Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 31

Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 Verkið Vakúm eftir Mel-korku Sigríði Magnús-dóttur var frumsýnt íTjarnarbíói síðastliðinn fimmtudag. Það ber undirheitið „poppópera“, en form þess byggist á söng og dansi þar sem eitt söng- númerið tekur við af öðru eins og um tónleika sé að ræða. Útfærslan er unnin í náinni samvinnu við flytj- endur. Melkorka vinnur hér áfram með hugmynd úr verkinu Milky- whale sem á sínum tíma fékk verð- skuldað góðar viðtökur og var mjög áhugaverð stuðsýning. Melkorka fær nú til liðs við sig stóran hóp listamanna úr ólíkum listgreinum og lætur dansara syngja og söngvara dansa. Titill verksins vísar í tómarúm eða loft- tæmi, og í umfjöllun um verkið segir höfundur að ætlunin sé að skapa nýjan heim úr engu og gefa honum merkingu. Í verkinu birtast flytj- endurnir sem kynlausar verur í óljósum heimi í leit að einhvers kon- ar tilgangi. Verkið vekur hugrenn- ingar um það hvað er að vera mann- eskja, og hvort við séum betur sett ein á báti eða með því að tilheyra hópi. Þá eru einnig vísanir til hug- mynda um að þeir hæfustu komist af, kapítalismi geri alla eins, óstabíl ástarsambönd, græðgi og einkaeign, hvernig manneskjan lýgur að sjálfri sér í afneitun um þunglyndi, og enn- fremur má finna tilvitnanir í ís- lenska menningararfinn. Það er því augljóst að margir boltar eru á lofti. Verkið hefst með því að flytjend- urnir brjóta sér leið út úr plast- strengdum kassa, þeir fikra sig fram eftir sviðsgólfinu og mynda fléttu sem kallar fram í hugann byggingu DNA-erfðaefnisins. Fæð- ing? Sköpun? Eða „eilífðar- hringurinn“ sem Auður Ava vísar til í ljóði sínu? Við sjáum síðan röð sena þar sem flytjendur gera tilraun til mismunandi samskipta, útiloka hver annan, fara í samkeppni sín á milli, eða koma saman sem heild og leitast við að mynda samfélag. Það er erfitt að sjá hvernig þetta tengist að öðru leyti, tilvísanirnar taka við hver af annarri án sýnilegs sam- hengis, og sviðsetningin fer frekar að minna á uppstillingu en organ- íska framvindu. Ljóðatextar Auðar Övu eru marg- ir gullfallegir, hún dregur upp litrík- ar myndir, stillir saman hátíðlegu orðfæri og hversdagslegu, vinnur markvisst með endurtekningar og leikur sér með takt. Það eru því vonbrigði hversu tónlistin er að mestu leyti ófrumleg og klisju- kennd, hún þvingar sér upp á text- ann oft með þeim afleiðingum að áherslur verða vitlausar og hljóðfall textans týnist. Ekki bætir úr skák að hljóðblönduninni var oft ábóta- vant. Hér hefði þurft að vanda betur til verka. Sviðsmyndin samanstendur af plaststrengdum kassanum og stórri hrúgu af álteppum sem flytjendur leika sér með og henda sín á milli. Líklegast á plastkassinn að tákna einhvers konar leg eða móðurlíf, en að öðru leyti hefur hann litla merk- ingu og er til lítils gagns. Aðallega tekur hann pláss frá flytjendunum sem hefði verið hægt að nýta til að skapa meiri tilfinningu fyrir tóminu, sem verkinu er þó ætlað að fjalla um. Lýsingin er heldur flöt og gerir lítið til að hjálpa sviðsmyndinni. Búningarnir eru hlutlausir og þann- ig séð ágætir, þó að ekki sé skýrt af hverju Crocs-skór og Adidas-buxur urðu fyrir valinu í þessari veröld. Þannig unnu listrænar ákvarðanir því miður hver gegn annarri. Það er erfitt að meta frammistöðu flytjenda þegar umgjörðin og dramatúrgían er ekki sterkari en er í þessu verki. Þá er kóreógrafían þannig að búast mætti við að sjá svipað á popptónleikum eða í tón- listarmyndböndum, klisjukennd og frekar til uppfyllingar, og því varla hægt að setja mælikvarða á gæði dansins. Flytjendurnir gera þó margt mjög vel, bæði með húmor og leikrænum tilbrigðum, sem hittir þó misvel í mark. Þau hafa sterka sviðsframkomu, metnað og hæfi- leika sem gerir mikið fyrir verkið. Hápunkturinn er í laginu „Allt í megagóðu“, það stendur uppúr sem mjög skemmtilegt lag sem maður fær strax á heilann. Þar fær pönk- söngvarinn Gunnar Ragnarsson að njóta sín. Í gegnum verkið gefur hann kynþokkafullt kikk í upplifun- ina, kitlar hláturtaugar áhorfenda með barnslegri einlægni sinni og krefst athygli þeirra með öskursöng sínum. Gunnar á líka mjög falleg augnablik með Elísu Lind, dansara, og nær kemistrían þeirra á milli að snerta við manni. Hins vegar er synd að við fáum ekki að njóta hæfi- leika Ásgeirs Helga að neinu marki, en hann er einn af okkar færustu dönsurum. Tónlist og sviðslist í góðri samein- ingu getur hitt beint í hjartastað, svo ekki sé talað um þegar við er bætt dassi af húmor, stuði og ein- lægni. Allt þetta hefði getað notið sín í þessu verki ef hugmyndafræðin hefði komist til skila og betur verið unnið úr efninu. Það eru vissulega augnablik þegar maður hrífst með, vegna hæfileika flytjendanna, en þau eru aldrei í samhengi við heild- ina. Það verður að gera kröfur um að höfundur sé með ákveðið ætlunarverk, og áhorfandinn finni hvert það er. Í Vakúm er fjöldi hug- mynda á lofti, eins og í æfingu í miðju ferli, þar sem ekki er búið að skrapa í burt umbúðirnar til að komast að kjarnanum. Hér hefði þurft meiri tíma og hugsun til að ná fram einni sterkri heildarmynd þar sem listgreinarnar hefðu upphafið hver aðra. Því virkar heildar- útkoman sjálfhverf, samhengislaus, óunnin og gagnrýnislaus. Hér liggur þó mikil vinna og metnaður að baki, það dylst ekki, og tekst textunum og flytjendunum á sinn hátt að halda verkinu uppi og hreyfa við áhorf- endum. Það er áhugaverð tilraun að gera poppóperu sem sviðsverk og það verður spennandi að sjá hvað Melkorka tekur sér næst fyrir hendur. Ljósmynd/Magnús Leifsson Fjöldi hugmynda „Hér hefði þurft meiri tíma og hugsun til að ná fram einni sterkri heildarmynd þar sem listgrein- arnar hefðu upphafið hver aðra,“ segir rýnir um sýninguna Vakúm sem er á fjölum Tjarnarbíós. Poppópera í tómarúmi Tjarnarbíó Vakúm bbnnn Höfundur: Melkorka Sigríður Magnús- dóttir. Tónlist: Árni Rúnar Hlöðversson. Texti: Auður Ava Ólafsdóttir. Leikmynd og búningar: Magnús Leifsson og Arnar Ásgeirsson. Dramatúrg: Halldór Hall- dórsson. Kór og kórútsetningar: Krist- jana Stefánsdóttir. Ljósahönnun: Hafliði Emil Ragnarsson. Hljóðhönnun: Kristinn Gauti Einarsson. Flytjendur: Auðunn Lúthersson, Ásgeir Helgi Magnússon, Elísa Lind Finnbogadóttir, Gunnar Ragn- arsson og Melkorka Sigríður Magnús- dóttir. Frumsýning fimmtudaginn 12. apríl. NÍNA HJÁLMARSDÓTTIR DANS Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA? Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Lau 5/5 kl. 20:00 27. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Lau 28/4 kl. 20:00 22. s Sun 6/5 kl. 20:00 28. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Mið 2/5 kl. 20:00 24. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Fim 3/5 kl. 20:00 25. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Fös 4/5 kl. 20:00 26. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 18/4 kl. 20:30 aukas. Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Fim 19/4 kl. 20:30 4. s Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Fös 20/4 kl. 20:30 5. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 aðalæ Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Fös 20/4 kl. 19:30 46.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 47.sýn Sun 29/4 kl. 19:30 48.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 11:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Barnamenningarhátíð 2018 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.