Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 107. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Sjónlausri konu gert að yfir … 2. Ellý fer úr að ofan 3. „Mátti ekki tæpara standa“ 4. Verk Tolla aftur komið á gjör … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kona fer í stríð, nýjasta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Benedikts Erlingssonar, hefur verið valin til þátttöku í Critics‘ Week, einni af hliðardagskrám kvikmyndahátíð- arinnar í Cannes sem fram fer 9.-17. maí og verður því heimsfrumsýnd þar. Þykir það mikill heiður þar sem Cannes-hátíðin er ein virtasta kvik- myndahátíð heims. Í myndinni segir af kórstjóra á fimmtugsaldri sem ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn stóriðju í landinu. Arctic, bandarísk kvikmynd sem er meðframleidd af íslenska fyrirtækinu Pegasus, verður einnig frumsýnd á hátíðinni og Bergmál, nýjasta kvik- mynd Rúnars Rúnarssonar, sem nú er í þróun, tekur þátt í Cannes Atelier, vettvangi fyrir leikstjóra og framleið- endur sem miðar að því að hjálpa til við að koma verkefninu af stað. Þá verður Vargur, fyrsta kvikmynd Bark- ar Sigþórssonar í fullri lengd, sýnd á markaðssýningu en myndin verður frumsýnd hér á landi 4. maí. Morgunblaðið/Ásdís Kona fer í stríð frumsýnd í Cannes  Hljómsveitin Kælan mikla, Jónsi úr Sigur Rós, Alex Somers og tónskáldið Paul Corley eru meðal þeirra sem koma munu fram á tónlistarhátíðinni Meltdown sem fram fer 15.-24. júní í Southbank Centre í Lond- on. Robert Smith, söngvari og forsprakki hljómsveitarinnar Cure, er listrænn stjórnandi hátíðarinnar í ár. Jónsi, Alex og Corley munu flytja verkið Liminal. Jónsi og Kælan mikla á dagskrá Smith Á miðvikudag Sunnan og suðaustan 10-18 og skúrir eða rigning, en þurrt að kalla á Norður- og Norðausturlandi. Hiti 6 til 12 stig. Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti) Suðlæg eða breytileg átt, 3-8. Skýjað að mestu og dálitlar skúrir. Hiti á bilinu 5 til 10 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Talsverð rigning á Suðausturlandi og Aust- fjörðum fram eftir morgni, Hiti 6 til 14 stig. VEÐUR Íslandsmeistarar Vals í handknattleik karla eru komnir í sumarleyfi. Þeir töpuðu öðru sinni fyrir Haukum í gærkvöld í átta liða úrslitum Íslandsmóts- ins. Haukar tóku Valsmenn í karphúsið og unnu með tíu marka mun, 29:19. Selfoss- liðið er einnig komið í und- anúrslit eftir annan sigur á Stjörnunni. Selfoss mætir FH í undanúrslitum og ÍBV leikur við Hauka. »2 Íslandsmeistar- arnir í sumarfrí „Ég held að þetta verði mjög jafnt úr- slitaeinvígi, en ég tel að það vinni með Fram að Valur skuli aðeins fá tveggja daga pásu eftir fimm leikja seríu við okkur í Haukum, á meðan Fram fær fimm daga pásu eftir fjóra leiki við ÍBV. Það hjálpar klárlega Fram, og svo er ekkert launungarmál að „bekkurinn“ er sterkari hjá Fram,“ segir þjálfari Hauka um einvígi Reykjavíkurliðanna um Íslandsmeist- aratitil kvenna í handbolta. »4 Fram fékk meiri hvíld og er með meiri breidd Klofningur er innan Sundsambands Norðurlandanna, NSF. Hann opinber- aðist um helgina á þingi NSF í Reykjavík sem ekki var hægt að ljúka með formlegum hætti þar sem hluti þingfulltrúa yfirgaf þingið áður en því lauk. Á þinginu átti m.a. að kjósa nýjan forseta samtakanna en fyrst og fremst að leiða til lykta ágreining um framtíðarform samtakanna. »1 Sundruð sundsamtök Norðurlandanna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er svo rosalegur fjöldi fólks