift Böðvari Héðinssyni, f. 6.
nóvember 1963, synir þeirra eru
Héðinn Össur og Hörður Bersi.
Dóttir Böðvars frá fyrri sambúð
er Auður. 2) Brynhildur, f. 9.
október 1960, dóttir hennar frá
fyrri sambúð er Margrét Björk
Þór. Sambýlismaður Brynhildar
Mér er það bæði ljúft og skylt
að minnast elskulegs tengdaföð-
ur míns Björns Einarssonar sem
nú hefur kvatt þennan heim eftir
stutta en erfiða sjúkdómslegu.
Ég hef þekkt Bjössa og Möggu
tengdamömmu í nær 25 ár. Það
er ótrúlegt til þess að hugsa að ég
hafi þekkt þau lengur en foreldra
mína og kannski er það þess
vegna sem við höfum átt svo rík-
an þátt í lífi hvor annars.
Ég hitti Bjössa fyrst yfir kaffi-
spjalli þar sem hann talaði um
allt mögulegt og sagði frá ýmsum
hversdagslegum hlutum eins og
um stórviðburði væri að ræða.
Ég komst að raun um það síðar
meir að þetta var einn af hans
góðu eiginleikum. Eftir þessi
fyrstu kynni okkar leið mér eins
og ég hefði alltaf þekkt hann og
upp frá því fannst mér alltaf gott
að vera nálægt honum og ég sótt-
ist eftir því.
Þegar við hittumst ræddum
við oft stöðuna í landsmálunum
eða fótbolta og var það aðdáun-
arvert að sjá hversu trúr hann
var sínum skoðunum og sínu fé-
lagi, sem var Fram. Hann hafði
skoðun á öllu og var oft hnyttinn í
tilsvörum. Bjössi var mikill fjöl-
skyldumaður og naut sín best
innan um fjölskylduna, þá var
hann hrókur alls fagnaðar með
sitt spaug. Hann vildi allt fyrir
barnabörnin gera, var skemmti-
legur afi og iðinn við að segja sög-
ur af þeim.
Bjössi og Magga tengdafor-
eldrar mínir tóku mér einstak-
lega vel alveg frá byrjun, kannski
vegna þess að enginn var tengda-
sonurinn fyrir.
Við Bjössi urðum strax góðir
vinir og miklir mátar. Ég tók
strax eftir því hversu samhent
þau hjónin voru, þó hvort á sinn
hátt, og allt sem þau bardúsuðu
saman tókst svo vel til að úr varð
hið mesta ævintýri og saga að
segja frá.
Það var ýmislegt sem við
Bjössi baukuðum saman. Bjössi
kunni margt fyrir sér og var lag-
inn í höndunum. Það var ósjaldan
sem við settumst niður til skrafs
og ráðagerðar um hvernig best
væri að bera sig að við það sem
við vorum að bauka. Við nutum
þess að spekúlera fram og til
baka. Það er nauðsynlegt að
spekúlera í hlutunum sagði
Bjössi. Það var hans mottó í líf-
inu.
Mér er minnisstætt þegar ég
hóf að saga í borðplötu fyrir eld-
húsvaski. Þá varð Bjössa á orði
að þarna hefði ég verið mjög
áræðinn og rifjaði hann oft upp
þetta atvik og henti gaman að.
Á meðan börnin okkar voru lít-
il hófst hvert sumarfrí á ferðalög-
um um landið og alltaf var jafn
gaman hjá okkur. Þá var mikið
spáð í veðrið og þar var Bjössi á
heimavelli. Sérstaklega eru há-
lendisferðirnar minnisstæðar.
Við vorum líka svo lánsöm að fara
saman í utanlandsferðir. Fyrsta
ferðin markaði tímamót, sú ferð
gaf þeim ótrúlega mikið og þau
þreyttust aldrei á að rifja hana
upp.
Þá keyrðum við um Spán og
Frakkland. Bjössi naut sín vel í
frönsku sveitinni, hann var eins
og franskur bóndi með pípuna
sína að spekúlera í lífinu og til-
verunni á þessum framandi slóð-
um. Þannig minnist ég hans.
Elsku besta tengdamamma,
mikill er missir þinn. Ég sam-
hryggist þér innilega. Það verður
skrítið að sjá ykkur Bjössa ekki
aftur saman á þessu jarðríki en
ég veit þú geymir hann í hjarta
þínu. Lífið heldur áfram og ég
veit að þú munt spjara þig.
Þinn tengdasonur
Böðvar Héðinsson.
Afi, eða afi Bjössi eins og við
barnabörnin þekktum hann, var
fjölskyldumaður mikill og rifnaði
alltaf úr stolti þegar hann talaði
um stóru fjölskylduna sína. Afi
var alltaf boðinn og búinn að
hjálpa og redda manni með hvað
sem er, handlaginn og hjartastór
eins og hann var. Ef mann vant-
aði far var hann mættur, jafnvel
þó að hann þyrfti að fara alla leið
út á flugvöll til að sækja mann, nú
eða til tunglsins ef svo stóð á,
honum fannst það meira en sjálf-
sagt. Það er þyngdar sinnar virði
í gulli að hafa átt svona góðan afa
að og mun ég alltaf vera þakklát
fyrir það.
Afi var alræmdur prakkari á
yngri árum, enda lifðu skrautleg-
ar sögur um stórkostleg uppá-
tæki hans áratugina marga og
ólst ég upp við þær og hékk á
hverju orði. En ég vil meina að
prakkarinn hafi leynst í honum
alla tíð og það var alltaf stutt í
grínið og brandarana. Ég held að
það hafi hreinlega aldrei komið
fyrir að honum hafi ekki tekist að
töfra fram bros hjá mér, sama
hvað á bjátaði.
Afi var mikill Frammari og
vissi ég ekkert betra þegar ég var
lítil en að eiga svindldag með afa,
þar sem við kíktum á völlinn og
ég fékk að kaupa hálfa sjoppuna
til að hafa eitthvað til að japla á
yfir leiknum.
Við skemmtum okkur stór-
kostlega saman, þó reglurnar
hafi eitthvað skolast til í sykur-
sjokkinu, en langt fram á tán-
ingsárin stóð ég í þeirri meiningu
að mörk væru talin í núllum. Ég
gladdist ávallt þegar tilkynnt var
að það væru tvö núll fyrir Fram:
„Jibbíjei! Fram fékk tvö núll!
Hvað ætli hitt liðið sé með mörg
núll?“ Nokkuð sem við afi hlógum
mikið að seinna meir.
Elsku besti afinn minn, það
eru engin orð sem geta lýst því
hvað ég á eftir að sakna þín mik-
ið. Fjarvera þín skilur eftir sig
stórt skarð í lífi mínu og okkar
allra sem þekktum þig, sem er
ómögulegt að fylla. En þú lifir
áfram í hjörtum okkar og í þeim
óteljandi minningum sem þú
skildir eftir. Þær munu halda
áfram að töfra fram bros um
ókomna tíð.
Margrét Björk Þór (Stella).
Okkar ástkæri afi. Það eru svo
margar minningar sem við eigum
um þig sem ylja okkur um hjarta-
rætur þegar við minnumst þín.
Heimili ykkar ömmu á Hraun-
braut var eins og ævintýraheim-
ur út af fyrir sig. Þar gátum við
gleymt okkur á smíðaverkstæð-
inu með þér, bardúsað í dótinu
uppi, í spilunum með ömmu og
svo auðvitað við leik úti í garð-
inum stóra.
Við eigum öll góðar minningar
með þér á Valbjarnarvellinum, að
sjálfsögðu að styðja Fram, mis-
mikill var þó áhuginn fyrir fót-
boltaleiknum sjálfum. Þegar þú
fórst með okkur Héðin og Hörð á
fótboltaleiki, þá keyptir þú svo
mikið nammi fyrir okkur að aðrir
stuðningsmenn gengu upp að
okkur og héldu að við værum að
selja nammi.
Minningarnar um sendiferða-
bílinn eru líka margar. Mjög
minnisstætt er þegar þú sóttir
mig, Auði, á honum til þess að
fara upp á spítala að heimsækja
Héðin nýfæddan, þá fóru foreldr-
ar mínir að hlæja þegar við kom-
um upp á spítala, því ég hafði
stokkið út á náttkjólnum og í stíg-
vélunum einum saman. Við vor-
um sko ekkert að kippa okkur
upp við það í þessu hamingju-
kasti yfir litla bróður, en við hlóg-
um að þessu í mörg ár.
