Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 24

Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 ✝ Einar HaukurKristjánsson fæddist í Ytra- Skógarnesi á Snæ- fellsnesi 25. ágúst 1930. Hann and- aðist á hjúkrunar- heimilinu Hrafn- istu í Kópavogi 3. apríl 2018. Foreldrar hans voru Sigríður Kar- ítas Gísladóttir, f. 7. febrúar 1891, d. 15. nóv- ember 1988, húsm. og bóndi í Ytra-Skógarnesi, og Kristján Ágúst Kristjánsson, f. 4 ágúst 1890, d. 4. júlí 1934, bóndi og skjalavörður Alþingis. Einar var sjöundi í röðinni af níu ir Einars og Jónu Önnu er Lilja Rós, f. 1974, sambýlis- maður hennar er Árni Claes- sen, f. 1974, og eiga þau þrjú börn: Önnu Rós, f. 2008, Andra, f. 2012, og Bjarka, f. 2016. Einar lauk cand. oecon. frá HÍ árið 1960. Hann starfaði hjá Vegagerð ríkisins frá 1956-1999 þar sem hann var skrifstofustjóri frá 1964 og forstöðumaður fjárreiðudeild- ar frá 1990. Einar starfaði einnig mikið með Ferðafélagi Íslands, m.a. sem leið- sögumaður, var ritari í stjórn félagsins 1978-81 og ritaði meginhluta Árbóka ferða- félagsins 1982 og 1986. Auk þess ritaði hann greinar um ferðamál í dagblöð og tímarit, m.a. Útivist. Einnig erindi í útvarp. Útför Einars fer fram frá Langholtskirkju í dag, 17. apr- íl 2018, klukkan 15. systkinum en þau eru Hanna, f. 1922, d. 1979, Baldur, f. 1923, d. 1994, Jens, f. 1925, d. 2015, Auður, f. 1926, d. 2008, Unnur, f. 1926, d. 2005, Arndís, f. 1929, d. 2007, Jóhanna, f. 1932, d. 2007, og Kristjana, f. 1934, d. 2017. Sambýliskona Einars var Jóna Anna Sigurðardóttir, f. 1940, d. 2013. Foreldrar henn- ar voru Anna María Jacobsen, f. 1917, d. 1976, og Sigurður Jónsson, f. 1914, d. 2006. Dótt- Einar Haukur var náttúru- barn af guðs náð sem ólst upp í stórum hópi systkina í Ytra- Skógarnesi á Snæfellsnesi. Þar bjó hann til 18 ára aldurs og lærði ungur að njóta alls hins besta í íslenskri náttúru við Löngufjörur, umkringdur fögr- um fjöllum með Jökulinn í önd- vegi. Það hafði mikil áhrif á æsku Einars þegar faðir hans andaðist snögglega og móðir hans stóð þá ein uppi með níu börn, það elsta 12 ára en það yngsta aðeins fjögurra mánaða. Hún hélt samt búskapnum ótrauð áfram ásamt föður sínum með dyggri aðstoð tengdamóð- ur, vinnumanna og barnanna. Störf til sveita á þessum tíma voru að mestu þau sömu og höfðu verið stunduð frá upphafi Íslandsbyggðar þar sem engin nútímatækni var komin til sög- unnar. Heyjað var með orfi og ljá, hestvagnar notaðir til flutn- inga og sækja þurfti vatn langar leiðir. Snemma kom í ljós að Einar var gæddur miklum gáf- um og braust hann til mennta. Hann þurfti að vinna með nám- inu og taka hluta þess utan skóla en með mikilli elju og dugnaði lauk hann cand.oecon-prófi í við- skiptafræði. Einar starfaði síðan hjá Vegagerðinni alla sína starfsævi. Sem ungur maður veiktist hann af berklum en með þrautseigjuna að vopni vann hann sig í gegnum þá erfiðleika. Aldrei lét hann veður og vind stöðva sig enda fengum við oft að heyra að veður væri í eðli sínu ekki gott eða vont heldur þyrfti bara að klæða sig rétt. Það var síðan mikið gæfuspor fyrir Einar þegar hann kynntist Önnu Jónu, en með henni eign- aðist hann góðan lífsförunaut og ferðafélaga. Einar var sérstak- lega umhyggjusamur og allt fram á síðasta dag hugsaði hann fyrst og fremst um velferð ann- arra. Hann var líka einstakt