sem kemur hingað eftir að Secret Lagoon komst á kortið. Það er bil- un að fara og horfa á bílastæðið þarna niður frá. Staðan er þannig að það er ekki verið að sinna þess- um fjölda og þá þarf maður bara að bregðast við,“ segir Sindri Daði Rafnsson, bakari á Flúðum. Sindri og eiginkona hans Íris Dröfn Kristjánsdóttir opnuðu bak- arí í bílskúrnum hjá sér við Ljóna- stíg fyrir rétt rúmum tveimur ár- um. Óhætt er að segja að spurn hafi reynst eftir nýbökuðu brauði og bakkelsi á Flúðum og Sindri bakari sló í gegn. Brauðin og sæt- metið er líka í hæsta gæðaflokki og hefur verið selt víða á Suður- landi við góðar undirtektir. Nokkrum mánuðum síðar flutti bakaríið í lítinn skúr í iðnaðar- hverfinu í bænum. „Við byrjuðum uppi í bílskúr en fengum svo þennan skúr um versl- unarmannahelgina 2016. Hann var nú ekki beint tilbúinn þegar við opnuðum en þetta var komið al- mennilega í gang í september,“ segir Íris Dröfn. Taka ekki við stórum hópum Hún segir að vinsældir bakarís- ins hafi aukist jafnt og þétt og þau hafi ekki lengur undan á núver- andi stað. „Já. Þetta er alltaf að aukast. Við erum bara með vaxtarverki. Og hvað á maður að gera? Það er annaðhvort að fara aftur í skúrinn og vera bara einn eða stækka enn meira.“ Sem dæmi um ásóknina hefur afgreiðslutími bakarísins nýlega verið lengdur til klukkan níu á kvöldin og fjölbreyttir réttir eru nú á matseðli. Sindri og Íris taka á móti smærri hópum af ferða- mönnum en það reyndist unnt eft- ir að tjaldað var yfir pallinn við hlið bakarísins. Von er á stærra tjaldi til að bæta aðstöðuna frek- ar. „En við verðum að segja nei við stóru rúturnar. Það er leiðinlegt að þurfa að segja nei því við nenn- um alveg að vinna. Við höfum bara ekki pláss fyrir svo stóra hópa. Ef veðrið er vont getum við ekki komið fólkinu fyrir inni.“ Byggja nýtt verslunarhúsnæði Mikið líf er á Flúðum vegna þess hve ferðamönnum fjölgar. Sindri segir að skortur sé á hús- næði vegna fjölgunar íbúa og starfsfólks í ferðaþjónustu. En uppbygging er hafin og bendir hann á að raðhúsabyggð eigi að rísa skammt undan. Stóru frétt- irnar fyrir Sindra og Írisi eru þó þær að framtíðarhúsnæði bakarís- ins er innan seilingar. „Það er allt að gerast hérna. Það á að reisa nýtt verslunar- húsnæði þar sem tjaldsvæðið er við þjóðveginn. Þangað flytjum við og Samkaup og fleiri þjónustuað- ilar. Það hefur þótt svo mikil slysahætta við gatnamótin hjá Samkaupum á sumrin, þetta er bara flöskuháls, svo sveitarfélagið vildi færa verslunina. Svo ætlar Vegagerðin að gera hringtorg þar. Það á að byrja að grafa fyrir nýja húsinu í þessari viku og það verð- ur vonandi tilbúið í janúar,“ segir Sindri bakari á Flúðum. Með vaxtarverki á Flúðum  Sindri bakari færir út kvíarnar á næstunni Morgunblaðið/Hari Bakað á Flúðum Sindri Daði Rafnsson og Íris Dröfn Kristjánsdóttir opnuðu bakarí á Flúðum fyrir rúmum tveimur árum. Bakaríið hefur slegið í gegn og þurfa þau að flytja í nýtt húsnæði til að anna eftirspurn. Hraður uppgangur » Sindri og Íris fluttu að Flúð- um árið 2015. Tilkynnt var á þorrablóti að bakari væri fluttur í bæinn og þá varð ekki undan komist: „Ég ætlaði ekkert út í baksturinn aftur, ég hafði verið í þessu í tuttugu ár, en það er allt annað að gera þetta á eigin for- sendum og vera í vinnu hjá sjálfum sér.“ » Þau byrjuðu með bakaríið í bílskúr en fluttu síðar sama ár í núverandi húsnæði. Á næsta ári stækka þau enn frekar við sig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.