Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018
Undanfarnar vikur hafa verið for-
sýningar í Lyric-leikhúsinu við
Broadway í New York á leikritinu
Harry Potter and the Cursed Child,
sem sló fyrst í gegn í Lundúnum,
hefur hlotið þar fjölda verðlauna og
er sýnt fyrir fullu húsi. Verkið er í
tveimur hlutum, fimm tímar alls og
selt á hlutana í sitthvoru lagi. Form-
leg frumsýning beggja í New York
verður á sunnudaginn kemur og
telja framleiðendur víst að verkið
verði á fjölunum þar í mörg ár, enda
réðust þeir í afar kostnaðarsamar
breytingar á leikhúsinu auk þess
sem það kostar sitt að færa verkið
upp. Samkvæmt The New York
Times var kostaður við uppfærsluna
og breytingar á húsinu 68 milljónir
dala, nær sjö milljarðar króna.
Hugarfóstur breska rithöfundar-
ins J.K. Rowling, Harry Potter og
galdraheimur hans, hefur haldið
áfram að mala gull síðan fyrsta bók-
in kom á prent. Rowling er einn
þriggja höfunda leikritsins og mun í
fyrstu fá um þriðjung hagnaðar af
sýningunum og hækkar hlutfallið
upp í rúm fjörutíu prósent þegar all-
ar skuldir hafa verið greiddar upp.
Uppsetningin á leikritunum um
Harry Potter er þegar orðin sú
kostnaðarsamasta við Broadway
þegar ekki er um söngleik að ræða.
Sviðsetningin er sögð hafa kostað
35,5 milljónir dala og aðrar 33 að
rýma leikhúsið og breyta því á ýmsa
vegu. Í síðarnefndu upphæðinni eru
þær 23 milljónir daga sem framleið-
endurnir greiddu fyrri leigjendum
Lyric-leikhússins, Cirque du Soleil,
fyrir að pakka sinni sýningu saman
og hverfa á braut.
Þrátt fyrir að enn séu forsýningar
á verkinu er innkoman þegar farin
að slá met; fyrstu vikuna voru miðar
seldir fyrir 2,1 milljón dala og hafa
ekki fyrr selst aðgöngumiðar fyrir
jafn háa upphæð á leiksýningu á
einni viku vestanhafs.
Miklar breytingar voru gerðar á
leikhúsinu. Sætum var fækkað um
270 niður í 1.622, innréttingum
breytt til að minna á salarkynni
Harry Potter-bókanna, gólfteppi eru
með einkennismerkjum Hogwarts-
galdraskólans og þá var inngangur-
inn færður frá hinu umferðarþunga
42. stræti á hina hlið hússins, við 43.
stræti.
Cursed Child gerist 19 árum eftir
að síðustu bókinni lýkur, þegar
Potter og vinir hans eru orðin for-
eldrar barna með galdrahæfileika.
Ljósmynd/Jenny Anderson - harrypottertheplay.com
Galdraheimur Leikritin um Harry Potter eru kynnt með áberandi hætti á
Lyric Thetre, með miklum væng á leikhúsinu og hreiðri á nálægu þaki.
Dýrasta við Broadway
Hasarmyndin Rampage var sú sem
mestum miðasölutekjum skilaði í
kvikmyndahúsum landsins um
helgina, um 3,5 milljónum króna og
sáu hana um 2.700 manns. Í henni
segir af albínógórillu sem hættir
ekki að stækka eftir að tilraunir eru
gerðar á henni og verður hún á
stærð við King Kong. Hún, ásamt
öðrum risadýrum, ógnar mannkyni
og kemur þá hetja til sögunnar,
leikin af Dwayne Johnson. Hroll-
vekjan A Quiet Place var næst-
tekjuhæst með tæpar þrjár millj-
ónir króna og Víti í Vestmanna-
eyjum sú þriðja tekjuhæsta en hana
sá um 1.900 manns. Frá upphafi
hafa um 28.000 manns séð myndina.
Rampage Ný Ný
A Quiet Place 2 2
Víti i Vestmannaeyjum 1 4
Ready Player One 3 3
Blockers 4 2
Peter Rabbit 5 3
The Death of Stalin 10 2
Strangers: Prey at Night (2018) Ný Ný
Lói – þú flýgur aldrei einn 8 11
Tomb Raider (2018) 6 5
Bíólistinn 13.–15. apríl 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Ógnvekjandi Górillan í Rampage.
