Morgunblaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Ríkisstjórnin, eftir tillögu utanrík- isráðherra, hefur ákveðið að veita 200 milljónir króna aukalega á ári til bættrar hagsmunagæslu Ís- lands vegna EES-samningsins. Segir ráðherra að starfsfólki ráðu- neytanna verði fjölgað við sendi- ráð Íslands í Brussel, en því var fækkað verulega í kjölfar þess að aðildarviðræður Íslands hófust við Evrópusambandið árið 2010, og fjölgaði ekki aftur eftir að viðræð- unum var slitið. Aðeins þrjú ráðu- neyti eiga í dag fulltrúa við störf í sendiráðinu. Meðalseinkun á inn- leiðingu EES-tilskipana jókst til muna frá því snemma árs 2009, þegar Ís- land sótti um aðild að ESB. Upptaka EES-reglu- gerða dróst verulega aftur úr árið 2011 og í nóvember árið 2013 náði inn- leiðingarhallinn 3,2 prósentum, sem er langt yfir EFTA-meðaltalinu. Í september sl. stóð Ísland sig langverst allra EFTA-ríkjanna við innleiðingu EES-gerða og nam þá innleiðing- arhallinn 2,2 prósentum. Hallinn var kominn niður í 1,8 prósent í apríl síðastliðinum. Eykur trúverðugleika Guðlaugur Þór segir að með fjölgun starfsfólks og betri ár- angri við innleiðingu og aðlögun verði Ísland trúverðugari aðili innan EES en það auki líkurnar á að Ísland fái áheyrn fyrir áherslur sínar í samstarfinu þegar mestu máli skipti, á fyrri stigum til- lagna. Einnig megi spara í máls- kostnaði en á síðustu árum hefur samningsbrotamálum ESA gegn Íslandi fjölgað mjög. Að sögn Guðlaugs þurfa öll ráðuneytin að eiga fulltrúa í Brussel til að styrkja stöðu Ís- lands í hagsmunagæslu á fyrri stigum, en það greiðir sömuleiðis fyrir meðferð EES-gerða innan stjórnsýslunnar síðar. Guðlaugur bendir á að í skýrslu utanríkisráðuneytisins um skref í átt að bættri framkvæmd EES- samningsins sem var birt í síðasta mánuði komi fram að Ísland hafi tekið upp 13,4 prósent þeirra til- skipana, reglugerða og ákvarðana sem ESB samþykkti á árunum 1994 til 2016. „ESB-sinnar hafa reynt að grafa undan EES- samningnum með því að halda því fram að við tökum upp 80 til 90 prósent af gerðum ESB meðan staðreyndin er að hlutfallið er 13,4 prósent,“ segir Guðlaugur. Heild- arfjöldi þeirra gerða sem Ísland tók upp var 9.028, samkvæmt skráningu í EES-gagnagrunni Stjórnarráðsins, en heildarfjöldi þeirra gerða sem stofnanir ESB samþykktu á sama tímabili var alls 67.158. ash@mbl.is 200 milljónir í hagsmunagæslu vegna EES  13,4 prósent EES-gerða hafa verið innleidd frá 1994  Ísland stendur sig verst EFTA-ríkja við innleiðingar Guðlaugur Þór Þórðarson „Auðvitað sjáum við eftir Sunnubúð- arheitinu en nú ætlum við að breyta yfir í framtíðarkonsept okkar, Krambúð,“ segir Gunnar Egill Sig- urðsson, framkvæmdastjóri versl- unarsviðs Samkaupa. Samkaup keyptu rekstur Sunnu- búðarinnar við Lönguhlíð fyrir nokkrum árum og hafa rekið hana í óbreyttri mynd þar til henni var lok- að vegna breytinga í liðinni viku. Verður hún opnuð á ný um næstu mánaðamót undir nafninu Krambúð og verður númer tíu í röð slíkra verslana. Sunnubúðin hafði verið rekin undir því nafni frá 1951 og því lýkur nú 67 ára verslunarsögu. „Sunnubúðin var rótgróin kaup- mannsverslun en með breyttu sam- keppnisumhverfi og neyslumynstri er þeirri þörf svarað með öðrum verslunum. Við ætlum að koma með meiri þægindi fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Gunnar Egill sem boð- ar meðal annars bakkelsi bakað á staðnum, kaffibar og úrval tilbúinna rétta. hdm@mbl.is Sunnubúð verður Krambúð  Lok 67 ára versl- unarsögu í Hlíðunum Sunnubúð Heyrir nú sögunni til. Morgunblaðið/Hari Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Ljósmæður undrast málflutning Svandísar Svavarsdóttur heilbrigð- isráðherra sem sagði í útvarps- þættinum Sprengisandi í gærmorgun að starfsstéttir gætu ekki rök- stutt kröfur sínar í kjarabaráttu með því að segja þær