Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.4. 2018
Þ
egar þetta er skrifað er ekki vitað hve-
nær loftárásir verða gerðar á hern-
aðarmannvirki í Sýrlandi.
Hörð viðbrögð, feitar
fyrirsagnir
Þegar fréttir bárust af loftárásum flughers Sýrlands-
stjórnar tók Trump, forseti Bandaríkjanna, þegar í
stað viðbragð með sínum hætti og „tísti“ svo eftir var
tekið. Forsetinn lét ekki við það sitja heldur svaraði
fjölmörgum spurningum fréttamanna í tengslum við
ýmsa fundi í Hvíta húsinu, þótt þeir snerust ekki um
atburðina í Sýrlandi.
Donald Trump hefur verið aðgengilegri frétta-
mönnum en flestir forsetar og það þó að fjöldi frétta-
manna á „virtum miðlum“ hafi farið á límingunum
gagnvart forsetanum, þegar hann var svo ósvífinn að
vinna kosningar, sem þeir töldu ómögulegt, og höfðu
gert allt sem þeir gátu til að tryggja að þannig færi
ekki.
Forsetinn sagði við umheiminn að ákvörðun um
árásir á Sýrland myndi liggja fyrir innan 24-48 tíma.
Bætti hann því við að árásirnar yrðu gerðar með
splunkunýjum, flottum og „smart“ flugskeytum sem
enginn óvinaher ætti nein ráð við.
Hvað dvelur?
Frestur forsetans er löngu liðinn. Í fréttum fyrir
þremur dögum voru sýndar myndir frá því að flug-
móðurskipið Harry S. Truman lagði úr heimahöfn til
þess að taka þátt í aðgerðum í Sýrlandi. Tekið var
fram að skipið með 6.500 sjóliða innanborðs, ásamt
fimm fylgdarskipum, yrði rúma viku á leiðinni á átaka-
slóðir.
Nú segir Hvíta húsið að ekki verði gefnar nákvæm-
ari upplýsingar um tímasetningu árása né heldur
hvers eðlis þær verði eða þá hvort af þeim verði!
Stjórnmálamenn fullyrða margir að það sé krafa al-
mennings að Assad forseta verði hegnt grimmilega
fyrir þessar árásir, þar sem tugir manna fórust og
miklu fleiri særðust.
Hvert mannslíf er og á að vera dýrmætt, en það er
erfitt að horfa framhjá því að þegar hafa hundruð þús-
unda manna fallið í átökum í Sýrlandi og enn fleiri flú-
ið, eftir að hafa misst allt sitt, án þess að „alþjóða-
samfélagið“ hafi brugðist við. En það er notkun eitur-
vopna sem ræður úrslitum um harðari viðbrögð.
Rauðu strikin sem strikuð voru út
Obama, fyrrverandi forseti, sagði opinberlega að gerð-
ist Assad Sýrlandsforseti svo djarfur og ósvífinn að
grípa til slíkra vopna þá yrðu viðbrögðin mjög hörð.
Obama sagðist hafa dregið „rauð strik“ í sandinn og
þau lytu að notkun eiturvopna. Sjálfsagt hefur forset-
inn treyst því að hótun af þessu tagi frá mesta herveldi
í heimi myndi duga. En honum skjátlaðist. Ekki löngu
síðar gerði her Assads árásir og var talið hafið yfir all-
an vafa að hann hefði þá brúkað þessi gereyðingar-
vopn gegn löndum sínum.
En Obama brást. Hann stóð ekki við stóru orðin og
margir telja að þarna hafi risið á forsetaferli hans ver-
ið lægra en endranær.
Nú er talið liggja fyrir að samningar forsetans við
Íran um stöðvun á fullvinnslu kjarnorkuvopna hafi
verið á viðkvæmu stigi um þessar mundir. Sá samn-
ingur átti að verða fegursta rósin á ferli forsetans og
hann óttaðist að refsiaðgerðir við Assad gætu sett það
ferli í uppnám, því Íransstjórn var öflugasti stuðnings-
aðili Assads allan tímann og fluttist ekki í annað sætið
fyrr en eftir að Pútín blandaði sér óvænt og með eftir-
minnilegum hætti í átökin þarna.
