Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert sterkur persónuleiki og átt það til að vera ögrandi. Sökum þess kallar þú ann- aðhvort fram það besta eða versta í fari ann- arra. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú getur lent í mjög erfiðri tilfinninga- stöðu ef þú ekki gætir þín og ferð ákaflega varlega. Láttu vinnufélagana engin áhrif hafa á ákvarðanir þínar varðandi verkefni dagsins. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú er rétti tíminn til að hrinda í framkvæmd þeim áætlunum sem þú hefur svo lengi unnið að af kostgæfni. Reyndu að standa meira á eigin fótum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að setja öðrum úrslitakosti og það veldur þér hugarangri. Hættu að vor- kenna sjálfum þér og líttu á björtu hliðarnar og það sem þú ert og hefur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert í algerlega nýrri aðstöðu þessa stundina og veist varla hvað snýr upp og hvað snýr niður. Nú er erfiður tími fyrir hvers kyns vináttu og því þarft þú að sýna þolinmæði. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú vilt koma skipulagi á hlutina þannig að þú getir lagt drög að því að fara í ferðalag eða á námskeið. Ræktaðu sambönd við vini þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þetta er góður dagur til að ræða við fjöl- skylduna bæði um einkamál og viðskipti.Þú átt í vandræðum með að komast yfir öll þau boð sem til þín streyma. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er sama hvað þú reynir að leiða neikvætt hegðunarmynstur hjá þér, það hverfur ekki af sjálfu sér. Eyddu ekki tíma þín- um í að sannfæra aðra um að þú sért að gera rétt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú eru þau öfl uppi að þú verður að gaumgæfa framtíð þína. Hugsaðu þig tvisv- ar um áður en þú tekur ákvarðanir sem kunna að varða fjármuni annarra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Orð þín hafa mikið vægi bæði heima og á vinnustað svo mundu hversu mikil ábyrgð fylgir því. Þú kemur hugsunum þínum auðveldlega á framfæri. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu sérstaklega á varðbergi gegn ýmsum sögum um menn og málefni, sem þér eru sagðar. Það kemur þér á óvart þegar ákveðin manneskja leitar eftir vinfengi við þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Á undanförnum árum hefurðu verið að læra að standa á eigin fótum. Galdurinn er að einbeita sér að því sem skiptir máli. Áþriðjudag skrifaði HjálmarFreysteinsson á fésbókarsíðu sína: „Eftir skíðagöngu gærdags- ins. Því lýst skal með smávísu smellinni hve illa mér förlast í ellinni. Sárt er að finna að minna og minna ég minni á Arnljót Gellini. En þetta er auðvitað ekkert smellið!“ Hið snjalla kvæði Gríms Thom- sen, Arnljótur Gellini, er að sjálf- sögðu of langt til að það rúmist í Vísnahorni, – en góð hugmynd að rifja það upp áður en lengra er les- ið. Sagt er frá Arnljóti í Ólafssögu helga. Að sjálfsögðu urðu viðbrögð við limru Hjálmars. Fyrstur er Björn Ingólfsson: Ellin í skapið fer á ’onum sem ástæða er varla að lá ’onum. Það er öruggt og klárt en auðvitað sárt, að úlfarnir mundu ná ’onum. Jónas Friðrik Guðnason talar um „skíðlegheit“: Arnljótur æddi á fjölum með úlfahjörð Noregs í dölum. En Hjálmar hann fór (og frægð hans er stór) eitthvað ámóta, eltur af kvölum. Hjálmar Freysteinsson: Þannig er ástandið á ’onum