Okkur fannst svo gaman að
hlusta á sögurnar þínar um það
sem þú gerðir á þínum yngri ár-
um, prakkarastrikin og hvernig
þið amma kynntust. Þú sagðir
svo skemmtilega frá að okkur leið
eins og við hefðum verið á staðn-
um. Það var alltaf stutt í spaugið
hjá þér og jafnvel á erfiðum
stundum gastu létt lundina og
látið öllum líða vel. Þannig varstu
líka á þínum síðustu dögum, það
var aðdáunarvert að sjá og lét
okkur líða vel. Við vorum dekruð
af ást, leik og nammi. Þú varst
alltaf til staðar fyrir okkur börnin
og gerðir allt fyrir alla. Þú varst
sterkasti og duglegasti maður
sem við höfum þekkt.
Elsku afi okkar, hvíldu í friði
og takk fyrir allar þær hlýju
minningar sem við eigum saman.
Þín barnabörn
Auður, Héðinn og Hörður.
Elsku afi minn, það er svo vont
að hugsa til þess að þú sért farinn
og að ég fái ekki að hitta þig aft-
ur. Þú gast allt og kunnir allt. Ég
vona að ég hafi lært sem mest af
þér og því sem þú kenndir manni.
Fjölskyldan var alltaf í fyrsta
sæti hjá þér og þú elskaðir að
vera til staðar fyrir hana. Þeir
eru margir greiðarnir og redd-
ingarnar sem þú átt inni en alltaf
var það jafn mikið vesen að fá að
gera eitthvað fyrir þig. Það eru
forréttindi og heiður að hafa átt
þig fyrir afa og vin. Ég á eftir að
sakna þín svo mikið um ókomna
tíð en minningin lifir um mesta
snilling sem ég hef kynnst.
Þinn
Björn (Bjössi).
Björn
Einarsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
BIRNA S. BJÖRNSDÓTTIR,
snyrti- og fótaaðgerðafræðingur,
Skálatúni 6, Akureyri,
lést á heimili sínu sunnudaginn 1. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk.
Hólmgeir Valdemarsson
Börkur Hólmgeirsson Dagmar Hlín Valgeirsdóttir
Þórir Rafn Hólmgeirsson Rannveig Inga Ómarsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona, móðir og systir,
GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR REGAN,
lést á heimili sínu í Flórída föstudaginn
13. apríl.
James Regan
James Regan Jr.
Helen Harless
Vilhelmína Ólafsdóttir
Eyjólfur Ólafsson
Ólafur Valur Ólafsson
Ástkær eiginmaður, faðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN ÞORVALDSSON
vélstjóri,
Hjarðarholti 11, Akranesi,
andaðist mánudaginn 2. apríl á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Elín Hanna Hannesdóttir
Hannes Þorsteinsson
Þorsteinn Hannesson Bjarni Þór Hannesson
og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir, tengdafaðir og afi,
ODDGEIR KRISTJÁNSSON,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 13. apríl.
Ingibjörg G. Haraldsdóttir
Kristján Oddgeirsson
Hólmar Freyr Oddgeirsson
Bryndís Ósk Efetayan Oddgeirsd. Hope Efatayan
Kristján Oddgeirsson
barnabörn og systkini
Ástkær eiginmaður minn og vinur, faðir
okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
AÐALSTEINN KRISTINSSON,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 3. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Magnea Jónsdóttir
Bryndís, Þórey, Sigrún, Auður
og aðrir aðstandendur
Faðir okkar, afi og bróðir,
JÚLÍUS JÚLÍUSSON
frá Hafnarfirði,
lést 29. mars.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ólafur Júlíusson Elín Mjöll Þórhallsdóttir
Amalía Ólafsdóttir
Júlíus Ólafsson
Hafliði Júlíusson
Pétur Jónsson Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, sonur,
tengdasonur, faðir, tengdafaðir, afi og
bróðir,
EYÞÓR KARLSSON,
Seljahlíð 5b,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn
13. apríl.
Ragnheiður Antonsdóttir
Karl Jóhannsson
Ragnheiður Kristinsdóttir
Anton Kr. Stefánsson Bryndís Björk Reynisdóttir
Eva Birgitta Eyþórsdóttir Matti Ósvald Stefánsson
Adam Þór Eyþórsson
Reynir Karlsson Anna Sigríður Halldórsdóttir
Heimir Karlsson Elfa Hauksdóttir
og barnabörn