Morgunblaðið - 07.05.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.05.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3 Í þættinum Þingvellir á K100 ígærmorgun ræddi Páll Magn- ússon við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Mest var fjallað um utanríkismál og Guðlaugur benti meðal annars á að þrautaganga Bret- lands út úr Evrópu- sambandinu sýndi að ákvörðun um að ganga í það, sem væri óskynsamleg fyrir Ísland, yrði ekki einfaldlega tekin til baka.    Hann sagði þetta minna á text-ann úr Hotel California: „You can check out any time you like, but you can never leave.“    Í lokin var vikið að borgarmálumog þar var athyglisvert að Guð- laugur sagði frá því þegar hann var varaformaður fjárlaganefndar og vildi setja nokkur hundruð millj- ónir í að gera göngubrýr yfir helstu umferðaræðar Reykjavíkur.    Hann sagðist hafa vitað að ekkiþýddi að bjóða borgaryfir- völdum peninga til að gera mislæg gatnamót, en hann hefði talið að enginn gæti verið á móti göngu- brúm.    Vegagerðin hefði hins vegarbent honum á að þingið gæti samþykkt eins háar fjárhæðir og það vildi til þessara mála, ekkert kæmist til framkvæmda hjá borg- inni.    Það er með ólíkindum að borg-aryfirvöld sem ganga fram með þeim hætti sem raun ber vitni í stórum málum á borð við sam- göngur og uppbyggingu borgar- innar, lóða- og skipulagsmál, skuli í könnunum mælast eiga góða mögu- leika að halda áfram að spilla borg- inni. Guðlaugur Þór Þórðarson Á móti öllum umferðarbótum STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.5., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 1 snjókoma Akureyri 6 skýjað Nuuk -5 heiðskírt Þórshöfn 7 rigning Ósló 14 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 heiðskírt Stokkhólmur 19 heiðskírt Helsinki 9 heiðskírt Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 26 heiðskírt Dublin 20 léttskýjað Glasgow 18 léttskýjað London 23 heiðskírt París 26 heiðskírt Amsterdam 23 heiðskírt Hamborg 22 heiðskírt Berlín 21 heiðskírt Vín 22 heiðskírt Moskva 14 skúrir Algarve 23 léttskýjað Madríd 16 heiðskírt Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 18 heiðskírt Aþena 19 þrumuveður Winnipeg 18 léttskýjað Montreal 14 léttskýjað New York 16 alskýjað Chicago 18 skýjað Orlando 24 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:39 22:11 ÍSAFJÖRÐUR 4:24 22:35 SIGLUFJÖRÐUR 4:07 22:19 DJÚPIVOGUR 4:04 21:45 Laun nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur verða 4,4% hærri en þau voru í fyrra. Hækkunin tekur mið af kjarasamningum borgarinnar við Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar. Þetta var samþykkt í borgarráði. Nemendum úr 8. bekk grunn- skóla, fæddum 2004, bjóðast nú störf að nýju, eftir nokkurt hlé. Tímakaup þeirra verður 560 krónur. Tímakaup nemenda í 9. bekk verður 630 krónur og nemenda í 10. bekk 838 krónur. Skráning í Vinnuskól- ann er hafin á vef Reykjavíkur- borgar, reykjavik.is. Foreldrar þurfa að skrá unglinga sína í gegn- um Rafrænu Reykjavík og öllum sem skráðir eru býðst starf. Starfs- tímabilin verða þrjú en ekki er hægt að tryggja að allir fái það tímabil sem óskað er eftir, segir í frétt á vefnum. Í fyrra voru um 1.000 ung- lingar skráðir í skólann en þeim mun væntanlega fjölga talsvert þar sem einn árgangur hefur bæst við. Laun í Vinnuskólanum voru hækkuð um 30% í fyrra með það að markmiði að nálgast aðra vinnu- skóla í launakjörum. sisi@mbl.is Launa- hækkun Vinnuskól- ans 4,4% Borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórar Mosfellsbæjar, Sel- tjarnarness, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar, undirrita í Blá- fjöllum í dag samkomulag sveitarfé- laga um átak við endurnýjun og upp- byggingu skíðasvæða höfuðborgar- svæðisins í Bláfjöllum og Skálafelli. Frá þessu segir í fréttatilkynningu. Samkomulagið byggist á fram- tíðarsýn stjórnar skíðasvæðanna og tillögum starfshóps sem Stjórn Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu (SSH) skipaði. Ráðist verði í endurnýjun og uppsetningu þriggja stólalyftna í Bláfjöllum og endurnýjun stólalyftu í Skálafelli og settur upp snjóframleiðslubúnaður í Bláfjöllum. Samhliða þessum verkefnum verði unnið að áframhaldandi upp- byggingu á skíðgöngusvæði og bættri aðstöðu fyrir skíðagöngufólk. Kannað verði að koma á tengingu al- menningssamgangna við skíðasvæð- in. SSH verður með yfirumsjón með framkvæmd samningsins. Áætlaður kostnaður vegna framkvæmdanna sem eiga að standa yfir frá 2019– 2024 verði um 3,6 milljarðar króna. Verkefnin verði fyrri áfangi af tveimur við heildaruppbyggingu skíðasvæðanna, samkvæmt framtíðarsýn um uppbyggingu og rekstur þeirra til ársins 2030. ernayr@mbl.is Skíðasvæðin munu fá fé til endurbóta  Sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins undirrita 3,6 milljarða króna samning Morgunblaðið/Árni Sæberg Bláfjöll Aðstaðan verður bætt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.