Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Qupperneq 4
Breytingar á titlum SHÍ Fyrir breytingu Eftir breytingu ✘ Formaður ✔ Forseti ✘ Varaformaður ✔ Varaforseti ✘ Aðalmaður ✔ Aðalfulltrúi ✘ Varamaður ✔ Varafulltrúi ✘ Maður ✔ Einstaklingur ✘ Námsmaður ✔ Nemandi ✘ Fundarmaður ✔ Fundarmeðlimur ✘ Stjórnarmaður ✔ Stjórnarmeðlimur ✘ Aðstoðarmaður ✔ Aðstoðarmanneskja ✘ Framsögumaður ✔ Flutningsaðili ✘ Formennska ✔ Forsæti ✘ Nefndarmaður ✔ Nefndarmeðlimur Forseti Formaður Varaforseti Varaformaður Stúdentaráð samþykkti ein-róma á fundi sínum í vik-unni að titlar og heiti innan Stúdentaráðs yrðu uppfærð með það að leiðarljósi að draga úr kynjaðri orðræðu. Var þessi laga- breyting gerð með jafnréttis- stefnu beggja fylkinga, Röskvu og Vöku, að leiðarljósi. „Með kynjaðri orðræðu er átt við titla og heiti sem gefa óþarf- lega í skyn eitt kyn, og gildi þess, umfram önnur. Lög Stúdentaráðs eiga að stuðla að félagslegri breidd til að Stúdentaráð geti sinnt hlutverki sínu sem raun- verulegt hagsmunaafl allra nem- enda. Að hverfa frá kynjuðum embættistitlum getur virkað sem minniháttar skref en er engu að síður mikilvægt þar sem það hef- ur áhrif á reynsluheim þeirra sem standa innan, og utan, ráðsins,“ segir í yfirlýsingu frá ráðinu. Áhrifarík orðræða Elísabet Brynjarsdóttir er forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands. „Ég byrjaði í stúdentapólitík fyrir tveimur árum en þá var Eydís Blöndal oddviti Röskvu. Hún tók upp í rökræðum þessa grundvall- arpælingu að allir séu manneskjur en að orðið maður sé gildishlaðið og að þessi orðræða geti stuðlað að því að ekki allir endurspegli sig í titlum eins og formaður,“ segir Elísabet sem man eftir því að hún hugsaði þá það sem marg- ir gera, „konur eru nú líka kven- menn“. Hún fór að spá meira í þetta og skoðaði rannsóknir. „Orðræðan getur verið svo áhrifarík, sér- staklega titlar sem gefa í skyn eitt kyn umfram önnur. Eftir að hafa kynnt mér málið betur fannst mér þetta vera borðleggj- andi. Íslenska er frjótt tungumál og við erum með mikinn orðaforða sem er ekki kynjaður. Þá fannst mér bara ekkert að því að breyta þessum titlum, ég sá ekki hvernig einhver gæti mögulega tapað á því,“ segir hún en samstaða var um málið í ráðinu. Engin mótmæli „Þetta var einróma samþykkt. Það var enginn sem mótmælti þessu. Við sem lögðum fram breytingatillöguna bjuggumst við þessum rökræðum um hvort kon- ur væru ekki líka menn. Það kom ekkert slíkt upp innan ráðsins.“ Í yfirlýsingu frá SHÍ eftir þessa ákvörðun segir að þau sem sitja í forsvari hafi vald til að leysa af hólmi kynjaða orðræðu innan stofnana og fyrirtækja. Stúd- entaráð voni að með þessum breytingum ráðsins fylgi vitund- arvakning og þær stofnanir, fyrir- tæki og embætti sem notist við kynjað tungumál uppfæri það til að tryggja þátttöku og aðgengi allra. Þannig getum við sem sam- félag stefnt að raunverulegu jafn- rétti fyrir alla. „Fólk sem er í forsvari er oftast í forréttindastöðu og tengir kannski ekki við það að það spegli sig ekki í þessum titlum. Þegar fólk sem er í valdastöðum getur nýtt sér þær til að endurspegla sem breiðasta vídd samfélagsins þá finnst mér það einstakt tæki- færi, eins og í okkar tilfelli, til að gera hagsmunabaráttuna aðgengi- legri,“ segir Elísabet sem sér fyrir sér fleiri breytingar í þessa átt. „Þetta er fyrsta skrefið í að af- nema kynjaða orðræðu. Næsta skref er að heyra í íslenskufræð- ingum, sérfræðingum í málvís- indum og kynjafræðingum um hver næstu skref gætu orðið. Þessi lagabreyting nú tekur ekki á allri kynjaðri orðræðu,“ segir hún. Margir þættir spili hér inn í eins og notkun persónufornafna sem þessar lagabreytingar fá ekki ráðið. Helsta þróunin hér sé að skipta út „maður“ sem sé klár til- vísun í karlkyn. Persónufornafnið hann sé þó notað um marga af þeim titlum og heitum sem komi í staðinn. Þetta þurfi að skoða frek- ar. Fleiri fylgi í kjölfarið Elísabet vonast til að fleiri feti í fótspor Stúdentaráðs. „Við höfum að mestu fengið góð viðbrögð við þessu. Ég veit að ein- hverjir stjórnmálaflokkar taka þetta til sín varðandi titla innan stjórna hjá þeim. Síðan veit ég líka að fleiri stúdentafélög hafa lýst yfir áhuga á að breyta þessu hjá sér. Þetta er skref í áttina að aukinni vitundarvakningu um þessa kynjuðu orðræðu.“ Elísabet Brynjarsdóttir er ekki lengur formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands heldur forseti en í vikunni samþykkti Stúdentaráð einróma að titlar og heiti innan ráðsins yrðu uppfærð með það að leiðarljósi að draga úr kynjaðri orðræðu. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Elísabet Brynjarsdóttir er forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Hverfa frá kynjuðum titlum Morgunblaðið/Hari 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.4. 2018 ’ Stúdentaráð vonar að með þessum breytingum ráðsins fylgi vitundarvakning og þær stofnanir, fyrirtæki og embætti sem notast við kynjað tungumál uppfæri það til að tryggja þátttöku og aðgengi allra. Úr yfirlýsingu frá Stúdentaráði Háskóla Íslands INNLENT INGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR ingarun@mbl.is „Hvernig við tjáum okkur (orðræða) hefur gífurleg áhrif á upplifanir okkar og mótar þannig raunveruleikann sem við búum við. Nóg er til af rannsóknum á áhrifum orð- ræðunnar sem varpa ljósi á hvetjandi og letjandi mátt hennar. Þannig geta titlar og heiti gefið sterklega til kynna hvers er ætlast til af þátttak- anda. Titill eins og „formað- ur“ getur þ.a.l. gefið til kynna að krafist sé a.m.k. einhverra karlmennskulegra gilda til að sinna starfinu vel sökum orðs- ins „maður“. Auðvelt væri að álykta í þessu samhengi að „maður“ væri í raun fullkom- inn staðgengill, þar sem við erum öll hluti af „mannkyn- inu“, en það væri að einblína of þröngt á uppruna orðsins og ekki á hversu takmarkandi það er í raun og veru fyrir stóran hluta samfélagsins. Til dæmis er augljóst hvað „kell- ing“ merkir í daglegu tali og hefur það áhrif á túlkun sam- félags á kvenkynið – þrátt fyr- ir að orðabókaskilgreining og uppruni orðsins sé „kona“.“ Úr greinargerð sem fylgdi með lagabreytingunni. Eru konur líka menn?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.