ellin er farin á há ’onum að óvíst má telja hvort úlfarnir velja að eta hann þegar þeir ná ’onum. Þórarinn Hjartarson: Álpast gegnum skóg á skíðum skjögurlegur halur einn. Er í kufli allt of síðum endastingst í Naustahlíðum. Streitist þó við að standa beinn. Þröstur Friðfinnsson: Þó eflaust sé ástandið á ’onum, afleitt og farið að há ’onum. Er heilinn snar sem snikkar þar og snilld það sem streymir frá ’onum! Hjálmari þótti rétt að taka fram að hann gekk á skíðum í Hlíðar- fjalli. – „Þar er enginn skógur og lítið um úlfa. Varla von að maður líkist Arnljóti þar!“ Vorið er komið og það setur svip á skáldskap hagyrðinganna. Davíð Hjálmar Haraldsson orti á leir fyrir helgi: Vorið hlær og vill á sprett: Vakni þeir er sofa! Hrjúfri rödd við Hreiðurklett hrafnar Guð sinn lofa. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Hjálmari og Arnljóti Gellini „ÞRIÐJI ÁRSFJÓRÐUNGUR VAR SKO ENGIN SKEMMTIGANGA. HVAÐ ÞÁ FYRIR OKKUR SEM ÞURFUM AÐ GANGA Í GEGNUM ALMENNINGSGARÐINN.“ „HURÐU, ÉG ÞIGG HVAÐ SEM ER NEMA FÖT OG SKÓ.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að halda hugsunum þínum fyrir sjálfan þig. GÆTIRÐU HJÁLPAÐ MÉR… MEÐ ÞESSA INNKAUPAPOKA? GRETTIR, ÉG ER KOMINN! TALAR MÁLVERKIÐ MITT TIL ÞÍN? JÁ, ÞAÐ GERIR ÞAÐ! EN FYRIRSÆTAN GERIR ÞAÐ EKKI… SÍÐAN HELGA TALAÐI VIÐ HANA! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Fljótt á litið virðast franski rithöf-undurinn Michel Houellebecq og enski knattspyrnumaðurinn Danny Welbeck ekki eiga margt sameigin- legt. Og þó. Sessunautur Víkverja vakti athygli hans á því á dögunum að eins ólík og ættarnöfn þessara tveggja manna eru á prenti þá eru þau borin nákvæmlega eins fram. Merkilegt. Frakkar eru reyndar frægir fyrir að týna stöfum í framburði. Hver man til dæmis ekki eftir miðherj- anum Dominique Rocheteau, sem gerði garðinn frægan með franska knattspyrnulandsliðinu snemma á níunda áratugnum? Í töluðu máli heitir hann einfaldlega Dominík Rostó. x x x Talandi um knattspyrnumenn, þáværi fróðlegt að vita hvort nafn- ið Craig Thordarson hringir ein- hverjum bjöllum hjá lesendum. Sá ágæti maður stendur í markinu hjá ungmennaliði Blackpool í Englandi og varð meðal annars svo frægur á dögunum að verja vítaspyrnu í leik gegn Arsenal í ungmennabikarnum, FA Youth Cup. Samkvæmt skjölum sem Víkverji hefur undir höndum er kappinn enskur en gæti, af nafninu að dæma, hæglega verið af íslensku bergi brot- inn og þá líklegast af Skaganum. All- tént hafa ófáir Þórðarsynirnir komið þaðan, hver öðrum frambærilegri á velli. Svo er aldrei að vita nema Sig- valdi Thordarson arkitekt sé frændi Craigs. Sendið Víkverja endilega línu ef þið vitið eitthvað um málið! x x x Eins og fram hefur komið fer hverað verða síðastur að sjá málm- goðin í Slayer á sviði en bandið heiðrar okkur Íslendinga einmitt með nærveru sinni á Secret Solstice í sumar á lokatúr sínum. Gamall fé- lagi benti Víkverja þó á fyrir skemmstu að ekki sé alltaf allt sem sýnist í þessum efnum. Sjálfur hafði félaginn rokið upp til handa og fóta árið 2008 til að sjá glysrokksveitina Kiss á kveðjutúr sínum. Eins og við þekkjum þá stendur sá túr ennþá yf- ir – heilum áratug seinna. vikverji@mbl.is Víkverji Og þetta boðorð höfum vér frá honum, að sá sem elskar Guð á einnig að elska bróður sinn og systur (Fyrsta Jóhannesarbréf 4.21)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.