Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Page 18
STJÓRNMÁL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.4. 2018 Brexit er áskorun fyrir hin smærri ríkiEvrópu; innan Evrópusambandsins semutan. Endurskipulagning sambandsins eftir útgöngu Breta er líkleg til að færa Þjóð- verjum og Frökkum ennþá meiri völd í hendur og tryggja ítök þeirra í álfunni, undir forystu Þjóðverja. Það gæti átt eftir að draga úr áhrif- um hinna smærri ríkja. Enda þótt menn hafi gjarnan hent gaman að Bretum fyrir að vera „fíllinn í postulínsbúðinni“, höfðu mörg smærri ríkjanna hag af því að einhver annar en þau mölvuðu postulínið, þegar ESB-ríkin greindi á um stefnumótun og endurbætur á kerfinu. Þannig sló Bretland oftar en ekki skjaldborg um smærri ríkin gagnvart yfirráðum Þjóðverja og Frakka sem var heppilegt þegar rýnt var til gagns í þróun og breytingar á lýðræðislegu samstarfi. Þetta er niðurstaða Baldurs Þórhallssonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, og Anders Wivel, prófessors í stjórn- málafræði við Kaupmannahafnarháskóla, í grein um áhrif Brexit á smáríki, innan sem utan ESB, sem birtast mun í bókinni The Routledge Handbook of the Politics of Brexit. Ganga Bretar í EFTA? Í greininni kemur fram að tækifæri, ekki bara áskoranir, séu fólgin í Brexit fyrir EFTA-ríkin og ríkin sem eiga aðild að Evrópska efnahags- svæðinu. Þannig geti Ísland og Noregur orðið minna háð Evrópusambandinu takist þeim að nýta Brexit í sína þágu og koma á nánara sam- starfi við Breta á sviði öryggismála, viðskipta og menningar. Þetta á ekki síst við gangi Bretar í EFTA, eins og sumir stjórnmála- og fræðimenn hafa þegar gert skóna. Því hefur raunar verið haldið fram að EFTA henti hagsmunum Breta jafnvel betur en ESB, lagalega, pólitískt og fjár- hagslega. Helsta ljónið í veginum er líklega frjálst flæði vinnuafls á EFTA-svæðinu og fyrir vikið gætu Bretar valið að vinna frekar náið með aðildarríkjunum í stað þess að slást form- lega í hópinn, svokallað UKEFTA. Í öllu falli er talið að staða Breta yrði sterkari með EFTA á bak við sig, bæði í Evrópu og á heimsvísu. Bald- ur og Wivel eru þeirrar skoðunar að þetta gæti stuðlað að nýjum tækifærum fyrir núverandi EFTA-ríki í Bretlandi og einnig þegar kemur að nýjum viðskiptasamningum utan Evrópu. Hvatning frá Íslandi Í þessu sambandi ber að hafa í huga að Bretar hafa ekki sjálfir gefið til kynna að þeir hyggist sækja um aðild eða óska eftir samstarfi við EFTA og fyrir liggur að bæði Norðmenn og Svisslend- ingar hafa efasemdir um slík áform. Bæði er þau ríki sögð hafa áhyggjur af því Bretar myndu taka yfir forystuhlutverkið í samtökunum, auk þess sem spennan á milli Breta og ESB gæti skaðað farsælt samstarf EFTA og ESB. Mestur áhugi á aðild Breta að EFTA er á Ís- landi, að því er fram kemur í greininni, en tveir síðustu utanríkisráðherrar, Guðlaugur Þór Þórðarson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, hafa beinlínis hvatt Breta til að sækja um aðild að samtökunum. „Utanríkisráðherrann hefur lagt áherslu á þann möguleika að Ísland og önnur EFTA-ríki fylgi fordæmi Breta og geri fríversl- unarsamninga við ríki vítt og breitt um heiminn. Mögulega gæti þetta leitt til betri viðskipta- samninga við Breta en þau [EFTA-ríkin] búa að núna,“ segja Baldur og Wivel. Í greininni kemur fram að Bretar hafi í sögu- legu samhengi verið hliðhollir smærri ríkjum innan ESB; greitt götu þeirra inn í sambandið, ekki síst við lok kalda stríðsins, og staðið með þeim í ýmsum málum, einkum gagnvart stóru ríkjunum tveimur, Frökkum og Þjóðverjum. „Smærri Evrópuríkin sáu Breta sem helsta talsmann frjálsra viðskipta, sem tryggði þeim nauðsynlegan aðgang að mörkuðum, þannig að þeirra litlu hagkerfi gætu vaxið, auk þess sem Bretar voru mikilvægur hlekkur í öryggis- og varnarkerfi sambandsins,“ segja Baldur og Wi- vel. Tvennskonar ríki í Evrópu Með smærri ríkjum er gjarnan átt við ríki sem hafa takmarkað bolmagn ein og sér, pólitískt, viðskipta- og menningarlega. Hvar mörkin eru dregin í þeim efnum er eflaust skilgreining- aratriði og í greininni er vísað í skondin orð danska fjármálaráðherrans, Kristians Jensens, en hann sagði á Brexit-ráðstefnu í Danmörku á liðnu ári að til væru tvennskonar Evrópuríki. Annars vegar smáríki og hins vegar lönd sem ekki hafa gert sér grein fyrir því ennþá að þau eru smáríki. Ekki höfðu víst allir húmor fyrir þessu. Greinarhöfundar halda því fram að smáríkin innan ESB séu líkleg til að tileinka sér þrenns- konar aðferðir að Bretum gengnum; mynda bandalag með öðrum smáríkjum, fela sig eða leita skjóls. Til þess að verja sína hagsmuni er ein leiðin að smærri ríkin snúi bökum í vaxandi mæli saman. Sem dæmi um slíkt bandalag tilgreina Baldur og Wivel Írland, Holland og Dan- mörku. Hagsmunir þessara ríkja fari gjarnan saman. Þá séu þau öll í nánum tengslum við Bretland. Forsætisráðherrar þessara þriggja ríkja hafa raunar þegar hvatt ESB til að huga sérstaklega að þörfum smærri ríkja í Brexit- samningunum. Ljóst er að þessi ríki munu sakna Breta og danski utanríkisráðherrann, Anders Samuelsen, hefur verið duglegur að ferðast til ríkja á borð við Portúgal, Austurríki og Tékkland, til að kanna hvernig landið liggur og freista þess að styrkja samböndin. Ríkin vilja tryggja áframhaldandi náið samstarf milli ESB og Bretlands. Þegar Baldur og Wivel tala um að ríki feli sig eiga þeir við að þau tileinki sér hlutleysi og bíði á hliðarlínunni þegar kemur að því að taka ákvarðanir innan ESB í tengslum við Brexit. Með því að leita skjóls er átt við að smærri ríki sem ekki hafi náin tengsl við Bretland veðji á að ESB veiti þeim áframhaldandi skjól og styðji þau þegar á þarf að halda. Og tryggi þannig mögulega gott veður sér til handa til lengri tíma litið innan sambandsins. Ríkin sem bíða á hlið- arlínunni eða leita skjól hafa ákveðið að ögra þannig ekki hinum stærri ríkjum ESB í samn- ingaviðræðum um úrgöngu Breta úr samband- inu. Flest smærri ríki hafa kosið sambland að þessum tveimur leiðum. Áhrif á Norður-Atlantshafi Útganga Breta úr ESB mun hafa víðtæk áhrif, meðal annars á Norður-Atlantshafi en nú fjölg- ar ríkjum utan sambandsins sem hafa þar hags- muna að gæta. Fyrir voru Noregur, Ísland, Kanada og Bandaríkin, auk Færeyja og Græn- lands. Þetta skapar aukna óvissu en ekki liggur fyrir hvaða kröfur Bretar munu setja fram, til dæmis er varðar opnun siglingaleiðarinnar í norðri, stefnumótun á svæðinu, umhverfisvernd og fleira. Þá hefur ríkisstjórn Íslands lýst áhyggjum sínum af því að enn eitt ríkið komi nú að borðinu þegar samið er um sameiginlega fiskistofna á svæðinu, eins og samninga- viðræður hafi ekki verið nógu flóknar fyrir. Eins hafa Norðmenn og Danir áhyggjur af framtíð veiðiréttinda. Loks segja greinarhöf- undar að Íslendingar og Norðmenn fylgist grannt með sjálfstæðisumræðunni í Skotlandi í kjölfar Brexit enda myndi sjálfstæði Skota kalla fram enn eina sviðsmyndina í Norður- Atlantshafi. Í greininni er bent á að fræðimenn sem skoð- að hafa málið haldi því fram að Brexit hafi þegar haft áhrif á Evrópusambandsumræðuna í Dan- mörku, Grikklandi og Austurríki. Þá sé líkleg- ast að brotthvarf Breta geri Evrópusinnum erf- iðara um vik að selja hugmyndina um aðild í Noregi, Sviss og á Íslandi, þar sem almenningur sé mjög efins fyrir. „Brexit hefur þegar haft áhrif á Evrópusambandsumræðuna á Íslandi og botnfryst aðildarviðræður ríkisins sem hafa verið í bið frá 2013,“ segir í greininni. Horft verður til afleiðinganna Að mati Baldurs og Wivels er of snemmt að segja til um hvaða áhrif Brexit kemur til með að hafa á efasemdafólk í smærri Evrópuríkjum til lengri tíma litið. En mat á kostum og göllum ESB-aðilar muni framvegis án efa stýrast í auknum mæli af því hvort Bretum kemur til með að farnast vel eða illa utan sambandsins. Meti menn það almennt svo að Brexit veiki stöðu Bretlands gæti það haft jákvæð áhrif á stuðning við sambandið. Og reynist róðurinn ut- an ESB Bretum sérstaklega þungur gæti það jafnvel orðið vatn á myllu Evrópusinna á Ís- landi; að þrýsta á um að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju. Meira þarf, að dómi Bald- urs og Wivels, til að Norðmenn og Svisslend- ingar taki sama pól í hæðina. Blómstri efnahagur Bretlands aftur á móti eftir brotthvarfið og pólitísk áhrif landsins verða eins mikil og jafnvel meiri en áður mun það skila sér inn í Evrópuumræðuna í ríkjum eins og Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi, segir í greininni. Og nær ómögulegt verður að telja EFTA-ríkin á að ganga í ESB. Allra augu verða með öðrum orðum á Bretum á komandi árum og misserum. Bæði þeirra sem styðja Evrópusambandið og þeirra sem vilja standa utan þess. Hvert stefnir fíllinn þegar hann er laus úr postulínsbúðinni? Þegar fíllinn fer úr postulínsbúðinni Brotthvarf Breta úr Evrópusambandinu kemur til með að hafa víðtæk áhrif, meðal annars fyrir okkur Íslendinga. AFP Segja má að Bretar hafi verið pönkararnir í Evrópusamband- inu; gjarnan tilbúnir að standa uppi í hárinu á Þjóðverjum og Frökkum. Hvaða áhrif mun brotthvarf þeirra úr samband- inu hafa á smærri ESB-ríkin, sem Bretar hafa veitt skjól? Og hvað þýðir Brexit fyrir smá- þjóðir utan ESB, eins og Ísland? Þessu reyna Baldur Þórhalls- son prófessor og danskur koll- egi hans, Anders Wivel, að svara í grein sem birtast mun í nýrri bók um áhrif Brexit. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Anders Wivel Baldur Þórhallsson ’Mestur áhugi á aðild Bretaað EFTA er á Íslandi, að þvíer fram kemur í greininni, entveir síðustu utanríkisráðherrar, Guðlaugur Þór Þórðarson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, hafa beinlínis hvatt Breta til að sækja um aðild að samtökunum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.