ljúfmenni og aldrei sá ég hann skipta skapi eða hallmæla nokkrum manni enda tókst hon- um alltaf að sjá það besta í öll- um. Fróðari og víðlesnari mann hef ég ekki hitt auk þess sem hann bjó yfir þeim hæfileika að muna allt sem hann las. Saga, náttúra landsins og þjóðlegur fróðleikur voru honum þó sér- staklega hugleikin en hann safn- aði líka að sér miklu bókasafni sem endurspeglaði fjölþættan áhuga á mönnum og málefnum. Snyrtimennska og vandvirkni voru Einari í blóð borin og öll hans verk óaðfinnanlega unnin sama hvaða nafni sem þau nefn- ast. Hann hafði líka sérstak lag á því að setja saman góðan texta eins og verk hans á ritvellinum, s.s. skrif hans í Árbækur Ferða- félagsins, bera vitni um. Hann var á undan sinni samtíð þegar kom að hálendisferðum og um- hverfisvernd og strax upp úr 1960 var hann í hópi frumkvöðla hjá Ferðafélaginu sem voru óþreytandi við að ferðast um fjöll og firnindi. Á þessum tíma efldist mjög starf Ferðafélagsins þar sem Einar ásamt félögum sínum lagði ómælda sjálfboðavinnu í reisa ný sæluhús og endurnýja og stækka þau sem fyrir voru. Hin síðari ár fækkaði ferðum Einars með Ferðafélaginu en áfram snérist lífið um útivist, göngur og hjólaferðir. Hann hélt þreki og orku fram yfir átt- rætt og hin síðari ár hjólaði hann mikið auk þess sem þau Anna Jóna voru dugleg að þeyt- ast um landið meðan hennar naut við. Á vorin kom ferðahugurinn yfir Einar og núna í byrjun apríl kvaddi hann okkur fyrir sína hinstu ferð. Nærveru og hlýju Einars verður sárt saknað en hann kannar nú nýjar leiðir til betri heima og eins og hann sagði sjálfur þá skulum við líta til hækkandi sólar og fagna komandi sumri með söng í mýri og mó, fjallafegurð og blómum í haga. Árni Claessen. Einar Haukur Kristjánsson Ég man þegar hann fæddist. Það var síðla í nóvem- ber upp úr miðri síðustu öld og við börnin af báð- um heimilunum á Gýgjarhóli vor- um send á næsta bæ svo að ekki yrði ónæði af okkur meðan á fæðingunni stóð. Þá var enginn sími og ekki hægt að gera við- vart svo að við komum heldur fljótt heim aftur, móðirin rétt bú- in að skila drengnum í heiminn. Vorið eftir var hann orðinn nógu státinn til að okkur var trúað fyr- ir að gæta hans úti. Þessa minn- ist ég sérstaklega vegna þess að við höfðum eitt sinn nærri misst Ragnar Lýðsson ✝ Ragnar Lýðs-son fæddist 24. nóvember 1952. Hann lést 31. mars 2018. Útför Ragnars fór fram 14. apríl 2018. hann í vatnspoll, en allt fór það vel. Í endurminningunni þjóta æsku- og ung- lingsárin hjá þó að áður fyrr hafi oft verið eins og tíminn stæði kyrr. Áður en varði voru öll börnin á bæjunum orðin að fullorðnu ungu fólki, uppteknu við vinnu og nám og ný kyn- slóð tekin við hlutverki barnanna. Ragnar fór suður í skóla og bjó þá hjá okkur Guðna í Kópavogi. Þar hlaut hann vináttu barna okkar, enda átti hann gott með að umgangast börn, glaðlyndur sem hann var og þó fastur fyrir. Svo var Raggi allt í einu sjálfur orð- inn fjölskyldumaður, eignaðist fjögur mannvænleg og dugleg börn sem hafa spjarað sig vel. Kynslóðir koma, kynslóðir fara. Fyrir örfáum vikum hitti gömul kona ungan Ragnar og horfði á hann hlaupa um, glaðan og léttfættan, eins og afi hans og nafni gerði fyrir meira en 60 ár- um. Þá áttum við eldra fólkið góða stund og rifjuðum upp atvik liðins tíma. Þetta er dýrmæt minning, engan grunaði hve skammt