Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Page 22
Fyrir 4 3 msk. góð ólífuolía 4 tsk. rauðvínsedik 2 stór hvítlauksrif, rifin 2 tsk. cumin-duft 2 tsk. kóríanderduft 1 tsk. cayenne-pipar ½ tsk. salt 1 kg gott lambakjöt, skorið í litla kubba grillpinnar úr viði, látnir liggja í bleyti í 10 mín. (má nota stálpinna) Hitið grillið vel. Blandið saman fyrstu sjö hráefnunum í skál. Bætið lambinu út í og þekið vel. Látið það standa í a.m.k. fimm mín- útur í leginum. Þræðið lambabitana á grillpinna og látið vera smá bil á milli bitanna. Grillið þar til grillað að utan og bleikt að innan, u.þ.b. 8 mínútur. Snúið nokkrum sinnum. Gott er að grilla lauk, papriku, sveppi og annað grænmeti með þessum rétti, annaðhvort sér eða setja á milli kjötbitanna. Lamba „kebab“ Getty Images/iStockphoto Grillað í vorloftinu Nú er rétti tíminn til að draga fram grillið! Það er vor í lofti og tilvalið að finna bragð af sumrinu með góðri grillveislu. Það þarf ekki að vera flókið að grilla; oft þarf bara gott hráefni og smá salt og pipar! Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is MATUR Blandið í 2 bolla af hreinni jógúrt hálfri rifinni gúrku (takið fyrst fræúr), ferskum kóríander, ½ tsk. kóríanderduft, ½ tsk. cumin og smá salt. Smakkið til með kryddinu. Passar vel með öllum grillmat! Indversk raita 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.4. 2018 Kjúlli frá Karíbahafinu Fyrir 4 1 kg kjúklingabitar, leggir og læri lime sneiðar MARÍNERING ¼ bolli limesafi 1/3 bolli sojasósa 1 msk. jómfrúarólífuolía 3 hvítlauksrif, rifin smátt 1 bútur ferkur engifer, afhýdd- ur og rifin smátt á rifjárni Setjið í ísskáp og látið liggja þar í a.m.k. hálftíma og jafnvel yfir nótt. Hitið grillið í hæsta en lækkið eftir þörfum. Grillið bitana þar til eldaðir í gegn, 20-25 mínútur. Passið að snúa oft og ef einhver mar- ínering er eftir er gott að pensla bitana annað slagið. Berið fram með skall- ottlauknum og limebátum. 4 skallottlaukar, smátt skornir 1 tsk. mulið allrahanda krydd (allspice) ½ tsk. kanill ¼ tsk. múskat, rifið nýmalaður pipar Blandið öllum hráefnunum saman í stórri skál og hrær- ið vel. Bætið kjúklingnum út í skálina og þekið hann með maríneringunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.