Bíóaðsókn helgarinnar
Hvíta risagórillan
vinsæl um helgina
Hleyptu sól í hjartað
Listakonan Isabelle er í stöð-
ugri leit að hinni sönnu ást.
Bíó Paradís 20.00
The Florida Project
Hin sex ára gamla Moonee
elst upp í skugga Disney
World ásamt uppreisnar-
gjarnri og ástríkri móður
sinni.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 92/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 22.30, 23.00
Loving Vincent
Bíó Paradís 22.00
Adam
Adam stendur frammi fyrir
erfiðri ákvörðun þegar móð-
ur hans, áfengissjúkri teknó-
tónlistarkonu, er komið fyrir
á stofnun með heilabilun.
Bíó Paradís 17.00
Narzeczony Na Niby
Karina segir unnusta sínum
ósatt en það leiðir til ófyrir-
séðrar atburðarásar.
Bíó Paradís 17.45
Doktor Proktor og
tímabaðkarið
Bíó Paradís 18.00
Pitbull Ostatni Pies
Bíó Paradís 20.00
Rampage 12
Metacritic 47100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 17.40, 20.00,
22.15
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 17.20,
19.40, 22.00
Sambíóin Akureyri 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.40,
20.00, 22.20
Strangers:
Prey at Night 16
Metacritic 49/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 19.10, 20.00,
21.30, 22.10
Háskólabíó 18.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.30
The Death of Stalin
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 7,2/10
Háskólabíó 18.20, 21.10
Borgarbíó Akureyri 21.30
Tomb Raider 12
Metacritic 47/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Hostiles 16
Metacritic 65/100
IMDb 7,3/10
Smárabíó 19.40, 22.30
Háskólabíó 17.50
Borgarbíó Akureyri 17.15
Black Panther 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 87/100
IMDb 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 19.40
Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm
IMDb 8,2/10
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 22.00
Red Sparrow 16
Metacritic 56/100
IMDb 5,4/10
Smárabíó 22.00
The Shape of
Water 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 86/100
IMDb 7,8/10
Háskólabíó 20.40
Death Wish 16
Metacritic 31/100
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 17.40, 20.00
Pétur Kanína
Pétur reynir að lauma sér
inn í grænmetisgarð nýja
bóndans og þeir há mikla
baráttu.
Laugarásbíó 17.40
Sambíóin Egilshöll 17.40
Smárabíó 15.20, 17.40
Borgarbíó Akureyri 17.30
Steinaldarmaðurinn
Metacritic 48/100
IMDb 8,0/10
Smárabíó 17.10
Lói – þú flýgur aldrei
einn Morgunblaðið bbbbn
Smárabíó 15.30, 17.40
Víti í Vestmanna-
eyjum Morgunblaðið bbbbn
Sambíóin Álfabakka 18.00,
20.00
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Kringlunni 16.40
Sambíóin Akureyri 17.00
Sambíóin Keflavík 17.00
Pacific Rim:
Uprising 12
Metacritic 46/100
IMDb 6,1/10
Smárabíó 19.20
Doktor Proktor og
prumpuduftið
Bíó Paradís 20.00
Fjölskylda ein býr á afviknum stað í algjörri
þögn. Ótti við óþekkta ógn vofir yfir, og ræðst á
þau við hvert einasta hljóð sem þau gefa frá sér.
Metacritic 80/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.20, 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.50
Sambíóin Kringlunni 19.00, 21.00
Sambíóin Akureyri 22.20
Sambíóin Keflavík 22.10
A Quiet Place 16
Ready Player One 12
Myndin fjallar um strák sem er heltekinn af menningu níunda
áratugar síðustu aldar.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 65/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 22.10
Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.30,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00,
22.10
Sambíóin Kringlunni 18.00, 21.00
Sambíóin Akureyri 19.20
Sambíóin Keflavík 19.20
Blockers 12
Þrír foreldrar komast á snoðir um leynisamkomulag sem felur
í sér að dæturnar ætla sér að missa meydóminn á út-
skriftarballi sem nálgast.
Metacritic 73/100
IMDb 6,2/10
Laugarásbíó 20.00, 22.20
Smárabíó 16.50, 17.00, 19.50,
22.10
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 19.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio