Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 27

Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 27
frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og stúdentsprófi frá MR 1968 og hóf fiðlunám við Tónlistarskóla Reykja- víkur, 11 ára, en kennari hans var Ingvar Jónasson, konsertmeistari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Daníel hóf nám við Alþjóðlega foringjaskóla Hjálpræðishersins í Lundúnaborg 1969 og útskrifaðist og vígðist sem foringi vorið 1971. Daníel var aðstoðarforingi í Björgvin, 1. flokki, í hálft ár en í árs- byrjun 1972 fluttu þau hjónin, nýgift, til Ísafjarðar og ráku Gistiheimili Hjálpræðishersins og samkomustarf í nálægt þrjú ár. Næstu þrjú árin voru þau safnaðarleiðtogar í Reykja- vík, störfuðu í tvö og hálft ár í No- todden og Flekkefjord, voru tvívegis yfirforingjar Hjálpræðishersins á Íslandi og í Færeyjum í samtals 13 ár, en þess á milli æskulýðsleiðtogar í Osló og nágrenni í þrjú ár. Þau fengu skipun til Norður-Noregs 1995 og störfuðu þar í nokkur ár, síð- an innan Hjálpræðishersins í Finn- landi í sex ár og síðan sex í Dan- mörku, en í júní 2013 létu þau af störfum og búa nú í Haugesund, á bernskuheimili Önnu. Daníel hefur mikinn áhuga á tón- list og hjónin nota mikið söng og tón- list í starfi sínu. Daníel leikur í lúðra- sveit Hjálpræðishersins í Haugesund og stjórnar söng- kórnum. Fjölskylda Daníel kvæntist 18.12. 1971 Anne Gurine Eide Óskarsson, f. 2.1. 1946, hjálpræðishersforingja. Foreldrar Anne Gurine: Jakob Johan Eide, f. 10.3.1919, d. 21.4. 2009, vélvirki, og k.h., Johanne Eide, f. 10.3. 1919, d. 21.4. 2009, húsfreyja. Börn Daníels og Anna Gurine eru: 1) Ester Daníelsdóttir van Gooswilli- gen, f. 15.2. 1973, hjálpræðishersfor- ingi í Egersundi í Noregi, en maður hennar er Wouter Johannes van Gooswilligen hjálpræðishersforingi og eru barnabörnin Aron Daníel Wouterson van Gooswilligen, f. 1998, Moira Ruth, f. 2000, og Silje Gurine, f. 2002; 2) Inger Jóhanna Daníels- dóttir, f. 12.9. 1974, yfirþroskaþjálfi, búsett í Mosfellsbæ en maður henn- ar er Jónas R. Viðarsson, faglegur leiðtogi hjá Matís, og er dóttir þeirra Rake, f. 2009, og 3) Daníel Óskar Daníelsson, f. 15.2. 1982, söngvari, söngkennari og talmeinafræðingur í Osló og eru synir hans Ísak Maart- mann Daníelsson, f. 2008, og Birkir Maartmann Daníelsson, f. 2012. Systkini Daníels: Rannveig Ósk- arsdóttir, f. 19.11. 1944, sjúkraliði á Akureyri; Hákon Óskarsson, f. 6.7. 1946, fyrrv. menntaskólakennari og leiðsögumaður í Reykjavík; Óskar Óskarsson, f. 3.10. 1953, d. 28.12. 1996, og Miriam Óskarsdóttir, f. 27.6. 1960, hjálpræðishersforingi í Kopervik í Noregi. Foreldrar Daníels: Óskar Jóns- son, f. 4.6. 1916, d. 23.1. 2002, og Ingibjörg Jónsdóttir, f. 5.5.1921, d. 4.5. 