var í leiðarlok. Við aust- urbæjarfólk sendum aðstand- endum Ragnars okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum al- mættið að gefa þeim styrk og ljós í hjarta á erfiðum tímum. Inga Kristjánsdóttir. Þær komu eins og þruma úr heiðskíru lofti fréttirnar um að Ragnar Lýðsson væri látinn. Maður varð dofinn og vissi ekk- ert hvernig maður ætti að haga sér, það var eins og að maður væri búinn að missa náinn ætt- ingja. Það eru akkúrat 30 ár síð- an Raggi var fenginn til að vera yfirsmiður að nýrri garðyrkju- stöð fyrir föður minn og móður, sem fékk nafnið Garðyrkjustöðin Stórafljót. Raggi var hagleikssmiður á járn og tré og mjög vandaður við allt sem hann tók sér fyrir hend- ur. Ég varð þess heiðurs aðnjót- andi að vinna með honum við þessa byggingu og var ég búinn að vera í námi í vélvirkjun og rennismíði og ég fékk þarna góða kennslu frá Ragga við rafsuðu og allt sem við kom reisingu á gróð- urhúsi. Eftir að búið var að loka húsinu tók við vinna við að sjóða miðstöð í gróðurhúsið, þar kenndi Raggi mér allt sem ég get notfært mér í dag við uppsetn- ingu miðstöðvar í gróðurhúsum og á ég honum mikið að þakka í þeim efnum. Eftir þetta tók svo við vinna hjá okkur við að reisa pökkunar- skúr við garðyrkjustöðina, ég verð að segja að betri manni gat maður ekki hugsað sér að vinna með, alltaf eins í vinnunni og maður vissi alveg hvar maður hafði hann. Þessi tími er mér ógleymanlegur, líka vegna þess að Raggi veigraði sér ekkert við að láta unga manninn hafa flókin og krefjandi verkefni. Enda þeg- ar ég hitti hann síðast spurði hann mig hvað ég væri að gera í garðyrkjunni og ég sagðist vera að sjóða miðstöð í gróðurhús, þá brosti hann og sagði, þar ert þú í réttu vinnunni. Það er þyngra en tárum taki að hann hafi kvatt þennan heim, maðurinn sem maður hefur um- gengist allt frá því er maður var krakkasnáði. Ég votta börnum hans og barnabörnum mína dýpstu sam- úð á þessum erfiðu stundum. Sigurjón Sæland. Brokkkórinn er dæmigerður kór þar sem sönggleðin er í fyr- irrúmi og einnig deila meðlimir áhuga á hestum, íslenskri nátt- úru og útivist. Eftir margra ára sameiginlegt kórstarf myndast einlæg vinátta á meðal kórfélaga. Vikulega er hópast saman á æf- ingar og gleðin er í fyrirrúmi en nú setur alla hljóða. Kórinn hef- ur misst úr sínum röðum ástkær- an vin, Ragnar Lýðsson er látinn langt um aldur fram. Hjálpsam- ur, jákvæður og ávallt til staðar hvert sem verkefnið var hvort sem kom að því að syngja á sviði með hópnum sínum á erlendri grund eða byggingarvinna á heimilum kórfélaga. Hæglátur húmoristi og hvers manns hug- ljúfi. Hann gat brugðið á leik, sér í lagi á ferðalögum kórsins og söng þá af mikilli snilld gaman- vísur ættaðar úr Flóanum við mikla kátínu viðstaddra. Jafnan söng hann svo undirstöðunótur bassaraddarinnar, nákvæmur og traustur. Kórfélagar brosa nú að minn- ingum þegar kórinn fór árið 2013 til Berlínar til að syngja á heims- meistaramóti íslenska hestsins, undirbúningurinn var mikill og huga þurfti að mörgu eins og hverjir deildu saman herbergi á hótelinu. Rétt fyrir brottför fékk undirbúningsnefndin beiðni um að nú þyrfti að stokka upp í þeirri niðurröðun því Ragnar og Sigurlaug ætluðu að vera saman í herbergi. Þannig opinberuðu þau samband sitt sem þróast hafði úr vináttu í kórstarfi um nokkurra ára skeið í ástarsam- band. Brokkkórinn hélt af stað til Berlínar um sumarið og nú ylja minningar um Ragnar og Sigurlaugu leiðast um í þeirri Innilegar þakkir til þeirra sem auðsýndu samúð vegna andláts, föður okkar, afa og langafa, HELGA ÓLAFS BJÖRNSSONAR, Læk, Skagaströnd, og heiðruðu minningu hans. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skjóls. Björn Helgason Ásta Harðardóttir Sigrún Helgadóttir Alfred G. Matthíasson Anna Helgadóttir Gunnar Kristófersson Jóhann Helgason Tómarúmið um- lykur, þögn, lífs- neistinn horfinn. Sorgin heltekur hugann, tárin úr augunum renna. Nú er enginn til að hugga, aðeins minningar sem gefa manni styrk til að halda áfram þó svo mikið hafi verið tekið. Fagrar minningar um móður sem hlúði að því sem þurfti á því að halda. Konu sem kenndi, konu sem gaf af sér hlýju og vernd. Kona sem var af þeirri kynslóð sem átti höfð- ingja. Dagur míns heims varð helsvört nótt. Hann hvarf eins og stjarnan í morgunbjarma. Guðsdyrnar opnuðust hart og hljótt Hirðsveinar konungsins réttu út arma. (Einar Benediktsson) Nú hefur hún móðir mín, Erla Hafsteinsdóttir, kvatt sitt jarðlíf. Ekki átti ég von á því fyrir mán- uði síðan að hún mundi fara svo fljótt. Hin illvígi sjúkdómur sem vísindin ráða svo illa við tók heilsu hennar og líf. Hún barðist allt til enda af æðruleysi og með vonina að vopni. Við börnin hennar og barnabörn vorum hjá henni hvern einasta dag í þenn- an rúma mánuð sem baráttan tók. Mín kæra móðir var einstök kona. Móður- og ömmuhlutverk- ið var henni svo eðlislægt að ein- stakt var. Það höfum við verið að rifja upp afkomendur hennar með því að líta yfir minningar á myndum. Ólst upp í sex systkina hópi við gott atlæti umvafin hlýju foreldra sinna þar sem ekkert skorti. Nám var henni einstaklega létt, þá sérstaklega stærðfræði og eðlisfræði. Nutum við börnin hennar góðs af því í okkar skólagöngu og erfðum. Tók sér það fyrir hendur að kenna þessar greinar í unglinga- skólanum í Húnaveri á sjöunda áratugnum. Í uppvexti mínum man ég ekki eftir öðru en alltaf væri fullt hús af fólki sem fékk veitingar og jafnvel gistingu. Alltaf var nóg handa öllum þó foreldrar mínir væru ekki fjáð en samt alltaf nóg. Mörg voru börninn í sveit hjá okkur og jafnvel heilu fjölskyldurnar teknar inn á heimilið. Mann- gæska var mömmu svo eðlislæg. Hún var kosin oddviti sinnar sveitar árið 1982 þegar deilur um Blönduvirkjun stóðu sem Erla Hafsteinsdóttir ✝ Erla Hafsteins-dóttir fæddist 25. febrúar 1939. Hún lést 8. apríl 2018. Útför Erlu fór fram 14. apríl 2018. hæst og sinnti því starfi í tvo áratugi af festu og öryggi. Fetaði þar í fótspor föður síns sem var maður mikilla fram- fara í sínu sam- félagi. Sat í stjórn ýmissa félaga og stofnana. Hvernig kom hún þessu öllu í verk sem hún tók sér fyrir hendur er aðdáunarvert. Ekki voru þær færri vinnustundirnar við bú- skapinn og heimilið. Í október síðastliðnum fórum við börnin hennar og tengda- börn í ferðalag til Bandaríkj- anna til að heimsækja Hafrúnu systur sem þar býr. Mér fannst hún á þeirri stundu yngjast upp þegar hún hafði okkur öll til að siða okkur aðeins til. Nú við leiðarlokin er gott að ylja sér við góðar minningar um móður sem var svo mild og hlý. Sterkur karakter allt fram á síð- ustu stundu. Hafi hún þökk fyrir uppeldið og atlætið. Fegursta kona í lífi sérhvers mans er móðir