Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 ✝ Björn Einars-son fæddist í Reykjavík 2. júlí 1934. Hann and- aðist á heimili sínu Hraunbraut 8 í Kópavogi 6. apríl 2018. Foreldrar Björns voru Einar Ásgeir Guðbjartsson, f. 15. september 1901, d. 15. október 1985, og Skúlína Theodóra Haraldsdóttir, f. 5. ágúst 1900, d. 30. janúar 1988. Björn ólst upp í Reykjavík í Efstasundi 6, einn af sjö systk- inum, systkini hans eru Kristín Jósefína, f. 18. mars 1927, d. 28. júlí 1995, Halldóra Guðbjört, f. 4. febrúar 1928, d. 2. júní 2014, Ant- on, f. 8. desember 1928, d. 10. apríl 2004, Haraldur, f. 24. febr- úar 1937, d. 28. mars 1982, Hörð- ur, f. 18. júlí 1940, d. 9. júlí 2016, og Hafsteinn, f. 11. maí 1942. Uppeldisbróðir Björns er Einar er Páll Enos, f. 12. febrúar 1964. Sonur hans frá fyrri sambúð er Sigursteinn. 3) Valdimar Jón, f. 6. mars 1963, kvæntur Hildi Ing- ólfsdóttur, f. 22. júlí 1966, börn þeirra eru Anna Magnea, Yrsa Hrund, d. 25. desember 1987, Oddur Aron, Lilja Bjarney og Sigurbjörg Katla. 4) Ingibjörg Ebba, f. 31. ágúst 1965, dætur hennar eru Telma Glóey Jóns- dóttir og Rebekka Unnur Rún- arsdóttir. 5) Sverrir, f. 4. desem- ber 1974, giftur Herdísi Krist- jönu Heiðarsdóttur, f. 1. nóvem- ber 1978, dætur þeirra eru Sandra Rut, Andrea Ósk og Harpa Ösp. Langafabörn eru fimm: Áróra Kristín, Aðalsteinn Smári, Böðvar Darri, Máni og Ið- unn Eva. Björn fór ungur til sjós eða 13 ára gamall. Eftir að elsta barn þeirra hjóna fæddist kom hann í land og gerðist bílstjóri. Hann var mikill fótboltaáhugamaður, dyggur stuðningsmaður Fram og lét sig sjaldan vanta á völlinn. Hann var mikill fjölskyldumaður og hafði gaman af því að ferðast um landið með fjölskyldunni. Útför Björns fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 17. apríl 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Guðbjartsson, f. 2. ágúst 1945, d. 27. ágúst 2016. Hinn 4. desember 1959 kvæntist Björn eftirlifandi eigin- konu sinni Önnu Magneu Valdimars- dóttur, f. 1. október 1938. Foreldrar hennar voru Valdi- mar Össurarson, f. 1. maí 1896, d. 29. júní 1956, og Jóna Bjarney Jóns- dóttir, f. 11. október 1896, d. 9. maí 1986. Börn Björns og Önnu Magneu eru: 1) Ásgerður Theo- dóra, f. 24. ágúst 1959, sonur hennar frá fyrri sambúð er Björn Rúnar Benediktsson. Ásgerður er gift Böðvari Héðinssyni, f. 6. nóvember 1963, synir þeirra eru Héðinn Össur og Hörður Bersi. Dóttir Böðvars frá fyrri sambúð er Auður. 2) Brynhildur, f. 9. október 1960, dóttir hennar frá fyrri sambúð er Margrét Björk Þór. Sambýlismaður Brynhildar Mér er það bæði ljúft og skylt að minnast elskulegs tengdaföð- ur míns Björns Einarssonar sem nú hefur kvatt þennan heim eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Ég hef þekkt Bjössa og Möggu tengdamömmu í nær 25 ár. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að ég hafi þekkt þau lengur en foreldra mína og kannski er það þess vegna sem við höfum átt svo rík- an þátt í lífi hvor annars. Ég hitti Bjössa fyrst yfir kaffi- spjalli þar sem hann talaði um allt mögulegt og sagði frá ýmsum hversdagslegum hlutum eins og um stórviðburði væri að ræða. Ég komst að raun um það síðar meir að þetta var einn af hans góðu eiginleikum. Eftir þessi fyrstu kynni okkar leið mér eins og ég hefði alltaf þekkt hann og upp frá því fannst mér alltaf gott að vera nálægt honum og ég sótt- ist eftir því. Þegar við hittumst ræddum við oft stöðuna í landsmálunum eða fótbolta og var það aðdáun- arvert að sjá hversu trúr hann var sínum skoðunum og sínu fé- lagi, sem var Fram. Hann hafði skoðun á öllu og var oft hnyttinn í tilsvörum. Bjössi var mikill fjöl- skyldumaður og naut sín best innan um fjölskylduna, þá var hann hrókur alls fagnaðar með sitt spaug. Hann vildi allt fyrir barnabörnin gera, var skemmti- legur afi og iðinn við að segja sög- ur af þeim. Bjössi og Magga tengdafor- eldrar mínir tóku mér einstak- lega vel alveg frá byrjun, kannski vegna þess að enginn var tengda- sonurinn fyrir. Við Bjössi urðum strax góðir vinir og miklir mátar. Ég tók strax eftir því hversu samhent þau hjónin voru, þó hvort á sinn hátt, og allt sem þau bardúsuðu saman tókst svo vel til að úr