Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Qupperneq 29
15.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Áður en torgið La Plaza Mayor í
spænsku borginni Salamanca varð
miðpunktur mannlífs borgarinnar
var það notað undir nautaat. Fyrir
250 árum breyttist það og síðan
þá hefur torgið verið friðsæll og
fagur viðkomustaður, eitt af þeim
torgum sem er laust við mikinn
eril nema í lok vinnudags íbúa þeg-
ar þeir safnast þar saman til að
teygja úr sér og spjalla.
Torgið er í anda 17. aldar, með
einstaklega fallegum byggingum í
barokkstíl þess tíma. Torgið sjálft
er gert úr hinum áferðarfagra
sandsteini sem var notaður óspart
á gullaldarárum Spánar.
Torgið er kjörið til þess að njóta
fegurðarinnar og virða fyrir sér út-
skorin listaverkin á byggingunum.
Río de la Plata er veitingastaður
við torgið til að prófa, í eigu sömu
fjölskyldu í hálfa öld, með notalegt
umhverfi og góðan mat.
SALAMANCA, SPÁNN
Friðsælt og fagurt
Stundum er sagt að torgið Navona
í Róm sé mun frekar safn en torg
með sínum listaverkum allt um
kring. Þrír stórglæsilegir gos-
brunnar prýða torgið en þann
frægasta, gosbrunn hinna fjögurra
fljóta, gerði Bernini árið 1651. Na-
vona er ekki í alfaraleið, hálffalið,
svo það er ágætt að hafa kort með
sér.
Kaffihúsin eru sérstaklega flott
á torginu, með ómótstæðilegum
gelato og sterku ítölsku kaffi. Á
þessu fegursta torgi Rómar
hljómar angurvær tónlist og það
er gaman að virða aðeins fyrir sér
útlínur torgsins. Þær mótast af
upphaflegu hlutverki þess, en
torgið var íþróttavöllur hjá Róm-
verjum til forna.
RÓM, ÍTALÍA
Torg sem er safn
Þótt Brussel sjálf komist ekki oft á lista yfir fal-
legustu borgir heims gerir torg borgarinnar
það, Grote Markt. Allra best er að vera á
ferðinni í ágúst, þá eiga ferðalangar mögu-
leika á að sjá torgið prýtt hinu fræga
blómateppi, en þá er það skreytt með
700.000 ferskum begóníum. Miðaldabygg-
ingarnar umkringja torgið og innan þess
gæðir fólk sér á frönskum og kræklingi. Ekki
gleyma að kaupa ykkur konfekt í eftirrétt í bak-
aríinu Aux Merveilleux de Fred.
BRUSSEL, BELGÍA
Kræklingur og konfekt
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina