Morgunblaðið - 07.05.2018, Qupperneq 4
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Fleiri listar verða í framboði í flest-
um stærstu sveitarfélögunum í kom-
andi sveitarstjórnarkosningum en
fyrir fjórum árum. Framboðsfrestur
rann út á laugardag og alls bárust
tæplega 200 framboðslistar kjör-
stjórnum um allt land. Flestir listar
verða í Reykjavík, sextán talsins
sem er tvöfalt meira en fyrir fjórum
árum. Þetta varð ljóst eftir fund
yfirkjörstjórnar síðdegis í gær.
„Það voru gerðar minniháttar at-
hugasemdir við fimm framboð en
þau náðu öll að skila fullnægjandi
gögnum innan tilskilins frests og eru
talin gild og lögleg,“ segir Eva B.
Helgadóttir, formaður yfirkjör-
stjórnar í Reykjavík.
Hún segir að vel hafi verið farið
yfir framboðslista og meðmælendur
í ljósi mikillar fjölgunar framboða.
„Yfirferðin var ansi umfangsmikil
og nákvæm. Það var meðvitað farið
vel og rækilega yfir þetta. Til að
mynda kom í ljós að einn frambjóð-
andi uppfyllti ekki kjörgengi. Hann
var í kjölfarið strikaður út af listan-
um og restin færðist upp um eitt
sæti,“ segir Eva. Umræddur fram-
bjóðandi mun hafa verið í sjöunda
sæti á lista Íslensku þjóðfylkingar-
innar en ástæða þess að hann upp-
fyllti ekki kjörgengi var sú að hann
er með lögheimili í Svíþjóð.
Þeir sextán listar sem bjóða fram í
Reykjavík eru Alþýðufylkingin,
Borgin okkar - Reykjavík, Flokkur
fólksins, Framsókn, Frelsisflokkur-
inn, Höfuðborgarlistinn, Íslenska
þjóðfylkingin, Karlalistinn, Kvenna-
framboð, Miðflokkurinn, Píratar,
Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur-
inn, Sósíalistaflokkurinn, Vinstri
græn og Viðreisn.
Frambjóðendur hættu við
Sautján framboð höfðu verið boð-
uð og heltist Kallalistinn úr lestinni.
Karl Th. Birgisson, forsvarsmaður
þess framboðs, greindi frá því á
Facebook-síðu sinni að frambjóð-
endur hefðu gengið úr skaftinu á
lokametrunum: „Undir lokin hélt ég
að söfnun meðmæla yrði flöskuháls,
en svo var ekki. Hins vegar fundu
fleiri en einn frambjóðandi sér ekki
stund til að skrifa undir lögboðna
pappíra fyrir tilskilinn frest svo að
framboðið teldist gilt,“ sagði Karl en
meðal þeirra sem orðuð voru við
framboð voru Edda Björg Eyjólfs-
dóttir leikkona og Davíð Þór Jóns-
son prestur.
Sex flokkar á Akureyri
Níu flokkar bjóða fram í Kópa-
vogi, einum fleiri en fyrir fjórum ár-
um. Í Hafnarfirði verða átta flokkar í
framboði en voru sex síðast. Það
sama gildir um Reykjanesbæ og
Mosfellsbæ.
Á Akureyri bjóða sjö flokkar fram,
rétt eins og fyrir fjórum árum. Mið-
flokkurinn og Píratar bjóða þar fram
og koma í stað Bjartrar framtíðar og
Dögunar. Í Árborg bjóða sex flokkar
fram en fyrir fjórum árum voru þeir
fimm. Fjórflokkurinn er á sínum
stað en Björt framtíð dettur út. Inn
koma Miðflokkurinn og Áfram Ár-
borg sem samanstendur meðal ann-
ars af Pírötum og Viðreisnarfólki. Á
Seltjarnarnesi verða fjögur framboð
eins og síðast. Sjálfstæðisflokkurinn
og Samfylking bjóða fram, Viðreisn
og Neslisti bjóða saman fram en
Framsókn býður ekki fram. Fyrir
Seltjarnarnes er nýtt framboð runn-
ið undan rifjum Skafta Harðarsonar.
Á lista þess er að finna marga gam-
algróna sjálfstæðismenn.