Treyst á Pútín
Til þess að reyna að halda andlitinu eftir áfallið með
„rauðu strikin“ sömdu þeir Obama forseti og Kelly ut-
anríkisráðherra við Rússland um að fjarlægja öll efna-
vopn frá Sýrlandi. Töldu þeir þar með ótvírætt að
efnavopnahætta frá Sýrlandi væri úr sögunni. John
Kerry: „And as I said at the outset of these negotia-
tons, there can be no games, no room for avoidance, or
anything less than full compliance by the Assad
regime.“ Obama: „This framework provides the
opportunity for the elimination of Syrian chemical
weapons in a transparent, expeditious and verifiable
manner, which could end the threat these weapons
pose not only to the Syrian people but to the region
and the world.“
Trump á leik
En þrátt fyrir þennan trygga samning, þétt saum-
aðan með tvöfaldan lás, þá hafa aftur og aftur komið
upp ásakanir um að Assad noti slík vopn á varnar-
lausa borgara. Fyrir réttu ári „þótti sannað“ að As-
sad hefði enn verið á ferðinni með eitrið. Donald
Trump sá að þarna væri tækifæri fyrir hann til að
sanna tvennt í einu: Það væri kominn nýr lög-
reglustjóri í bæinn í stað hugleysingjans og um leið
sýna að þeir sem skálduðu upp að Rússar ættu ein-
hverja hönk upp í bakið á núverandi forseta væru
lygalaupar. Trump lét því flugskeytum rigna á þann
flugvélaflota forseta Sýrlands sem talið var að hefði
átt þátt í árásunum. Sagt er að fimmtungi af flug-
vélakosti Sýrlandshers hafi verið eytt í árásunum.
Og Trump sló sér upp.
Hefur staðan breyst?
Ekki er víst að sama stemning sé hjá almenningi nú
eins og var fyrir ári, eins og sýnir sig í Bretlandi þar
sem mikill meirihluti er andvígur þátttöku í hefndar-
aðgerð gegn Sýrlandi. Líka þeir sem fyllast viðbjóði
vegna fréttamyndanna sem þaðan berast.
Þær raddir heyrast að ekki sé allt sem sýnist um
þessa „eiturefnaárás“ núna. Assad hafi með atbeina
Rússa þegar unnið baráttuna um Sýrland. Það sé ekki
glóra í því fyrir hann eða Rússa að nota slík vopn á síð-
ustu metrunum og drepa með þeim þrjátíu manns á
sama tíma og hann leyfir tugum þúsunda manna að
fara út úr sömu borg í friði. Fyrir andstæðinga
Assads, sem auðvitað séu í öngum sínum yfir þróun
borgarastyrjaldarinnar, sé staðan önnur. Þeir eigi
einnig eiturefnavopn. Takist þeim með sviðsetningu
að fá fram bandaríska árás yrði Assad fyrir meira
tjóni á einum sólarhring en þrekaðir andstæðingarnir
gætu unnið á mörgum árum.
Sjónvarpsstöðin Fox er eina öfluga sjónvarpsstöðin
vestra sem leggur Trump forseta lið í samfelldum
árásum annarra fjölmiðla á hann, þar sem iðulega er
gengið ótrúlega langt. Það vekur nokkra athygli að
sumir þekktustu fréttaskýrendur og þáttastjórnendur
Fox hafa lýst efasemdum um að allt sé með felldu með
þessa eiturefnaárás, og sumt gangi hreinlega alls ekki
upp. Ekki er þó full eining um það sjónarmið innan
stöðvarinnar.
Er vindurinn úr annarri átt?
Trump skynjaði vel að hann sló sér upp með árásinni á
Sýrland síðast og að hún hefði brugðið ótvíræðu ljósi á
styrkleikamun þeirra Obama. En það er ekki víst að
loftárásir yrðu vatn á myllu hans núna. Þá er ekki ver-
ið að taka undir þau sjónarmið að með takmarkaðri
refsiaðgerð gegn Sýrlandi sé forsetinn að ýta heim-
inum út á hengiflug kjarnorkustyrjaldar. En hitt er
rétt, að á því ári sem liðið er hafa hersveitir og bún-
Sýrlenskur hildarleikur
og íslenskur sýndar-
leikur um stórmál
’
Fyrir andstæðinga Assads, sem auðvitað
séu í öngum sínum yfir þróun borgara-
styrjaldarinnar, sé staðan önnur. Þeir eigi
einnig eiturefnavopn. Takist þeim með svið-
setningu að fá fram bandaríska árás yrði
Assad fyrir meira tjóni á einum sólarhring en
þrekaðir andstæðingarnir gætu unnið á
mörgum árum.
Reykjavíkurbréf13.04.18