hans. Með sökn- uði. Þinn sonur, Örn. Þegar sorgin knýr dyra hjá manni fer hálfgerður tilfinninga- rússíbani af stað. Það tekur smá tíma að greiða úr flækjunni en þegar um hægist þá er eitthvað sem stendur upp úr og þegar ég sit hér og rita nokkur orð til að minnast hennar Erlu tengda- móður minnar þá er það fyrst og fremst þakklæti sem er mér í huga. Þakklæti fyrir að hafa eignast hann Bjössa og að hon- um fylgdi þessi frábæra fjöl- skylda með þau heiðurshjón Erlu og Frigga í fararbroddi. Þau voru einstök og kenndu mér svo margt. Óeigingjarnara fólki hef ég ekki kynnst um ævina, sama hvað mann vantaði. Þau voru einfaldlega til staðar fyrir hvað sem þurfti. Þegar ég fór að hugsa til baka þegar Erla var farin frá okkur minntist ég mest endalausra stunda við eldhús- borðið. Þar hefur margt verið spjallað um lífið og tilveruna. Þegar ég sótti Erlu í Gil til að fara með hana til læknis á Ak- ureyri fyrir sex vikum var ég snemma á ferðinni og í stað þess að flýta mér eins og svo oft, þá settumst við eldhúsborðið og spjölluðum drjúga stund. Mikið sem ég er þakklát fyrir það í dag þegar það er ljóst að hún átti ekki afturkvæmt að borðinu sínu á Gili. Ég minnist líka margra stunda við fjárrag. Erla var skepnumanneskja mikil og hafði ákaflega gaman af kindunum sínum. Fyrir mörgum árum völdum við saman lífgimbur bara af því hún var svo fallega gul í framan og með dökk horn. Eitthvað var nú Bjössi hneyksl- aður á þessu vali, það skipti nú líklega ekki máli hvernig andlit- ið væri. Þessi gimbur fékk að sjálfsögðu nafnið Erla og hann er orðinn stór ættboginn hennar í hjörðinni minni og ég þreytist ekki að minna Bjössa á hvað við höfðum miklu meira vit á þessu en hann. Það er mikið skarð í lífinu okkar en við verðum að reyna að fylla það með minningum um góða móður, tengdamóður og ömmu. Hafsteinn Máni spurði um daginn hvernig í ósköpunum lífið ætti að vera núna og hver ætti að búa til hrísgrjónabúðing- inn um jólin. Ég hef meiri áhyggjur af lummunum því eng- inn bjó til betri lummur en tengdamamma. En þetta er víst gangur lífsins og við verðum að sætta okkur við það. Ég alla- vega þakka fyrir frábæra tengdamóður og hlýja mér við minningarnar. Erla, góða Erla, ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð því kveldsett löngu er. Hart er mannsins hjarta að hugsa mest um sig. Kveldið er svo koldimmt, ég kenndi í brjósti um mig. Dýrlega þig dreymi, og drottinn blessi þig (Stefán frá Hvítadal.) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín, Harpa. Nú hefur amma mín og nafna lokið sínu jarðneska lífi og sorg- in virðist óyfirstíganleg. Flest verðum við þeirrar gæfu aðnjótandi í lífinu að eiga ömmu og afa. Ég naut hins veg- ar algerra forréttinda í þeim efnum. Ég ólst upp að stórum hluta á heimili þar sem fjórir ættliðir sátu við sama eldhús- borðið en það er nokkuð sem er fólki af minni kynslóð orðið framandi. Fyrir mér var það líf- ið, hinn eðlilegasti hlutur en ein- mitt það, að fá að alast upp í þessari nálægð við ömmu, afa og langömmu hefur líklega verið mín helsta mótun í lífinu. Amma var alltaf minn helsti ráðgjafi í lífinu hvort sem kom að barnauppeldi, félagsmálum, skepnuhaldi, mannlegum sam- skiptum, heimilishaldi eða öðru. Oft þegar málin eru rædd á mínu heimili kemur upp hvað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.