2011, hjálpræðishersforingjar á Íslandi, í Færeyjum, Danmörku og Noregi. Daníel Óskarsson Pálína Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Miðlandi, Öxnadal Sigurður Sigurðarson b. á Þorleifsstöðum í Blönduhlíð Rannveig Sigurðardóttir húsfreyja á Akureyri Jón Sigurðsson verkam. á Akureyri Ingibjörg Jónsdóttir foringi í Hjálpræðishernum á Íslandi, í Noregi og í Danmörku Jakobína Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri Sigurður Jón Benedikt Jónsson síldarmatsmaður á Akureyri Miriam Óskarsdóttir foringi í Hjálpræðishernum í Noregi og fyrrv. trúboði í Panama Óskar Óskarsson foringi í Hjálpræðishernum á Ísafirði og í Osló Rannveig Agnethe Jóna Óskarsdóttir sjúkraliði á Akureyri Óskar Einarsson tónlistarmaður og kórstjóri í Fíladelfíu og Lindakirkju Larssen fæddur í Noregi Agnethe Matthildur Jónsson húsfreyja í Rvík Jón Jónsson trésmiður í Rvík Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Kolbeinsvík Jón Sigurðsson b. í Kolbeinsvík, Árnessókn Úr frændgarði Daníels Óskarssonar Jón Óskar Jónsson foringi í Hjálpræðishernum á Íslandi, í Noregi og í Danmörku Hákon Óskarsson ffræðingur, kennari og leiðsögum. í Rvík lí Kjartan Hákonarson tónlistarmaður og lyfjafræðingur Afmælisbarnið Daníel Óskarsson. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 Indriði Indriðason fæddist áYtra-Fjalli í Aðaldal 17.4. 1908.Foreldrar hans voru Indriði Þórkelsson, bóndi, skáld, ættfræð- ingur og oddviti á Ytra-Fjalli, og k.h., Kristín Sigurlaug Friðlaugs- dóttir húsfreyja. Föðurbróðir Indriða var Jóhann- es, faðir Þorkels háskólarektors. Indriði oddviti var sonur Þórkels, Guðmundssonar, bónda á Syðra- Fjalli, af Sílalækjarætt, en Kristín var dóttir Friðlaugs Jónssonar, bónda á Hafralæk, af Hólmavaðs- ætt, bróður Friðjóns, föður skáld- anna Guðmundar á Sandi og Sigur- jóns á Litlulaugum. Eiginkona Indriða var Sólveig Jónsdóttir og áttu þau þrjú börn. Indriði stundaði nám í ensku og enskum bókmenntum í San Fran- cisco, nam þar múrsmíði og vann þar við tré- og múrsmíði, var bóndi á Grenjaðarstað í Aðaldal, á hálfu Að- albóli, var starfsmaður ÁTVR, bók- haldari og smiður, stundaði nætur- símavörslu við Landsímann og var fulltrúi á Skattstofu Reykjavíkur. Indriði var einn af stofnendum Landssambands ungra framsóknar- manna 1939, sat í stjórn Félags Vestur-Íslendinga, í stjórn Félags Þingeyinga í Reykjavík, sat í stjórn Félags ísl. rithöfunda og í stjórn Rit- höfundasambands Íslands. Hann sat í framkvæmdanefnd Stórstúku Ís- lands, var stórtemplar, sat í stjórn Reglu musterisriddara frá stofnun og í stjórn Þjóðræknisfélags Íslend- inga, var formaður Ættfræðifélags- ins og formaður Myntsafnarafélags Íslands. Hann var heiðursfélagi Stórstúku Íslands, Ættfræðifélags- ins, Myntsafnarafélagsins, Félags íslenskra rithöfunda, Íslenska mannfræðifélagsins, Reglu must- erisriddara og var riddari fálkaorð- unnar frá 1978. Eftir Indriða liggja ýmis rit en þekktust eru þó Ættir Þingeyinga I- IV, 1969-83, og Ættir Þingeyinga, ásamt öðrum, V. og XV. bindi. Þá þýddi hann og sá um útgáfu nokk- urra rita. Indriði lést 4.7. 2008. Merkir Íslendingar Indriði Indriðason 90 ára Ásta Arnórsdóttir Guðbjörg Bergþóra Árnadóttir 85 ára Jón Hilberg Sigurðsson Poul Jansen Þórður Magnússon 80 ára Guttormur Sigfússon Kristín Gissurardóttir 75 ára Inga Hrönn Jónasdóttir Sigurjón Norberg Ólafsson Stefán Karlsson Vigdís Þórðardóttir Þórarinn Ögmundur Helgason Þórey Guðný Eiríksdóttir Þór Ragnarsson 70 ára Guðbjörn Gunnarsson Hrafnhildur Kristjánsdóttir Hrefna Gunnlaugsdóttir Jóhanna Stefánsdóttir Jón Valtýsson Karl Ragnarsson Sigþór Sævar Hallgrímsson 60 ára Adam Kozlowski Eggert Guðjónsson Elías Rúnar Reynisson Erlingur Jóhann Erlingsson Erna M. Valbergsdóttir Hafdís H. Ingimundardóttir Jóhannes Árnason Jón Steinar Ólafsson Katrín Úrsúla Harðardóttir Kristín Erla Björnsdóttir Kristín Sveinsdóttir Kristján Björn Ólafsson Sandra Svavarsdóttir Sigríður Þ. Ingólfsdóttir Sveinn K. Sveinsson Þórunn I. Hjartardóttir 50 ára Aðalsteinn Þ. Jónsson Cezary Ziemba Hildur Georgsdóttir Ingvar Georg Georgsson Jóhanna G. Ólafsdóttir Jónína A. Sigurbjörnsdóttir Kristín Helga Káradóttir Sigfús G. Guðmundsson Sigríður Steinmóðsdóttir 40 ára Anna Teitsdóttir Guðmundur Sveinsson Hlynur Þór Björnsson Ilona Anita Alejnikow Iwona Mocek Ragnar Haukur Ragnarsson Skúli Þór Gunnsteinsson Tómas Þór Ellertsson 30 ára Agnes Helga Sigurðardóttir Alexander Steinarsson Söebech Almar Þorvaldsson Antonía H. Guðmundsdóttir Bragi Jónsson Brynjar Örn Jensson Dominik R. Gruszczynski Fannar Hilmarsson Halldór K. Guðmundsson Ingibjörg Hansdóttir Krzysztof Kiedos Marcin Wojciech Broda Nimrod Haim Ron Ólöf Stefánsdóttir Sigurbjörn Kristjánsson Sigurður Eggertsson Ugis Boze Þórey Richardt Úlfarsdóttir Þórunn Ólafsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Þórunn ólst upp í Kópavogi, býr í Garðabæ, lauk ML-prófi í lögfræði og er lögmaður á SKR Lögfræðiþjónustu slf. Maki: Fannar Páll Aðal- steinsson, f. 1986, mark- aðsstjóri 66° Norður. Systkini: Lísa Ólafsdóttir, f. 1973, og Arna Ólafs- dóttir, f. 1989. Foreldrar: Guðbjörg Hall- dórsdóttir, f. 1958, geisla- fræðingur og Ólafur Ein- arsson, f. 1950, læknir. Þórunn Ólafsdóttir 30 ára Þórey býr í Vík, lauk sveinsprófi í snyrti- fræði og var að opna Smiðjuna Brugghús í Vík. Maki: Sveinn Sigurðsson, f. 1979, vinnur við bruggið og er aðstoðarverslunar- stjóri hjá Icewear. Synir: Almar Dorri, f. 2014, og Ýmir Hrafn, f. 2017. Foreldrar: María Richardt Jónsdóttir, f. 1948, og Úlf- ar Þór Svavarsson, f. 1960. Þórey Richardt Úlfarsdóttir 30 ára Sigurbjörn ólst upp í Garðabæ, er nú bú- ettur í Reykjavík, lauk BS- prófi í tölvunarfræði frá HR og er nú hugbúnaðar- sérfræðingur hjá Voda- fone. Maki: Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, f. 1989, tónlistarmaður. Foreldrar: Kristján Sigur- björnsson, f. 1955, og Anna Lísa Gunnarsdóttir, f. 1957. Þau eru búsett í Garðabæ. Sigurbjörn Kristjánsson Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.