sanngjarnar. Katrín Sif Sigur- geirsdóttir, for- maður samninganefndar ljósmæðra, sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi að rök ljósmæðra hefðu verið kynnt heilbrigðisráðherra og því skytu ummæli ráðherra skökku við. Alþjóðadagur ljósmæðra var á laugardaginn og stóð Ljósmæðra- félag Íslands fyrir ráðstefnu á Ak- ureyri í tilefni af 50 ára afmæli Norðurlandsdeildar Ljósmæðra- félagsins. Mikil samstaða og sam- heldni einkenndi fundinn sem var sóttur af um áttatíu ljósmæðrum. „Kjarabaráttan var lögð til hliðar og við áttum saman skemmtilegan og góðan dag. Við ljósmæður pöss- um upp á að halda okkur mjög vel við í starfi og þarna voru flottar ís- lenskar ljósmæður sem kynntu sín- ar rannsóknir,“ segir Guðrún Páls- dóttir, ljósmóðir á meðgöngu- og fæðingardeild Landspítala, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ljósmæður hafa mjög sterka stéttarvitund, því meira sem barið er á okkur því sterkari verðum við saman sem hópur, baráttuandinn verður meiri og raðirnar þéttari. Baráttan hefur þjappað okkur mikið saman,“ segir Guðrún. Komnar með aðra vinnu Guðrún er ein þeirra ljósmæðra sem sagt hafa upp störfum, en hún lætur af störfum 1. júlí næstkom- andi ef ekki nást samningar fyrir þann tíma. Hún hefur starfað í 20 ár á Landspítalanum, þar af í 12 ár sem ljósmóðir. „Við erum 16 ljós- mæður sem erum búnar að segja upp á deildinni og það eru enn að tínast inn uppsagnir,“ segir Guðrún en um er að ræða tæplega þriðjung ljósmæðra á deildinni. „Það er bara þannig að þann 1. júlí verður deildin óstarfhæf ef ekki næst að manna hana, það er alveg vitað. Það er ekki hægt að segja að þetta sé auðveld eða léttvæg ákvörðun, það er eng- inn sem segir upp nema að vel at- huguðu máli en maður mun standa við sína uppsögn við óbreytt ástand,“ segir Guðrún og bætir við að hætt sé við því að það tínist úr stéttinni vegna uppsagnanna, ein- hverjar ljósmæðranna sem sagt hafi upp séu þegar komnar með aðra vinnu. „Við búumst við engu“ Fundur er boðaður í kjaradeilu ríkisins og ljósmæðra hjá ríkissátta- semjara klukkan þrjú í dag. Guðrún segir ljósmæður ekki bjartsýnar fyrir fundinn. „Við búumst við engu,“ segir Guðrún. Hún segir kveðjurnar hafa verið kaldar frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráð- herra á alþjóðadegi ljósmæðra en Bjarni sagði kröfur ljósmæðra vera um 20 prósentum hærri en það sem ríkið væri tilbúið að samþykkja og ekki væri hægt að hækka laun ljós- mæðra margfalt á við aðra hópa. Ljósmæður eru ekki bjartsýnar  Fundað í dag í deilu ljósmæðra  Undrast ummæli heilbrigðisráðherra um skort á rökstuðningi Guðrún Pálsdóttir Morgunblaðið/Golli Fæðing Ljósmæður funda hjá ríkis- sáttasemjara klukkan þrjú í dag. Nýi togarinn Breki VE61 lagðist að bryggju í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum kl. 11 í gærmorg- un. Áætlað hafði verið að hann yrði 50 daga á leiðinni frá Kína þar sem hann var smíðaður, ásamt systurskipi sínu Páli Pálssyni ÍS sem kom til hafnar á Ísafirði á laugardag. Gekk ferðin að mestu áfallalaust fyrir sig og tók aðeins 46 daga, að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, eða Binna í Vinnslustöðinni, sem sagði að áhöfn- in hefði verið heimkomunni fegin eftir langt ferðalag. Skipið væri hið glæsilegasta, fag- urblátt að lit og búið öflugri skrúfu en eyðir þó um 40% minna af olíu en eldri skip. Aðbúnaður væri með besta móti til vinnu og íveru. Fólki bauðst að koma og skoða skipið og lögðu bæði börn og fullorðnir leið sína niður á bryggju og þáðu veitingar og skoðunarferð um skipið. Um mánuð tekur að koma vinnslubúnaði fyrir í skipinu og mun það halda á miðin á botn- fiskveiðar eftir það. Gert er ráð fyrir 12-15 manna áhöfn. ernayr@mbl.is Togarinn Breki kominn heim til Vestmannaeyja Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.