varð hið mesta ævintýri og saga að segja frá. Það var ýmislegt sem við Bjössi baukuðum saman. Bjössi kunni margt fyrir sér og var lag- inn í höndunum. Það var ósjaldan sem við settumst niður til skrafs og ráðagerðar um hvernig best væri að bera sig að við það sem við vorum að bauka. Við nutum þess að spekúlera fram og til baka. Það er nauðsynlegt að spekúlera í hlutunum sagði Bjössi. Það var hans mottó í líf- inu. Mér er minnisstætt þegar ég hóf að saga í borðplötu fyrir eld- húsvaski. Þá varð Bjössa á orði að þarna hefði ég verið mjög áræðinn og rifjaði hann oft upp þetta atvik og henti gaman að. Á meðan börnin okkar voru lít- il hófst hvert sumarfrí á ferðalög- um um landið og alltaf var jafn gaman hjá okkur. Þá var mikið spáð í veðrið og þar var Bjössi á heimavelli. Sérstaklega eru há- lendisferðirnar minnisstæðar. Við vorum líka svo lánsöm að fara saman í utanlandsferðir. Fyrsta ferðin markaði tímamót, sú ferð gaf þeim ótrúlega mikið og þau þreyttust aldrei á að rifja hana upp. Þá keyrðum við um Spán og Frakkland. Bjössi naut sín vel í frönsku sveitinni, hann var eins og franskur bóndi með pípuna sína að spekúlera í lífinu og til- verunni á þessum framandi slóð- um. Þannig minnist ég hans. Elsku besta tengdamamma, mikill er missir þinn. Ég sam- hryggist þér innilega. Það verður skrítið að sjá ykkur Bjössa ekki aftur saman á þessu jarðríki en ég veit þú geymir hann í hjarta þínu. Lífið heldur áfram og ég veit að þú munt spjara þig. Þinn tengdasonur Böðvar Héðinsson. Afi, eða afi Bjössi eins og við barnabörnin þekktum hann, var fjölskyldumaður mikill og rifnaði alltaf úr stolti þegar hann talaði um stóru fjölskylduna sína. Afi var alltaf boðinn og búinn að hjálpa og redda manni með hvað sem er, handlaginn og hjartastór eins og hann var. Ef mann vant- aði far var hann mættur, jafnvel þó að hann þyrfti að fara alla leið út á flugvöll til að sækja mann, nú eða til tunglsins ef svo stóð á, honum fannst það meira en sjálf- sagt. Það er þyngdar sinnar virði í gulli að hafa átt svona góðan afa að og mun ég alltaf vera þakklát fyrir það. Afi var alræmdur prakkari á yngri árum, enda lifðu skrautleg- ar sögur um stórkostleg uppá- tæki hans áratugina marga og ólst ég upp við þær og hékk á hverju orði. En ég vil meina að prakkarinn hafi leynst í honum alla tíð og það var alltaf stutt í grínið og brandarana. Ég held að það hafi hreinlega aldrei komið fyrir að honum hafi ekki tekist að töfra fram bros hjá mér, sama hvað á bjátaði. Afi var mikill Frammari og vissi ég ekkert betra þegar ég var lítil en að eiga svindldag með afa, þar sem við kíktum á völlinn og ég fékk að kaupa hálfa sjoppuna til að hafa eitthvað til að japla á yfir leiknum. Við skemmtum okkur stór- kostlega saman, þó reglurnar hafi eitthvað skolast til í sykur- sjokkinu, en langt fram á tán- ingsárin stóð ég í þeirri meiningu að mörk væru talin í núllum. Ég gladdist ávallt þegar tilkynnt var að það væru tvö núll fyrir Fram: „Jibbíjei! Fram fékk tvö núll! Hvað ætli hitt liðið sé með mörg núll?“ Nokkuð sem við afi hlógum mikið að seinna meir. Elsku besti afinn minn, það eru engin orð sem geta lýst því hvað ég á eftir að sakna þín mik- ið. Fjarvera þín skilur eftir sig stórt skarð í lífi mínu og okkar allra sem þekktum þig, sem er ómögulegt að fylla. En þú lifir áfram í hjörtum okkar og í þeim óteljandi minningum sem þú skildir eftir. Þær munu halda áfram að töfra fram bros um ókomna tíð. Margrét Björk Þór (Stella). Okkar ástkæri afi. Það eru svo margar minningar sem við eigum um þig sem ylja okkur um hjarta- rætur þegar við minnumst þín. Heimili ykkar ömmu á Hraun- braut var eins og ævintýraheim- ur út af fyrir sig. Þar gátum við gleymt okkur á smíðaverkstæð- inu með þér, bardúsað í dótinu uppi, í spilunum með ömmu og svo auðvitað við leik úti í garð- inum stóra. Við eigum öll góðar minningar með þér á Valbjarnarvellinum, að sjálfsögðu að styðja Fram, mis- mikill var þó áhuginn fyrir fót- boltaleiknum sjálfum. Þegar þú fórst með okkur Héðin og Hörð á fótboltaleiki, þá keyptir þú svo mikið nammi fyrir okkur að aðrir stuðningsmenn gengu upp að okkur og héldu að við værum að selja nammi. Minningarnar um sendiferða- bílinn eru líka margar. Mjög minnisstætt er þegar þú sóttir mig, Auði, á honum til þess að fara upp á spítala að heimsækja Héðin nýfæddan, þá fóru foreldr- ar mínir að hlæja þegar við kom- um upp á spítala, því ég hafði stokkið út á náttkjólnum og í stíg- vélunum einum saman. Við vor- um sko ekkert að kippa okkur upp við það í þessu hamingju- kasti yfir litla bróður, en við hlóg- um að þessu í mörg ár. Okkur fannst svo gaman að hlusta á sögurnar þínar um það sem þú gerðir á þínum yngri ár- um, prakkarastrikin og hvernig þið amma kynntust. Þú sagðir svo skemmtilega frá að okkur leið eins og við hefðum verið á staðn- um. Það var alltaf stutt í spaugið hjá þér og jafnvel á erfiðum stundum gastu létt lundina og látið öllum líða vel. Þannig varstu líka á þínum síðustu dögum, það var aðdáunarvert að sjá og lét okkur líða vel. Við vorum dekruð af ást, leik og nammi. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur börnin og gerðir allt fyrir alla. Þú varst sterkasti og duglegasti maður sem við höfum þekkt. Elsku afi okkar, hvíldu í friði og takk fyrir allar þær hlýju minningar sem við eigum saman. Þín barnabörn Auður, Héðinn og Hörður. Elsku afi minn, það er svo vont að hugsa til þess að þú sért farinn og að ég fái ekki að hitta þig aft- ur. Þú gast allt og kunnir allt. Ég vona að ég hafi lært sem mest af þér og því sem þú kenndir manni. Fjölskyldan var alltaf í fyrsta sæti hjá þér og þú elskaðir að vera til staðar fyrir hana. Þeir eru margir greiðarnir og redd- ingarnar sem þú átt inni en alltaf var það jafn mikið vesen að fá að gera eitthvað fyrir þig. Það eru forréttindi og heiður að hafa átt þig fyrir afa og vin. Ég á eftir að sakna þín svo mikið um ókomna tíð en minningin lifir um mesta snilling sem ég hef kynnst. Þinn Björn (Bjössi). Björn Einarsson Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BIRNA S. BJÖRNSDÓTTIR, snyrti- og fótaaðgerðafræðingur, Skálatúni 6, Akureyri, lést á heimili sínu sunnudaginn 1. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Hólmgeir Valdemarsson Börkur Hólmgeirsson Dagmar Hlín Valgeirsdóttir Þórir Rafn Hólmgeirsson Rannveig Inga Ómarsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona, móðir og systir, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR REGAN, lést á heimili sínu í Flórída föstudaginn 13. apríl. James Regan James Regan Jr. Helen Harless Vilhelmína Ólafsdóttir Eyjólfur Ólafsson Ólafur Valur Ólafsson Ástkær eiginmaður, faðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ÞORVALDSSON vélstjóri, Hjarðarholti 11, Akranesi, andaðist mánudaginn 2. apríl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elín Hanna Hannesdóttir Hannes Þorsteinsson Þorsteinn Hannesson Bjarni Þór Hannesson og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, tengdafaðir og afi, ODDGEIR KRISTJÁNSSON, lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 13. apríl. Ingibjörg G. Haraldsdóttir Kristján Oddgeirsson Hólmar Freyr Oddgeirsson Bryndís Ósk Efetayan Oddgeirsd. Hope Efatayan Kristján Oddgeirsson barnabörn og systkini Ástkær eiginmaður minn og vinur, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, AÐALSTEINN KRISTINSSON, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 3. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Magnea Jónsdóttir Bryndís, Þórey, Sigrún, Auður og aðrir aðstandendur Faðir okkar, afi og bróðir, JÚLÍUS JÚLÍUSSON frá Hafnarfirði, lést 29. mars. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ólafur Júlíusson Elín Mjöll Þórhallsdóttir Amalía Ólafsdóttir Júlíus Ólafsson Hafliði Júlíusson Pétur Jónsson Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Ástkær eiginmaður minn, sonur, tengdasonur, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, EYÞÓR KARLSSON, Seljahlíð 5b, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 13. apríl. Ragnheiður Antonsdóttir Karl Jóhannsson Ragnheiður Kristinsdóttir Anton Kr. Stefánsson Bryndís Björk Reynisdóttir Eva Birgitta Eyþórsdóttir Matti Ósvald Stefánsson Adam Þór Eyþórsson Reynir Karlsson Anna Sigríður Halldórsdóttir Heimir Karlsson Elfa Hauksdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.