Persónukjör víða um land
Engir listar voru lagðir fram í
fimmtán sveitarfélögum. Þau eru
Dalabyggð, Reykhólahreppur, Kjós-
arhreppur, Árneshreppur, Stranda-
byggð, Skorradalshreppur, Helga-
fellssveit, Kaldrananeshreppur,
Akrahreppur, Skagabyggð, Sval-
barðsstrandarhreppur, Fljótsdals-
hreppur, Borgarfjarðarhreppur,
Grýtubakkahreppur og Svalbarðs-
hreppur. Í þessum sveitarfélögum
verða því óhlutbundnar kosningar
eða persónukjör.
Í fjórum sveitarfélögum barst að-
eins einn framboðslisti. Þetta var
raunin í Skútustaðahreppi, Tjörnes-
hreppi, Súðavíkurhreppi og Eyja- og
Miklaholtshreppi. Halldór Jónsson,
sem situr í kjörstjórn Eyja- og
Miklaholtshrepps, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þegar aðeins einum
lista væri skilað inn þá væri fram-
boðsfrestur framlengdur um tvo sól-
arhringa. Berist ekki fleiri framboð
er listinn sjálfkjörinn.
„Og þá er ekki gengið til kosninga.
Það er bara á Kúbu sem gengið er til
kosninga þegar einn listi er í fram-
boði,“ sagði Halldór, léttur í bragði.
Framboðsfrestur í þessum fjórum
sveitarfélögum hefur því verið fram-
lengdur til hádegis í dag og þá ræðst
endanlega hvernig málum er háttað.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur til að mynda borist
áskorun í Eyja- og Miklaholtshreppi
um að fallið verði frá framboði Betri
byggðar, eina listans sem skilað var
inn, svo hægt verði að hafa hefð-
bundið persónukjör.
Sextán listar bjóða fram í Reykjavík
Öll framboðin úrskurðuð lögleg síðdegis í gær Einn frambjóðandi uppfyllti ekki kjörgengi Fleiri
framboð í stóru sveitarfélögunum en síðast Persónukjör víða um land og sums staðar sjálfkjörið
Morgunblaðið/Eggert
Kosningar Sextán flokkar verða á kjörseðlinum í Reykjavík hinn 26. maí. Ekki þarf að gera sérstakar ráðstafanir til að koma öllum flokkum og frambjóð-
endum fyrir, samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórn í Reykjavík. Fleiri flokkar bjóða fram í stærstu sveitarfélögunum en fyrir fjórum árum.
Spennandi kosningar
» Hátt í 200 framboðslistar
bárust kjörstjórnum en kosið
verður til 72 sveitarstjórna.
» Sextán framboðslistar verða
í Reykjavík, tvöfalt fleiri en fyr-
ir fjórum árum.
» Útlit fyrir persónukjör í
fimmtán sveitarfélögum. Þá
barst aðeins einn framboðslisti
í fjórum sveitarfélögum.
» Kosið verður 26. maí næst-
komandi.
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018
18. maí í 3 nætur
LJUBLJANA
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Netverð á mann kr. 79.995 m.v. tvo í herbergi
með morgunverði á hótel Park í 3 nætur.Hotel Park
Frá kr.
79.995
m/morgunmat
Örfá sæti
laus!
Fararstjórar: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir og Ingibjörg Gréta Gísladóttir
Árlegt uppboð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á
óskilamunum fór fram í húsnæði Vöku hf. um helgina.
M.a. voru boðin upp reiðhjól, vespur og hjólastólar. Líkt
og fyrri ár létu margir sjá sig í von um að gera góð kaup.
Á hverju ári berast lögreglunni hundruð reiðhjóla, þó
aðeins brot af þeim hjólum sem tilkynnt eru stolin.
Margir mættu á uppboð lögreglunnar
Morgunblaðið/Hari
Alls verður kosið í 74 sveitarfélögum hinn 26. maí næstkomandi. Aðeins
verður þó kosið til 72 sveitarstjórna þar sem fyrir liggur að sveitarfélögin
Fjarðabyggð og Breiðdalshreppur muni sameinast sem og sveitarfélagið
Garður og Sandgerðisbær.
Framboðsfrestur rennur endanlega út á hádegi í dag í fjórum sveitar-
félögum sem hann var framlengdur í. Þá lýkur sömuleiðis yfirferð kjör-
stjórna yfir alla lista og fyrir liggur hvort þeir uppfylla allar kröfur. Dóms-
málaráðuneytið auglýsir framlagningu kjörskrár eigi síðar en laugar-
daginn 12. maí. Eigi síðar en 16. maí skal kjörskrá svo liggja frammi til
sýnis á skrifstofum sveitarstjórna eða á öðrum stað sem henta þykir.
Kosið til 72 sveitarstjórna
Í DAG ERU 19 DAGAR TIL KOSNINGA
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018